Fréttablaðið - 27.09.2012, Side 6

Fréttablaðið - 27.09.2012, Side 6
27. september 2012 FIMMTUDAGUR6 F ÍT O N F ÍT O N ÍT / S ÍA / S ÍA 22 3 2 4 3 0 4 33 F I0 F I0 F 999999 5 9 5 9 5 99 5 | borgarleikhus.is Hjóni n Mar grét o g Kris tján, Reyk javíku rvegi 25 4 sýn ingar að eig in val i Áskri ftar- kortið okka r Frá aðeins kr. 59.900 í 7 nætur Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum 29. september í 7 nætur eða 16. október í 10 nætur. Þú bókar flugsæti og gistingu og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Fjölbreytt önnur sértilboð jafnframt í boði. Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Kr. 59.900 - 7 nátta ferð Verð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Stökktu tilboð 29. september í 7 nætur. Kr. 79.900 – 10 nátta ferð Verð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Stökktu tilboð 16. október í 10 nætur. Stökktu til Costa del Sol 29. september eða 16. október RT h ön nu n PO RT h ön nu n Við styðjum þig STOÐ Tekur þú slátur? JÁ 15,1% NEI 84,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú þurft að bíða dögum saman eftir því að komast til þíns heimilislæknis? Segðu skoðun þína á visir.is Það þýðir ekki að það eigi að fara með hörku og skammast yfir því, en það býr auðvitað til spurningu um vanhæfi. MÖRÐUR ÁRNASON SAMFYLKINGUNNI Við þurfum að vinna vel og vandlega að því að byggja aftur upp traust milli okkar og varðanna [Ríkisendurskoðunar] … PÉTUR H. BLÖNDAL SJÁLFSTÆÐISFLOKKI Orðrétt á Alþingi um traust á ríkisendurskoðun STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun nýtur ekki trausts Alþingis, ef marka má ummæli þingmanna í gær. Björn Valur Gíslason, for- maður fjárlaganefndar, segir að ófært sé annað en að lagfæra það trúnaðarrof sem orðið hafi á milli þings og stofnunarinnar. „Það þýðir að þingið og ríkisend- urskoðandi þurfa að fara yfir þetta mál og kanna hvort og þá hvernig þessu verður bjargað, þannig að það ríki aftur traust og góð sam- skipti á milli þingsins og einnar mikilvægustu stofnunar þess.“ Tafir Ríkisendurskoðunar við vinnu á skýrslu um nýtt fjár- hags- og mannauðskerfi ríkisins voru þingmönnum hugleiknar í gær, en Ríkisendurskoðun heyrir beint undir Alþingi. Forsætisnefnd Alþingis tók málið ekki upp á stutt- um fundi sínum í gær, en hann var helgaður rannsóknarnefnd um sparisjóðina. Unnur Brá Konráðsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, situr í nefndinni. Hún segir að fundur í nefndinni sé ekki áætlaður fyrr en eftir viku. Sjálf telur hún að nauð- synlegt sé að fá frekari upplýsing- ar frá ríkisendurskoðanda, áður en rætt sé um trúnaðarbrest. „Ég tel að þegar forsætisnefnd kemur saman verði óskað eftir því að farið verði yfir feril þessa máls.“ Þuríður Backman, sem situr í forsætisnefnd fyrir hönd Vinstri grænna, vildi ekki tjá sig um málið í gær. Það væri stórt og viðkvæmt og þyrfti að skoða vel. Fjármálaráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að ráðuneytið muni fara ítarlega yfir þann kostnað sem fallið hefur Ríkisendurskoðun missir traust þingsins Fjármálaráðuneytið mun fara yfir kostnað við uppsetningu og rekstur fjárhags- og mannauðskerfis. Fjársýsla ríkisins segir það kosta 300 milljónir króna á ári í rekstri. Þingmenn segja að endurheimta verði traust til Ríkisendurskoðunar. ALÞINGI Þingmenn kölluðu eftir skýrsludrögum Ríkisendurskoðunar og fullyrtu að traustið til stofnunarinnar hefði beðið hnekki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði við Kastljós í gær að reynsla Alþingis af Oracle-kerfinu væri mjög slæm. Milljónum hefði verið eytt í innleiðingu þess en kerfið ekki virkað sem skyldi. Að lokum hafi það verið lagt til hliðar og gamla tölvukerfið tekið upp. Sigurþór Guðmundsson er deildarstjóri hjá Vegagerðinni, en stofnunin notar marga hluta kerfisins. „Við höfum haft þetta í notkun nokkur ár og rekum allt okkar bókhald í þessu með ágætis árangri.