Fréttablaðið - 11.02.2013, Síða 17
MÁNUDAGUR 11. febrúar 2013 | SKOÐUN | 17
Síðan Gylfi Magnússon dós-
ent steig inn í stjórnmálin
hefur hann sagt og gert
ýmislegt sem orkar tvímæl-
is. Með því að lesa greinar
og tilvitnanir í þennan fyrr-
verandi ráðherra viðskipta-
og efnahagsmála kemur í
ljós að í mati hans á skuld-
um og byrði þeirra hefur
hann kerfisbundið rangt
fyrir sér.
Um IceSave
Gylfi hélt því fram í júní 2009, eftir
að svokallaðir Svavarssamningar
höfðu komið fram, að Ísland yrði
„Kúba norðursins“ ef samningar
yrðu ekki undirritaðir. Hann sagði
að Íslendingar myndu mála sig út
í horn og aldrei fá lán alþjóðlega
nema gengið yrði frá samningi, þá
og þegar.
Síðan þess hefur ríkissjóður
sótt sér lán alþjóðlega, fyrst einn
milljarð dollara árið 2011 og aftur
sömu fjárhæð árið 2012, þrátt fyrir
að IceSave væri enn ófrágengið.
Eins hefur komið í ljós, eins og hald-
ið var fram strax árið 2009, að kröf-
ur Breta og Hollendinga voru án
lagastoðar og að samningurinn sem
Gylfi vildi samþykkja hefði væntan-
lega valdið greiðslufalli ríkisins.
Um SpKef og Byr
Í apríl 2010 er haft eftir Gylfa: „Ef
ríkið leggur þessum sparisjóðum til
enn meira fé, og þá eru menn frek-
ar að horfa til Sparisjóðsins í Kefla-
vík, yrði það eiginfjárframlag sem
ríkið ætti og gæti selt, þannig að
það væri ekki tapað fé. Við teljum að
það muni ekki reyna á útgjöld ríkis-
ins vegna innistæðutrygginga þann-
ig að þetta er bara spurning um að
leggja til eigið fé í upphafi og fá það
aftur síðar.“
Ríkið endar svo á því að tapa á
þessum tveimur aðgerðum um 50
milljörðum króna.
Um Landsbanka Íslands
Gylfi Magnússon hafði það verk
með höndum að endurreisa Lands-
bankann sem ríkisbanka. Í þeim
samningum við erlenda lánar-
drottna var ákveðið að endur-
greiðslur til þeirra myndu hefjast
árið 2011 af miklum krafti, enda
væri þá kominn góður aðgangur
að lánamörkuðum hjá bankanum.
Eins ákvað Gylfi að taka ekki sér-
staklega út þá áhættu sem var af
gengsibundnum lánum bankans,
heldur lét ríkið taka það eignasafn
yfir, sem síðan rýrnaði stórkostlega
þegar dómar féllu um ólögmæti lán-
anna. Þetta gerði hann þrátt fyrir
að hafa fengið lögfræðiálit sent úr
Seðlabankanum, unnið af Lex, um
ólögmæti lánanna.
Þegar Hæstiréttur dæmdi gengis-
lánin ólögmæt í júní 2010 sagði
Gylfi að það væri „Óásættan legt að
hluti Íslendinga fái lán á vildarkjör-
um“. Kostnaðurinn féll að fullu á
kröfuhafa gömlu bankanna, nema í
tilfelli Landsbankans þar sem Gylfi
hafði látið ríkið taka yfir lánin.
Síðast er það að frétta af Lands-
bankanum að æðsta yfirvald pen-
ingamála á Íslandi, Seðlabanki
Íslands, lýsti áhyggjum í riti sínu
um fjármálastöðugleika sem kom
út í október 2012 að bankinn gæti
greitt af erlendu skuldabréfi sínu
við gamla Landsbankann og áhrif
þeirra greiðslna á gengi íslensku
krónunnar. Landsbankinn hefði
ekki þann gjaldeyri sem þyrfti til
að standa skil á lánum sínum og
það hlýtur að vekja spurningar um
gjaldfærni þjóðarbankans. Slíkur
dómur um fjármálafyrirtæki hefur
ekki sést áður hér á landi og furðu-
legt að FME og stjórn bankans skuli
ekki bregðast við honum.
