Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 70
| ATVINNA |
DEILDARSTJÓRI FRAMKVÆMDA OG ÞJÓNUSTU
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir að ráða deildarstjóra framkvæmda og þjónustu til starfa sem fyrst.
Starfið heyrir beint undir framkvæmda- og veitustjóra.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri,
í síma 480 1500 á skrifstofutíma.
Umsóknum skal fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsókn þarf að berast fyrir 21. desember n.k. á netfangið jont@arborg.is.
Ábyrgðar og starfssvið:
• Ábyrgð á verkefnastjórnun og verkeftirlit vegna
nýframkvæmda og viðhaldsmála á sviði umhverfis
og gatnakerfis
• Umsjón með rekstri þjónustumiðstöðvar
• Umsjón með sorphirðu og rekstri gámasvæðis
Árborgar
• Umsjón með fráveitu Árborgar
• Ábyrgð á að framkvæmd verkefna sé í samræmi við
lög og reglur
• Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka
• Áætlanagerð og forgangsröðun verkefna
• Samningagerð í samráði við framkvæmda-
og veitustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
• BS-tæknifræði, iðnfræði eða aðra sambærilega
menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af mannahaldi og stýringu verkefna
• Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu
af opinberri stjórnsýslu
• Reynsla af áætlunargerð, úrlausn verkefna og
verkefnastýringu
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
• Þekking á og reynsla af notkun Windows-Office og
CAD-hugbúnaðar
Útkeyrsla og almenn störf, hlutastarf
Starfið felst í útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu, frágangi pantana
o.fl. tilfallandi störf s.s. þrif á bifreið og lager.
Umsækjandi þarf að geta séð um og keyrt sendibifreið fyrirtækisins, vera
reglusamur og stundvís.
Góð laun í boði. Vinnutími er 9-13, eftir atvikum er meiri vinna þannig að
starfshlutfallið getur verið hærra. Meðmæla er óskað og hreins sakavott-
orðs er krafist. Um er að ræða framtíðarstarf. Fyrirtækið er staðsett í 104
Reykjavík. Vinsamlega sendið umsóknir á auglýsingadeild Fréttablaðsins,
netfangið box@frett.is merkt ,,Útkeyrsla“
Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf-og fiskirannsókna
og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda
hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsókna-
stofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö
rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 150 starfsmenn í þjónustu sinni.
Staða aðstoðarforstjóra fjármála hjá Hafrannsókna-
stofnuninni er laus til umsóknar
Aðstoðarforstjórinn skal vera forstjóra til aðstoðar við fjármálalegan rekstur stofnunarinnar, þ. á m. skiparekstur
og starfsmannahald. Hann ber ábyrgð gagnvart forstjóra á að meðferð fjármála hjá stofnuninni fari eftir settum
lögum, reglum og markmiðum stofnunarinnar.
Miðað er við að ráðið verði í stöðuna í mars 2013. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri, sími 575 2000
(margret@hafro.is).
Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar n.k. og skal umsóknum skilað til Hafrannsóknastofnunarinnar,
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík eða á netfang margret@hafro.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og
kynningarbréf þar sem rökstudd er hæfni viðkomandi í starfið og gerð grein fyrir ástæðu umsókna.
Helstu verkefni eru
• Dagleg fjármálastjórn
• Umsjón með áætlanagerð
• Starfsmannahald
• Skiparekstur
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Haldgóð reynsla af fjármálastjórnun
• Þekking og reynsla af áætlanagerð
• Stjórnunarreynsla
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Forstöðumaður bóka- og
héraðsskjalasafns Fjallabyggðar
Leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum forstöðumanni
til að leiða stofnunina. Forstöðumaður sér um flokkun og
skráningar safngagna, daglegan rekstur, starfsmannamál,
skipulag og umsýslu. Hann er jafnframt umsjónarmaður
Listasafns Fjallabyggðar og sér um upplýsingamiðstöð
ferðamála á Siglufirði sem staðsett er í bókasafni.
Starfsstöðvar bóka- og héraðsskjalasafns eru á Siglufirði
og Ólafsfirði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun í bókasafns- og upplýsingafræðum skilyrði
• Reynsla í starfi æskileg
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, skipulagshæfileikar og metnaður í starfi
• Góð kunnátta í íslensku auk kunnáttu í öðru tungumáli
• Góð tölvukunnátta
• Bílpróf
Ráðið er í stöðuna frá og með 1. janúar 2013.
Umsókn skal fylgja yfirlit um nám og störf og berast til
Karítasar Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfull-
trúa, Ólafsvegi 4, Ólafsfirði.
Umsóknarfrestur er til 21.des. nk.
Tengiliðir: Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri,
sigurður@fjallabyggd.is, s. 464 9100 og
Karítas Skarphéðinsdóttir Neff, fræðslu- og menningarfull-
trúi, karitas@fjallabyggd.is, s. 464 9100.
UNO er líflegur ítalskur veitingastaður
við Ingólfstorg, í hjarta borgarinnar.
Matreiðslumaður
þjónar, aðstoð í sal
Leitum að öflugum matreiðslumanni, röskum
þjónum og liprum aðstoðarmanneskjum í sal
– til að gleðja viðskiptavini okkar á UNO.
Vinsamlega sendið ferilskrá
á uno@uno.is
Rannsóknasetur um norðurslóðir
PIPA
R
\TBW
A
SÍA
123657
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns nýs rannsóknaseturs um norðurslóðir sem
ráðgert er að stofna undir Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
Nýja rannsóknarsetrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði
norðurslóðarannsókna með áherslu á hlutverk og stefnu ríkja og stofnana og stjórnarhætti
á norðurslóðum. Það mun starfa við hlið Rannsóknaseturs um smáríki innan vébanda
Alþjóðamálastofnunar. Forstöðumaður þess mun starfa í nánu samstarfi við forstöðumann
Alþjóðamálastofnunar og stjórn stofnunarinnar.
Forstöðumaður Rannsóknaseturs um norðurslóðir – Háskóli Íslands
Nánar um menntunar- og hæfniskröfur á www.starfatorg.is
og www.hi.is/laus_storf.
Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2013.
Nánari upplýsingar veitir Pia Hansson, forstöðumaður
Alþjóðamálastofnunar, í síma 525 5262 eða í tölvupósti ams@hi.is.
sími: 511 1144
8. desember 2012 LAUGARDAGUR8