Fréttablaðið - 27.09.2012, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 27.09.2012, Blaðsíða 33
| FÓLK | 3 ■ HELGI ÓMARS er tískubloggari á vefsíðunni Trendnet.is. Hann kynnir sig sem ungan ljósmyndara frá Seyðisfirði. Förðunarfræðingur að mennt sem hefur unnið sem fyrirsæta og ljósmyndari víðs vegar um heiminn. Þar að auki er hann fagurkeri, matgæðingur og tónlistar- unnandi. Við fengum Helga til að svara nokkrum laufléttum spurningum. Hvað ert þú að starfa um þessar mundir og hvar? Ég er nýfluttur til Kaupmanna- hafnar, búinn að vera hér í rétt tæplega mánuð. Fór í heljarinnar vinnuleit um leið og ég lenti og endaði með þrjú ágæt störf. Vinn núna í Abercrombie & Fitch, Laundromat og Simons, ásamt því að koma mér á framfæri sem ljósmyndari á þessum nýju slóðum. Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku? Ég hef alltaf verið meðvitaður um í hvaða föt ég fer og alltaf sýnt því áhuga. Tísku- áhuginn kviknaði fyrir alvöru þegar ég byrjaði í menntaskóla og fór að þróa mig áfram í ljósmynduninni. Hvað leggur þú áherslu á þegar þú bloggar? Ég held ég sé enn að finna mig sem tískubloggari. Ég byrjaði nýlega að gera þetta að ákveðnum „lífsstíl“, deila með fólki hverju ég klæðist og hvað mér þykir flott. Mér finnst stórkostlegt að sjá hvað það eru margir strákar sem senda fyrirspurnir og sýna áhuga á því sem ég er að gera. Það drífur mann svo sannarlega áfram. Hvaða hönnuðir eru í uppáhaldi? Ég held að Alexander McQueen og John Galliano séu í uppáhaldi. Mér þykir svo ánægjulegt að skoða myndirnar frá sýn- ingunum og herferðum þeirra. Annars elska ég All Saints, hönnunar-team merkisins er eflaust uppáhaldið mitt þar sem flestar mínar flíkur eru þaðan. Er einhver flík sem þú stenst ekki? Yfir- hafnir, alveg gjörsamlega. Í hvert skipti sem ég labba inn í búð dregst ég alltaf að yfirhöfnunum og á sjálfur ótrúlega mikið af jökkum, kápum og úlpum. Finnst fátt skemmtilegra en að kaupa mér nýja yfirhöfn. Einhver skemmtileg tískuupplifun? Það fyrsta sem poppar upp í höfuðið á mér var þegar ég var búinn að tilkynna vinum og fjölskyldu að ég mundi ekki koma á LungA 2010, þeim til mikilla leiðinda. Þá bjó ég erlendis. Ég var búinn að semja við Arndísi Ey fatahönnuð sem var að sýna nýja línu á LungA um að koma fram. Þegar ég gekk síðan eftir pall- inum kom ég fjölskyldu minni og vinum gjörsamlega á óvart. Það var yndislegt augnablik. Áttu þér uppáhaldsverslanir? All Saints er algjörlega uppáhaldsbúðin mín. Svo get ég nefnt H&M, Cheap Monday, Topman og fleiri. Eyðir þú miklu í föt? Nei, alls ekki. Ég er nískur þegar kemur að fatakaupum. Ég elska útsölur og fatamarkaði. Ég kaupi ekkert nema ég falli gjörsamlega fyrir því og eyði ekki peningum í flíkur sem ég veit að verða ekki mikið notaðar. Hvar verslar þú helst? Ég versla sjaldan á Íslandi. Mér finnst þó gaman að fjár- festa í íslenskri hönnun. Annars safna ég frekar peningum og versla í útlönd- um. elin@365.is TÍSKUBLOGG HELGI ÓMARS TÍSKA Í ÞREMUR STÖRFUM Helgi Ómars býr í Kaup- mannahöfn og er að reyna fyrir sér á nýjum slóðum sem ljósmyndari. ELSKAR ÚTSÖLUR OG FATAMARKAÐI Leikkonan Kelly Osbourne (27 ára) vakti mikla athygli á rauða dreglinum við Emmy-verðlaunaafhendinguna þar sem hún var með dýrasta naglalakk sem sögur fara af. Kjólarnir á hátíðinni vöktu að vonum athygli fjölmiðlamanna en þegar leið á kvöldið var það þó naglalakkið sem stal senunni. Glasið af lakkinu kostar nefnilega um 30 milljónir króna. Naglalakkið er þakið svörtum demöntum og Kelly sagðist vera eina konan sem væri með slík verðmæti á nöglunum þetta kvöld. Það er gullsmiðjan Azature í Los Angeles sem framleiðir naglalakkið. Hinn þekkti stílisti Nicolas Bru á hins vegar heiðurinn af því hvern- ig Kelly var klædd og snyrt fyrir Emmy-hátíðina. MEÐ DEMANTA Í NAGLALAKKI Lepicol Plús örvar meltinguna Lepicol heldur hægðunum í jafnvægi Inniheldur Psyllium husk trefjar ásamt mjólkursýrugerlum. Lepicol Plús inniheldur einnig meltingarenzym. Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Lepicol - fyrir meltinguna Fyrir árshátíðina Við erum á Facebook Ný sending af glæsilegum kjólum í st. 36-48. 20% afsl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.