Um Orkuveitu Reykjavíkur
Gylfi situr fyrir hönd Sam-
fylkingar innar í stjórn Orkuveitu
Reykja víkur. Það fyrirtæki skuldar
meira en 20 sinnum erlendar tekjur
sínar til alþjóðlegra kröfuhafa. Til
að setja hlutina í samhengi þá er
það 5 sinnum meira en eðlilegt og
sjálfbært getur talist. Í ljósi und-
angenginna atburða þyrfti að end-
ursemja við erlenda kröfuhafa en
Gylfi vill þar ekkert aðhaf-
ast. Enda hefur hann marg-
lýst því yfir að skuldir sem
stofnað var til fyrir hrun
skuli greiða, með góðu eða
illu.
Þetta viðmót Gylfa hefur
það í för með sér að búið er
að hækka gjöld til almenn-
ings gríðarlega á síðustu
árum og kjör allra lands-
manna þurfa að líða fyrir
ósjálfbæra gjaldeyris-
söfnun OR á markaði, sem lækk-
ar gengi krónunnar og eykur verð-
bólgu landsins. Rit Seðlabanka
Íslands, um fjármálastöðugleika
frá því í október, fer sérstaklega
yfir ósjálfbæra skuldastöðu OR.
Um erlenda skuldastöðu
Þriðjudaginn 5. febrúar 2013 ræddi
Gylfi Magnússon um erlenda
skuldastöðu þjóðarinnar í viðtali
við RÚV: „Hún er að vísu neikvæð
en hún er litlu verri núna en hún
var fyrir rúmum áratug.“ Og bætti
svo við: „Við erum í þeirri stöðu að
við gætum líklega, miðað við þann
afgang sem hefur verið á viðskipta-
jöfnuði undanfarin ár og hagvöxt,
þá gætum við greitt þetta upp á
innan við 20 árum.“ Þessu hélt Gylfi
líka fram í apríl 2011 þegar hann
var að hvetja landsmenn til að segja
já við IceSave.
Þessar fullyrðingar Gylfa
standast enga skoðun. Fyrir það
fyrsta er skuldastaða þjóðar innar
við útlönd um 1600 milljarðar
króna, eða um 100% af þjóðarfram-
leiðslu eða meira en helmingi verri
en dósentinn heldur fram. Eins er
ekki afgangur af viðskiptum við
útlönd, heldur halli.
Gylfi hefur á þessu falska mati
sínu haldið því fram að nauðasamn-
inga við föllnu bankanna eigi að
klára, en stórslysi var forðað síðasta
haust þegar komið var í veg fyrir
undirritun þeirra.
Mál að linni
Eftir hrun gjaldmiðilsins og bank-
anna höfðu sumir á orði að þátt-
taka háskólamanna hefði ekki verið
næg í að halda hinu rétta til haga.
Þau mál sem rakin eru hér að ofan
þurfa ekki endilega að afsanna þá
kenningu. En þau sýna það að mat
Gylfa Magnússonar er ekkert til að
byggja á.
Kerfi sbundinn misskilningur Gylfa Magnússonar
FJÁRMÁL
Heiðar Már
Guðjónsson
hagfræðingur
➜ Þetta viðmót Gylfa hefur
það í för með sér að búið er
að hækka gjöld til almenn-
ings gríðarlega á síðustu
árum...
5 stjörnu FIT
Innifalið:
• Lokaðir tímar 3x í viku
• Leiðbeiningar um mataræði sem er
sérstaklega samsett til að tryggja
þátttakendum 5 stjörnu árangur
• Hvatning, fróðleikur og hollar og góðar
uppskriftir frá Ágústu Johnson
• Mælingar og vigtun fyrir og eftir
fyrir þær sem vilja
• Dekurkvöld í Blue Lagoon spa
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal
og opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu
- jarðsjávarpotti og gufuböðum
• 10% afsláttur af öllum meðferðum í
Blue Lagoon spa
Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu til að ná
5 stjörnu formi. Hentar jafnt byrjendum sem vönum.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
tímasetningu og skráningu finnur þú á
www.hreyfing.is
Breyttu línunum og tónaðu
líkamann í sitt fegursta form
Við höfum sett saman nýtt æfingakerfi byggt á kerfi
sem hefur slegið rækilega í gegn í New York. Það
sameinar margar ólíkar styrktaræfingar sem móta
og tóna vöðva líkamans á áhrifaríkan hátt.
Æfingarnar eru rólegar, krefjandi og gerðar til að
breyta línum líkamans á kerfisbundinn hátt.
Áhersla er lögð á þægilega tónlist.
Náðu 5
stjörnu formi