Fréttablaðið - 16.11.2012, Side 30
4 • LÍFIÐ 16. NÓVEMBER 2012
Í Heimsókn annað kvöld strax að loknum
fréttum Stöðvar 2 bankar Sindri Sindra-
son upp á hjá Guðrúnu Lilju Gunnlaugs-
dóttur hugmyndahönnuði sem býr í
gömlu og fallegu leiguhúsnæði á Ein-
imel í Reykjavík. Hún gefur góð
ráð um hvað hægt sé að gera
þegar engu má breyta.
HUGMYNDAHÖNNUÐUR
HEIMSÓTTUR
Húsið er hlýlegt og fallegt, ekki síst vegna fjölda fallegra og sérstakra muna Guð-
rúnar.
Stofan er hlýleg og í anda Guðrúnar. MYNDIR/VILHELMTakið eftir hversu vel vinnurýmið er skipulagt.
Hugmyndahönnuðurinn festi efri hluta skápsins við borð- stofuborðið til að nýta rýmið betur.
07.00 Klukkan byrjar að hringja og þar sem
ég fór allt of seint að sofa í gær
leyfi ég mér að „snooza“ nokkrum
sinnum. Ég er svo lánsöm að mat-
reiðslumeistarinn hann Þór hallur
Sverrisson, sem er miklu meiri A-
maður en ég, mætir alltaf á réttum
tíma á vaktina og gerir það sem
gera þarf ef svona kemur upp á.
Eftir að hafa tekið lýsið og borðað
góðan morgunverð græja ég tvo
góða kaffibolla, drekk annan strax
og tek hinn með mér í bílinn.
10.00 Ég er mætt í Stórkaup til að sækja sírópið sem
bráðvantar í rúgbrauðs baksturinn
sem er í vændum, en það er ekki
seinna vænna að fara að prófa
sig áfram með brauðið því engin
er síldin án rúgbrauðsins. Þaðan
liggur svo leiðin inn í Grasagarð.
10.30 Allt er komið á full sving í eldhúsinu í Café Flóru
við að útbúa jólasíldarsalatið með
uppbakaðri sósu sem þarf að fá að
ryðja sig vel. Ilmurinn er dásam-
legur. Því næst hringi ég nokkur
símtöl varðandi nýju heimasíðuna
okkar, Cafeflora.is, og spjalla við
nokkra af birgjunum mínum varð-
andi hráefni fyrir jólahlaðborðið.
13.00 Við erum byrjuð að hræra í brauðin sem
þurfa að fá að bakast í nokkra
klukkutíma og svo tökum við Þór-
hallur test á síldarréttunum sem
lofa góðu.
17.00 Ég fer með yfirþjón-inum mínum, honum
Friðriki Atla Sigfússyni, yfir ýmis
mál sem varða borðaskipan fyrir
jólahlaðborðið okkar sem hefst
núna 29. nóvember og því nóg
sem þarf að huga að.
19.00 Eftir að búið er að ganga frá í eld-
húsinu renni ég við í Eymunds-
son við Skólavörðustíg, finn til
vænan bunka af nýjum og spenn-
andi tímaritum, kaupi mér sam-
loku og góðan latte hjá Te og kaffi
og sit svo þar til kl 21.30 og grúska
í öllum þessum endalausu hug-
myndum að skreytingum, mat og
öðru sem viðkemur jólunum. Þetta
er sannkölluð gæðastund.
23.00 Ég sit við tölvuna og er að renna yfir póstinn
minn en planið er að fara ekki of
seint í háttinn í þetta sinn …
Marentza Poulsen
Smurbrauðsjómfrú og
veitingakona á Café Flóru
NÝTT OG ÖFLUGRA
FRÍÐINDAKERFI
Flug með Iceland Express til Parísar 20.–23. sept. fram og til baka með
sköttum og öðrum greiðslum. Aðeins 26.900 kr. Takmarkað sætaframboð.
Skráning á stod2.is/vild
upplifðu haust í parís á ótrúlegu verði
PARÍS
26.900 kr.
Virkjaðu kreditkortið þitt og annarra fjölskyldumeðlima á mínar síður
á www.stod2.is. Ört vaxandi hópur samstarfsaðila. Fylgstu með!