Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Síða 1
Stórmerkileg sýning um siglingar og sjávarútveg
Fösludaginn 15. júní sl. var
opnuð stórmerkileg sýning í HA-
HOLTI við Reykjanesbraut. Nafn
sýningarinnar er SAGA SKIP-
ANNA — svipmyndir frá sigling-
um og sjávarútvegi — og eins og
nafnið ber með sér er sýningin
helguð sjósókn og sjávarútvegi.
Á sýningunni eru milli 70 og 80
skipslíkön, stór og smá af eldri sem
SAGA
SKIPANNA
- svipmyndir úr siglingum
og sjávarútvegi.
yngri fleytum. Þá er þar mikill
fjöldi mynda frá sjósókn og af
bátum og skipum. Ýmsir aðrir
munir tengdir sjónum eru þar
einnig til sýnis s.s. sundurtekið
tundurdufl og trollvíraklippurnar
frægu o.fl. o.fl.
Það er Sædýrasafnið í Hafnar-
firði sem að sýningunni stendur og
er það von forráðamanna safnsins
að jafnframt því sem sýningin verði
fólki til ánægju og fróðleiks þá skili
hún safninu einhverjum fjárhags-
legum ábata. Aðgöngumiðaverði
er mjög stillt í hóf og gerir öllum
kleift að njóta þessarar stórmerku
sýningar.
Forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, opnaði sýninguna
formlega og gat þess þá m.a. að
honum fyndist sýningin öll hin
áhugaverðasta og ættu þeir sem
fyrir henni stæðu miklar þakkir
skildar.
Sýningin er eins og áður er sagði
í HÁHOLTI við Reykjanesbraut
og er hún opin alla daga frá kl.
14.00 - 22.00 fram til 8. júli n.k.
43 stúdentar útskrifast — Flensborg slitið 22. maí 1984
Nýstúdentar talið frá vinstri: Steina B. Níelsdóttir, Magnús Tryggvason, Guðbjörg Birna Bragadóttir, Halldóra
Ó. Sigurðardóttir, Lóa María Magnúsdóttir, Petrea Óskarsdóttir, Örn Baldvinsson, Ingibjörg G. Sverrisdóttir,
Halla Magnúsdóttir, Aníta Hannesdóttir, Guðmundur Skúli Hartvigsson, Guðmundur Kr. Sigurðsson, Bergur
Helgason, Jón Viðar Gunnarsson, Kristján Gunnarsson, Björn Freyr Björnsson, Heimir Barðason, Gísli Gísla-
son, Hjördís Rósa Halldórsdóttir, Bjarni Þórhallsson, Eiríkur Páll Jörundsson, Gunnar Þór Halldórsson,
Jóhanna Pétursdóttir, Hjörleifur Jóhannesson, Friðrik Gíslason, Helgi Einarsson, Dagný Sverrisdóttir, Jón
Garðar Hafsteinsson, Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir, Pálína Vagnsdóttir, Jóhann Björnsson, Katrín Jónsdóttir,
Guðríður Svavarsdóttir, Sif Jóhannesdóttir, Guðrún Ómarsdótir, Jóhanna G. Jóhannesdóttir, Guðný K.
Einarsdóttir, Ólöf E.L. Sigurðardóttir, Jónína S. Vilhjálmsdóttir, Maria Ásmundsdóttir, Þorgils Ámundason,
Björg Kristinsdóttir og Þórhalla Guðbjartsdóttir.
Flensborgarskóla var slitið 22.
maí sl. og voru þá brautskráðir 43
stúdentar og þrír nemendur með
öðrum prófum.
Bestum námsárangri náði Steina
Borghildur Níelsdóttir sem lauk
prófi með ágætiseinkunn af tveim-
ur námsbrautum, málabraut og
viðskiptabraut. Steina hafði alls
172 námseiningar, sem eru 39 ein-
ingum umfram það lágmark sem
krafist er til stúdentsprófs. Aðrir
sem luku prófi með ágætiseinkunn
voru Lóa María Magnúsdóttir, sem
brautskráðist frá náttúrufræði-
braut eftir þriggja ára nám í fram-
haldsskóla, og Jón Viðar Gunnars-
son sem brautskráðist af viðskipta-
braut.
Við skólaslitin veitti skólameistari,
Kristján Bersi Ólafsson, 500.
stúdentinum sem útskrifast úr
áfangakerfi skólans sérstakan
minjagrip. Stúdentinn sem varð
þessa heiðurs aðnjótandi er Hall-
dóra Ó. Sigurðarsdóttir.