Fréttablaðið - 16.11.2012, Síða 50
16. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR34
Bækur ★★★★ ★
ð ævisaga
Stefán Pálsson, Anton Kaldal
Ágústsson, Gunnar Vilhjálmsson
og Steinar Ingi Farestveit
Crymogea
ð ævisaga er eins og nafnið ber með
sér saga bókstafsins ð, sem eins
og segir í bókinni snýst að miklu
leyti um „mistök og vandræðagang
í samskiptum við fólk sem ekki
notast við þennan óvenjulega bók-
staf og hefur jafnvel ekki hugmynd
um tilvist hans“.
Á kápu er efni bókarinnar lýst
eins og um Hollywood-spennu-
sögu sé að ræða og rætt er um við-
burðaríkt líf ð-sins, fæðingu þess,
dauða og upprisu. Því öllu saman
eru gerð skil í bókinni, í sögu sem
berst heimshorna á milli, á árþús-
unda tímabili.
Höfundar eru fjórir. Þrír þeirra
eru grafískir hönnuðir en sá fjórði
er sagnfræðingur, Stefán Pálsson. Í
bókinni kemur fram að hönnuðirnir
þrír hafa allir rannsakað hver um
sig ákveðin tímabil í þróunar sögu
bókstafsins með tilliti til nútíma
leturhönnunar, og þær rann-
sóknir liggja til grundvallar efni
bókarinnar.
Bókin er ríkulega
mynd skreytt og hönnun-
in er fyrsta flokks. Kápa,
pappír, brot og letur er
allt vandlega valið, og
bókin því mjög eigu-
legur gripur. Þó bókin
sé saga ð-sins, þá er hún
líka saga ýmissa ann-
arra hluta. Hún er saga
prentlistarinnar á Íslandi, hún
er saga leturs og stafrófa. Hún
er líka saga einstakra annarra
stafa eins og þ-sins, zetunnar og
ý-sins. Þetta er einnig saga staðla,
og nútíma stafasetta. Vegir allra
þessara sagna liggja að lokum til
ð-sins, aðalhetju sögunnar, en á
köflum dettur þráð-
urinn niður þegar
aðdragandinn verður
of langur og fær á sig
yfirbragð kennslu-
bókartexta, þó lipur
sé. Skemmtilegar
dæmisögur lífga text-
ann við, t.d. sögurnar
af tungu málinu elf-
d ö l sk u , tó n l i s t a r -
manninum Prince og fótbolta-
manninum Gylfa Sigurðssyni.
Ótal skemmtilegir fróðleiks-
molar eru í bókinni, eins og til
dæmis sögur, eða tilgátur, um þátt
Rasmusar Kristjáns Rask í endur-
vakningu ð-sins inn í íslenskt mál
í byrjun 19. aldarinnar, og sagan af
því þegar Jón Baldvin Hannibals-
son átti í deilum við Tyrki í aðdrag-
anda EES-samningsins, til að halda
íslensku stöfunum í alþjóðlegum
stafatöflum.
Ekki má heldur gleyma hönn-
unarfræðilegum þætti bókarinnar,
en fyrir áhugamenn er gaman að
lesa um sveigjur, beygjur, gegnum-
strik og stungur í stafnum sjálfum,
og annað er snýr að því útlitslega.
Þóroddur Bjarnason
Niðurstaða: Falleg og fróðleg bók og
skemmtileg á köflum, en herslumun-
inn vantar til að hugmyndin gangi
fullkomlega upp.
Saga um vandræðagang
Þrándur Þórarinsson myndlistar-
maður opnar málverkasýninguna
Eintal í Svítunni í Gamla bíói á
laugardag.
Flestar myndirnar á sýning-
unni sækja innblástur í Snorra-
Eddu og eru allar málaðar í
endurreisnarstíl. Æsir og jötnar
koma mikið við sögu og sérstök
sería er um hvarf Iðunnar og
æskuepla hennar.
Þrándur hóf nám við LHÍ árið
2000, hætti þar og fór í læri hjá
norska málaranum Odd Nerdrum
næstu fjögur ár. Þrándur hefur
starfað alfarið við myndlist
síðan 2008 og haldið einkasýn-
ingu árlega frá þeim tíma. Efni-
við verka sinna sækir Þrándur
gjarnan í gömul og þjóðleg stef
og menningararf, svo sem Íslend-
ingasögur og þjóðsögur.
Sýningaropnun á laugardag er
klukkan 17.
Þrándur sýnir
í Gamla bíói
SÝNINGAR Þrándur Þórarinssonar list-
málari á vinnustofu sinni.
Kristinn Sigmundsson og Víking-
ur Heiðar Ólafsson halda tónleika
í Norðurljósasal Hörpu í kvöld.
Tilefnið er
tvö föld útgáfa á
hljóð- og mynd-
diski með upp-
töku af annars
vegar flutningi
þeirra á Vetrar-
ferð Schuberts,
sem fram fór
fyrir fullum
Eldborgarsal
sumarið 2011,
og hins vegar
flutningi þeirra
á sama verki
sem þeir tóku
upp í hljóðveri
síðar sama ár.
Kristinn og
Víkingur flytja
nýja efnisskrá í
kvöld: Dichter-
liebe eftir
Schumann,
valin ljóð eftir Hugo Wolf og
Lieder eines fahrenden Gesellen
eftir Mahler.
Víkingur og
Kristinn fagna
Vetrarferðinni
VÍKINGUR HEIÐAR
ÓLAFSSON
KRISTINN
SIGMUNDSSON