Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Síða 5

Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Síða 5
FJARÐARPÓSTURINN 5 Ávarp nýstúdents, Lóu Maríu Magnúsdóttur, á 17. júní 19841 Góðir Hafnfirðingar og aðrir þjóðhátíðargestir! í dag eru fjörutíu ár síðan lýð- veldið var stofnað. Á slíkum tíma- mótum fer ekki hjá því, að við lít- um til baka og íhugum þær breyt- ingar sem orðið hafa á íslensku þjóðfélagi þessi fjörutíu ár. Á flest- um sviðum hafa orðið gífurlegar framfarir og velmegunin er mikil. Þó vaknar spurningin: Höfum við gengið til góða götuna fram eftir veg? Er það mikilvægast í lífinu að eiga stórt og glæsilegt einbýlishús, — að minnsta kosti tvo bíla, helst nýja, — litasjónvarp, myndbands- tæki, ,,stereógræjur“, og geta ferðast til útlanda yfir sumarið og í jólaleyfinu? Svona virðist hugsana- hátturinn vera í nútímaþjóðfélagi. Lífsgæðakapphlaup yfirgnæfir allt. Við vinnum og vinnum til þess að fá sem mesta peninga til þess að eyða. Kröfur okkar vaxa og pen- ingaþörfin eykst. Hlutirnir sem við kaupum eiga að gera lífið sem þægilegast og ánægjulegast fyrir okkur. En erum við hamingjusöm, — líður okkur vel? Aukin tíðni sjálfs- víga bendir til að svo sé ekki. Fólk eyðileggur líf sitt með eiturlyfjum og öðrum vímugjöfum í^svo mikl- um mæli að farið er að telja þetta með stærstu vandamálum þjóð- félagsins. Fjallað er um það á sér- stökum þingum og ráðstefnum. Valdamennirnir sitja í glerhúsum sínum og reyna árangurslaust að finna aðferðir til að útrýma vanda- málinu án þess í raun og veru að komast yfir orsakir þess eða leysa það. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er að? Hvað vantar? Ætli nokkur viti það til fullnustu. Einn af mikil- vægustu þáttunum tel ég vera skort á mannlegum samskiptum. Fólk er svo upptekið af því að vinna sér inn peninga og eyða þeim, að mannlegi þátturinn gleymist. Maðurinn er félagsvera og það er honum nauð- synlegt að hafa samskipti við aðra menn. Kennsla í mannlegum sam- skiptum hefur gleymst í hinu flókna skólakerfi okkar. Við kunn- um ekki lengur að hafa samskipti við aðra. Til þess að geta talast við og kynnast nota allt of margir vímu- gjafa til þess að vera ,,eðlilegir“ — en eru þeir það raunverulega? Hvað er til ráða? Jú. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Ef allir færu eftir þessu væru flest vanda- mál úr sögunni, stórvandamál eins og t.d. styrjaldir og glæpir væru úr sögunni, því hver vill láta drepa sig eða stela frá sér? Samskiptavanda- málin væru einnig úr sögunni. Skortur á mannlegum samskipt- um kemur einna verst niður á þeim sem síst skyldi, á þeim sem mest þurfa á umhyggju og aðstoð að halda s.s. börnum, öldruðum og fötluðum. Þarf þetta að vera svona, getum við ekki eitthvað gert til að bæta ástandið? Jú, ef allir taka höndum saman er allt mögu- legt. Förum að ráðum þjóðskálds- ins Einars Benediktssonar, en hann orti: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar, þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð I nœrveru sálar. Svo oft leynist strengur í brjósti sem brast svo biturt andsvar geftð án saka hve iðrar margt lífið eitt augnakast sem aldrei verður tekið til baka. Höfum þetta hugfast, bætum samskiptin og gerum betra þjóð- félag. SIMI 53546 SÖLUTURNINN HRINGBRAUT 14 SÍMI53546 Gos, sælgæti Brauð og kökur Allar mjólkurvörur OPIÐ- Nýlenduvörur Virka daga: frá kl. 9.00 - 23.30 Um helgar: frá kl. 10.00 - 23.30 □□□0! 15-30% afmælisafsláttur á öllum vörum verslunarinnar. REYKJAVIKURVEG 66 222 HAFNARFJ. í B'LA:taski, háta'arar og io«net- ú,varPa-'- At)NVM íseTN'N6 A Ferðaútvarpstæki, Ryksugur, Vídeospólur og kasettur. Sjónvarpsloftnet og FM loftnet á hús. Sjónvarpskapall Rafhlöður, ýmsar gerðir. Stungur og samtengi fyrir sjónvörp o.fl. Radioröst hf. Dalshrauni 13, S. 53181 V J

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.