Fréttablaðið - 10.07.2012, Qupperneq 38
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
SUMARFRÍIÐ
„Ég samdi allt efnið og flyt það.
Platan var hljómjöfnuð í New York
en að öðru leyti gerði ég hana alla
sjálf,“ segir Oléna Simone, lista-
maður frá Frakklandi, sem hefur
verið búsett á Íslandi frá árinu
2005 og var að gefa út sína fyrstu
plötu, Made in Hurt by Heart.
Sjálf spilar Oléna ekki á nein
hljóðfæri heldur býr hún alla tón-
listina til í tölvu. „Ég tek upp alls
konar umhverfishljóð og önnur
hljóð sem ég kann vel við og vinn
svo með þau í tölvunni og bý til
tónlist,“ segir hún. Hún hefur
ekki stundað neitt tónlistartengt
nám en var þó í listaskóla í Frakk-
landi. Þetta er í fyrsta skipti sem
Oléna gefur út tónlist sína, en hún
samdi texta og tók þátt í flutningi
tveggja laga á plötu hljómsveitar-
innar Asonat sem kom út í apríl.
Oléna segir tónlist sína vera
mjög heiðarlega og byggða á
hennar daglega lífi. „Þetta er
hálfgerð sjálfsævisaga en textana
byggi ég á eigin tilfinningum og
hugsunum,“ segir hún. Frá því hún
byrjaði fyrst að flytja tónlist hefur
henni verið líkt við íslensku stjörn-
una Björk. „Ég fékk meira að segja
að heyra það úti í Frakklandi. Ég
er alls ekki að reyna að vera eins
og hún, eða nokkur annar, heldur
vil ég bara vera ég sjálf,“ segir hún
og bætir við að hún taki því þó sem
miklu hrósi að vera líkt við söng-
konuna. Oléna stefnir á tónleika til
að fylgja plötunni eftir þegar fram
líða stundir og fer að hægjast um
hjá henni. „Svo sótti ég líka um á
Airwaves svo það verður spenn-
andi að sjá hvað kemur út úr því,“
segir hún hress í bragði. Plötuna
má nálgast í verslunum 12 Tóna
á Skólavörðustíg og í Hörpu, eða
á heimasíðunum Gogoyoko og
Bandcamp. - trs
Syngur við tölvugerða tónlist
GERÐI NÆR ALLT SJÁLF Oléna gaf út
á dögunum plötuna Made in Hurt by
Heart og er það hennar fyrsta plata. Hún
gerði hana að nær öllu leyti sjálf.
„Lagið mitt Too Late er í fyrsta sæti á spænskri
tónlistarsíðu,“ segir söngkonan Þórunn Antonía
Magnúsdóttir steinhissa yfir því að lagið hafi
ratað í efsta sæti á lagalista spænsku vefsíð-
unnar AstreduPOP, sem virðist leita uppi lítt
þekkta en efnilega tónlistarmenn.
Þórunn vissi ekki um vefsíðuna fyrr en
aðstandandi hennar sendi henni fréttirnar.
„Hann sagði að Too Late væri frábært popplag
sem væri spilað hverja helgi í Zaragoza á Spáni
og að allir dýrki það þar,“ segir hún undrandi.
Á vefsíðunni er einnig bent á nýja lagið So High
af plötunni Star-Crossed, sem kemur út í ágúst.
„Ég hef rekist á nokkrar umfjallanir á Netinu
síðan So High kom út fyrir rúmlega viku. Það
er búið að skrifa fullt um nýja efnið þótt platan
sé ekki komin út,“ segir Þórunn sem fær reglu-
lega ábendingar um umfjallanir frá vinum.
„Þetta er mjög fyndið. Internetið er bara svo
magnað fyrirbæri. Ég hef ekki verið að senda
vefsíðum eða blaðamönnum neitt um mig,“
segir hún.
Þessi tíðindi eru í takt við þau orð sem faðir
hennar, tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sig-
mundsson, lét falla um nýju plötuna. „Hann
sagði að hún myndi virka geggjað vel í Suður-
Evrópu og eftir að hann frétti af þessum lista
sagði hann að ég ætti að fara til Spánar og Ítalíu
og meika það,“ segir hún og játar að það yrði
sko ekki leiðinlegt.
