Fréttablaðið - 08.12.2012, Síða 72
| ATVINNA |
Verkefnastjóri á Ráðgjafarsvið
Ríkiskaup óska eftir að ráða verkefnastjóra í fullt
starf á Ráðgjafarsvið. Starfið er fjölbreytt, spennandi
og krefjandi og felst m.a. í miklum samskiptum við
viðskiptavini fyrirtækisins.
Meðal helstu verkefna eru:
• Ráðgjöf og greining á þörfum og markmiðum fyrir
útboð og innkaup
• Áætlana- og samningsgerð
• Verkefna- og samningsstjórnun
• Fræðsla og miðlun upplýsinga
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun, sem nýtist í starfi
• Krafist er 3-5 ára reynslu af sambærilegum störfum
• Þekking á innkaupum og reynsla af verkefna-
stjórnun er kostur
Leitað er að einstaklingi sem er agaður, sjálfstæður
og nákvæmur í vinnubrögðum, sýnir frumkvæði og
er fær um að tjá sig í ræðu og riti. Tungumálakun-
nátta auk íslensku er að lágmarki enska og eitt
Norðurlandamál.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningum
fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur
Hannesson, forstöðumaður Ráðgjafarsviðs í síma:
530 1417 eða á netfanginu: gudmundur.hannes-
son@rikiskaup.is.
Áhugasamir leggi inn umsókn í afgreiðslu Ríkis-
kaupa eða sendi póst á ofangreint netfang fyrir
21. desember n.k.
Ríkiskaup er þjónustufyrirtæki í fremstu röð þar sem vilji er til
að alltaf séu við störf vel þjálfaðir og hæfir starfsmenn sem
sinna starfi sínu af fagmennsku, alúð og ánægju. Ríkiskaup
eru eftirsóttur vinnustaður fyrir metnaðarfulla einstaklinga
með menntun, reynslu og hæfni til að takast á við áhugaverð
og krefjandi verkefni. Ríkiskaup gera gott fólk betra.
Sérfr. fjár- og áhættustýringar Íbúðalánasjóður Reykjavík 201212/013
Forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ, Alþjóðamálastofnun Reykjavík 201212/012
Ritstjóri HÍ, Háskólaútgáfan Reykjavík 201212/011
Stuðningsfulltrúar Menntaskólinn á Ísafirði Ísafjörður 201212/010
Aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunin Reykjavík 201212/009
Lektor, dósent, prófessor í sálfræði Háskólinn á Akureyri Akureyri 201212/008
Sjúkraliði LSH, bráðaöldrunarlækningadeild Reykjavík 201212/007
Hjúkrunarfræðingur LSH, öldrunarlækningadeild K1 Reykjavík 201212/006
Verkfræðingur, tæknifræðingur Siglingastofnun Íslands Kópavogur 201212/005
Forstjóri Þjóðskrá Íslands Reykjavík 201212/004
Sérfræðingur Innanríkisráðuneytið Reykjavík 201212/003
Raungreinakennari Framhaldsskólinn í A-Skaftafellss. Höfn 201212/002
Verkefnast. á uppl.- og tæknisvið Íbúðalánasjóður Reykjavík 201212/001
Verkefnisstjóri kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnisstjóra kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar laust til
umsóknar. Verkefnisstjórinn starfar með stýrihópi. Hlutverk hans er að vinna að kynjaðri fjárhags- og starfs-
áætlunargerð hjá Reykjavíkurborg og hafa umsjón með fræðslu þar um.
Ábyrgðarsvið
• Fylgir eftir ákvörðunum stýrihópsins.
• Veitir fagsviðum og stofnunum ráðgjöf og aðstoð vegna kyn-
jaðrar fjárhags- og starfsáætlunar.
• Undirbýr fræðslu og fræðsluefni í samvinnu við mann-
réttindaskrifstofu
• Skýrslugjöf
• Samskipti við innlenda og erlenda aðila.
• Starfar með áætlanadeild Fjármálaskrifstofu að fjárhagsáætlun
og fimm ára áætlun að því marki sem hún tengist kynjaðri
fjárhags- og starfsáætlun.
• Gagnavinnsla og umbótavinna vegna kynjaðrar fjárhags-
og starfsáætlunar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Þekking á kynjaðri fjárhags- og starfsáætlunarvinnu æskileg.
• Reynsla af breytingastjórnun æskileg.
• Haldgóð tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi
sem stjórntæki.
• Þekking á starfsemi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar æskileg.
• Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í einu Norður-
landamáli æskileg.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
• Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.
• Þjónustulund og lipurð í samskiptum.
Um er að ræða fullt starf og nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar
um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður með hátt í átta þúsund starfsmenn. Verkefnin eru
afar fjölbreytt og snerta daglegt líf borgarbúa með margvíslegum hætti.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við hlutaðeigandi stéttarfélög. Vakin er athygli á
stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega
samfélag sem borgin er.
Upplýsingar um starfið veitir Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til og með 28. desember nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á
heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik
ÞJÓNUM & BARÞJÓNUM
GRILLMARKAÐURINN ÓSKAR EFTIR
Við á Grillmarkaðnum erum að leita að vönum þjónum í sal
og reyndum barþjónum til að slást í hópinn. Þú verður að
geta unnið vel með öðrum, vera stundvís og 20 ára eða
eldri. Metnaður er af hinu góða og við bjóðum skemmtilegt
vinnuumhverfi og samkeppnishæf laun fyrir rétta fólkið.
Sendu okkur línu á
info@grillmarkadurinn.is
með umsókn og upplýsingum.
LÆKJARGÖTU 2A | 101 REYKJAVÍK | SÍMI 571 7777
Sölumaður fasteigna
Rótgróin, traust og metnaðarfull fasteignasala óskar
eftir sölumanni. Þar sem þóknun er afkastatengd
geta duglegir einstaklingar náð mjög góðum árangri.
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsóknir á
box@frett.is merkt ,,Sölumaður fast-12“
Gæludýr.is óskar eftir:
Starfsmanni í verslun okkar á Korputorgi
Vinnutími mán- fim 15-18:30, föstudag 11-18:30 og aðra hverja
helgi
Umsækjendur þurfa að:
- Hafa reynslu af verslunarstörfum.
- Hafa brennandi áhuga á og vera eigandi gæludýra.
- Hafa metnað í starfi.
- Vera jákvæður og með mjög ríka þjónustulund.
Starfsmanni í útkeyrslu
Vinnutími er alla virka daga frá kl 17.
Umsækjendur þurfa að:
- Vera ratvísir og góðir bílstjórar.
- Hafa brennandi áhuga á og vera eigandi gæludýra.
- Hafa metnað í starfi og vinna vel undir álagi.
- Vera jákvæður og með mjög ríka þjónustulund.
Í boði er skemmtilegt og krefjandi starf þar sem hvatt er til
frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða.
Áhugasamir sendi umsóknir ásamt ferilskrá á inga@gaeludyr.is,.
Nánari upplýsingar um störfin veitir
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, fjármálastjóri í síma 616-9124.
8. desember 2012 LAUGARDAGUR10