Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 96
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 72
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. sæti, 6. aðaltenging, 8. merki, 9.
aum, 11. skst., 12. táknmynd, 14. skýli,
16. í röð, 17. fiskilína, 18. upphaf, 20.
tvíhljóði, 21. engi.
LÓÐRÉTT
1. mælieining, 3. skammstöfun, 4. fugl,
5. sjáðu, 7. kennslubók, 10. ar, 13. til
sauma, 15. innyfli, 16. púka, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. en, 8. hak, 9. sár,
11. no, 12. ímynd, 14. skáli, 16. áb, 17.
lóð, 18. rót, 20. au, 21. akur.
LÓÐRÉTT: 1. desí, 3. eh, 4. sandlóa, 5.
sko, 7. námsbók, 10. ryk, 13. nál, 15.
iður, 16. ára, 19. tu.
Áfram með ykkur!
Mömmu líkar ekki
þegar maturinn
verður kaldur!
Farið þið bara!
Ég er ekki
svangur!
Vektu mig þegar þú kemur
heim, annars verð ég
vakandi í alla nótt af
áhyggjum af þér.
Og yfirmaðurinn
spyr hvers vegna
framleiðnin hefur
minnkað.
Allir starfsmenn
verða að þvo sér um
hendurnar áður en
þeir hefja störf.
Gætu
foreldar mínir
verið
vitlausari?
Allt í lagi, en gangið rólega,
raðið skónum ykkar, verið
kurteis...
...og engin
öskur.
Ókei!
Hei, viltu
slást?JÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!
Jæja, við erum búin að
borða. Megum við fara á leik-
svæðið núna?
Kirkjuferð á aðventu er stór hluti af starfi fjölmargra skóla og leik-
skóla. Þá trítla börn af öllum stærðum
og gerðum í næstu kirkju til að hlusta á
hugvekju, taka þátt í helgihaldi og syngja
sálma. Þetta er gamall og góður siður
sem starfsfólki skólanna og kirkjunnar
finnst bæði hátíðlegur og hlýlegur, jafn-
vel marka upphaf hátíðleika aðventunnar
og jólahaldsins. Því hvað er fallegra en
bænakvak lítilla barna, sálmasöngur
smárra og tærra radda inni í hljóm-
andi kirkjuskipum, æska landsins
að lofsyngja með gleðiraust og
helgum hljóm?
ÞAÐ er bara smávandi sem
tengist þessum sið. Sum börn
eiga ekkert erindi í þessa
kirkjuferð. Ekki vegna þess
að þau séu ekki jafngóð og
gild og hin börnin, enda
telja flestir sem aðhyllast
slíkar kirkjuferðir að öll
börn séu jafngóð í hjart-
anu, heldur vegna þess að
foreldrar þeirra eru ekki
hluti af samfélagi kirkj-
unnar og hafa valið sér
það hlutskipti sjálfir. For-
eldrarnir hafa ýmist aðra
trú eða enga trú og síðar-
nefnda hópnum finnst
jafnvel að börn eigi að
fá að ráða því sjálf hvort
þau tileinka sér boðskap einhverra trúar-
bragða þegar þau hafa vit og þroska til
en ekki þegar þau eru of lítil til að geta
valið sér föt á morgnana, hvað þá lífs-
skoðanir eða fjárhagslegar skuldbind-
ingar. Þessir foreldrar sjá ekki tilgang-
inn með því að fara með börn á staði sem
jafn vandlega eru merktir ákveðnum
lífsskoðunum og kirkjur eru.
ÞAÐ er sjálfsagt ekki hægt að finna
neitt stórkostlega skaðlegt við kirkju-
ferðir skólabarna á aðventu. Í versta falli
fara börnin út með fræ að lífsskoðun sem
alls ekki allir foreldrar telja æskilega
fyrir börnin sín. Í besta falli upplifa þau
einhvers konar frið og fegurð í sálinni
og fara jafnvel að tengja þann frið við
textann í lögunum. En það skiptir bara
engu máli. Trúboð er bannað í skólum og
þeir foreldrar sem telja að kirkjustarf
sé börnum þeirra til góðs hafa fjölmörg
tækifæri til að sinna því utan skólatíma
því í flestum kirkjum er öflugt barna-
starf.
JESÚ sagði: Leyfið börnunum að koma
til mín. Hann sagði ekki: Komiði meððau,
sama hvað foreldrum þeirra finnst! Sjálf-
ur var hann ekki skírður fyrr en hann
var þrítugur. Þeir sem trúa á Jesú segja
að hann sé kærleiksríkur, umburðarlynd-
ur og þolinmóður. Hann getur örugglega
alveg beðið eftir því að börn ákveði sjálf
sem fullorðið fólk að trúa á hann.
Látið börnin koma til mín