“ Misjafnar sögur Fjársýsla ríkisins sendi frá sér yfirlýsingu í gær. Í henni segir að alrangt sé, eins og haldið hafi verið fram, að upphafleg fjárveiting upp á 160 milljónir króna árið 2001 hafi verið hugsuð til að kaupa, reka og viðhalda fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins til dagsins í dag. Þær hafi átt að standa undir þarfagreiningu vegna útboðsgagna. „Rekstur kerfisins á níu ára tímabili nemur um 2,8 milljörðum króna eða rúmum 300 milljónum á ári. Þetta nemur að meðaltali rúmlega einni milljón króna á ári fyrir hverja stofnun ríkisins.“ Reksturinn kostar 300 milljónir árlega Síðan þarf Alþingi að velta því fyrir sér hvort sá trúverðugleiki og trúnaður sem þarf að vera á milli Alþingis og Ríkisendurskoðunar er enn þá til staðar. ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON VINTSTRI HREYFINGUNNI – GRÆNU FRAMBOÐI Hver er staða Ríkisendurskoðunar? Af hverju stóð Ríkisendurskoðun svona að málum, hver er trúverðugleiki stofnunarinnar vildi ég sagt hafa og hver er staða hennar heilt yfir …? MAGNÚS ORRI SCHRAM SAMFYLKINGUNNI Þáttur Ríkisendurskoðunar er afar við- kvæmur í þessu máli og alvarlegur í ljósi þess mikla trúnaðarsambands sem þarf að vera á milli Alþingis og Ríkisendurskoðunar til að tryggja að Alþingi ræki sitt eftirlitshlutverk. SKÚLI HELGASON SAMFYLKINGUNNI Eftirlitshlutverk Alþingis er líka mikið umhugsunarefni í þessu því að lögum samkvæmt er Alþingi eini sanni eftirlitsaðilinn með Ríkisendurskoðun. Við hljótum að spyrja okkur núna hvaða áhöld og tæki við höfum raunverulega til að rækja það eftirlitshlutverk. ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR SAMFYLKINGUNNI til vegna fjárfestinga í kerfinu og við rekstur þess, en mikilvægt sé að gera mun á því tvennu. „Jafnframt mun ráðuneytið leggja mat á notkun kerfisins og mögulegar úrbætur, en innleið- ing þess hefur stórlega bætt fjár- hagsupplýsingar ríkisins til bæði stjórnunar og uppgjörs.“ kolbeinn@frettabladid.is VINNUMARKAÐUR Lífeindafræðingar á Land- spítalanum eru orðnir langþreyttir á ára- löngum launalækkunum og krefjast úrbóta. Þetta segir Edda Sóley Óskarsdóttir, tals- maður lífeindafræðinga, en þeir stóðu fyrir samstöðufundi í gær. Helstu kröfur eru annars vegar að stofn- anasamningur við stéttina verði endurskoð- aður, í fyrsta sinn frá árinu 2006. „Svo lögðum við líka fram tillögu um að byrjunarlaun lífeindafræðings, sem eru 260 þúsund á mánuði í dag, hækki um hundrað þúsund. Það er síst of hátt miðað við að í skipulagsbreytingum síðustu ára höfum við tekið á okkur launalækkanir og aukið vinnu- álag sem jafngildir tæpri milljón í tekju- skerðingu á ári,“ segir Edda Sóley. Hún bætir því við að staðan í stéttinni sé orðin váleg. „Unga fólkið flýr og það er engin nýliðun því fólkið vill ekki vinna fyrir þessi skíta- laun allan ársins hring, allan sólarhringinn. Þess vegna er staðan orðin sú að meðalaldur hjá okkur er rúm fimmtíu ár.“ Edda Sóley segir að talsverður kurr hafi komið upp í tengslum við umræðuna um fyrirhugaða launahækkun forstjóra Land- spítalans. „Þegar þetta kom upp varð ákveðin við- horfsbreyting hjá fólki, sem áður hafði unnið út frá því að vera þátttakandi í liði. Þarna fann ráðherra hins vegar fjármuni fyrir einn starfsmann, en þá hlýtur að vera til aðeins fyrir okkur líka. Það er bara eðli- legt og sjálfsagt.“ - þj Lífeindafræðingar á Landspítala óánægðir með lækkun launa og aukið vinnuframlag: Jafngildir milljón í kjaraskerðingu SAMSTAÐA Lífeindafræðingar, sem eitt sinn kölluðust meinatæknar, mótmæltu bágum kjörum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.