Næst á dagskrá hjá söngkonunni er að taka
upp myndband við nýja lagið So High. „Ellen
Loftsdóttir og Þorbjörn Ingason sem standa að
baki Narvi Productions leikstýra myndbandinu
í næstu viku,“ segir hún en þau höfðu veg og
vanda af myndbandi GusGus við lagið Over. - hþt
Þórunn Antonía óvart vinsæl á Spáni
VEKUR ATHYGLI Þórunn Antonía vermir fyrsta sæti á
erlendum lagalista spænsku vefsíðunnar AstreduPOP
sem segir alla í Zaragoza dýrka lagið Too Late.
MYND/ANÍTA ELDJÁRN
„Mamma hringir í mig á hverjum
degi og hvetur mig til að hætta
við þetta. Hún er mjög hrædd um
mig,“ segir Björn Bragi Arnars-
son, sjónvarpsmaður með meiru,
sem stefnir á að hlaupa heilt
maraþon í Reykjavíkurmaraþon-
inu 18. ágúst næstkomandi.
Björn Bragi hafði ákveðið að
taka þátt í hlaupinu en stefndi á
styttri vegalengd en alla 42 kíló-
metrana. „Kári Steinn, hlaupari og
félagi minn, hafði verið að hvetja
mig til að fara alla leið og taka
heilt maraþon. Þegar hann kom í
viðtal til okkar í Týndu kynslóð-
ina ákvað hann svo að nota tæki-
færið og mana mig til þess og ég
gat ekki skorast undan því,“ segir
Björn. Björn Bragi segist vera
smá hlaupamaður í sér og taka
tímabil á hverju ári þar sem hann
sé duglegur að fara út að skokka.
Hann hafi þó aldrei farið svo
mikið sem hálft maraþon, hvað
þá heilt. „Menn hafa svolítið verið
að efast um að ég muni geta þetta,
en það styrkir mig bara þeim mun
meira í að sýna fólki að þetta sé
hægt,“ segir hann og bætir við að
hann búist þó ekki við að koma í
mark á neinum sigurtíma. „Ef allt
fer á versta veg þá skríð ég bara í
mark. Ég er að fá fólk til að heita
á mig svo það er eins gott að gera
þetta almennilega,“ segir hann,
en hann mun hlaupa til styrktar
Krabbameinsfélaginu.
Aðspurður segist Björn enn
ekki vera kominn með nægilegt
skipulag í æfingunum en hann sé
þó smám saman að lengja vega-
lengdirnar sem hann hleypur. „Ég
á nokkra góða félaga sem hlaupa
mikið og eru duglegir að gefa mér
ráðleggingar,“ segir hann og bætir
við að hann læri nýja hluti sem
tengjast hlaupum á hverjum degi.
Fram að maraþoninu kemur
hann til með að verða með eitt til
tvö innslög vikulega í þættinum
Ísland í dag á Stöð 2. Þar getur
fólk fylgst með undirbúningsferl-
inu hjá honum auk þess sem hann
mun hitta fyrir aðra hlaupara og
fræðast um mataræði og æfingar
fyrir hlaupara. „Ég kíki svo líka
á einhver af góðgerðarfélögunum
sem fólk ætlar að styrkja í hlaup-
inu,“ segir hann.
tinnaros@frettabladid.is
BJÖRN BRAGI: EF ALLT FER Á VERSTA VEG ÞÁ SKRÍÐ ÉG BARA Í MARK
Mamma hvetur Björn til
að hætta við maraþonið
HLAUPAMAÐUR Björn Bragi segist vera smá hlaupamaður í sér og taka tímabil á
hverju ári þar sem hann sé duglegur að fara út að skokka. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MIÐASALA Í MIÐASÖLU HÖRPU, Á HARPA.IS, MIÐI.IS OG Í SÍMA 528 5050.
S HELGASON
steinsmíði síðan 1953
SKEMMUVEGI 48 200 KÓPAVOGUR SÍMI:557 6677 WWW.SHELGASON.IS
Í ELDBORGARSAL HÖRPU
FÖSTUDAGINN 10. ÁGÚST
N Ú S T Y T T I S T Í T Ó N L E I K A Á R S I N S
HVAR VERÐUR ÞÚ 10. ÁGÚST?
ÖRFÁIR
MIÐAR
LAUSIR!
„Ég set bara tösku í aftursætið,
hnakk á pallinn á pallbílnum og
vöðlur í skottið og svo keyri ég út
í náttúruna og læt vindinn bera
mig á vit ævintýranna.“
Helgi Björnsson, leikari, tónlistarmaður
og afmælisbarn dagsins.