Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Page 10

Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Page 10
10 FJARÐARPÓSTURINN „Reikna með aö Ijúka ferlinum í mínu gamla félagi" Hvaða hafnfirskur áhugamaður um íþróttir þekkir ekki Andrés Kristjánsson, handboltamanninn úr Haukum? Hann heillaði bæjar- búa og aðra landsmenn með snjöll- um leik ,,á línunni“ og var talinn einn okkar allra besti handbolta- maður áður en hann fór til Svíþjóð- ar fyrir nokkrum árum. Þar sem við vissum að mörgum þykir fengur að fregnum af Andrési og fjöl- skyldu, þeim Sjöfn Haukdsóttur og Kristjáni syni þeirra, brugðum við undir okkur betri fætinum (dekkjunum reyndar) og brennum niður til Eskilstuna sem er um 1 klst. akstur frá Stokkhólmi. Því miður var Sjöfn að fara í vinnuna svo við gátum ekki svo mikið rætt við hana, en náðum þeim mun betra taki á Andrési, sem tók höfð- inglega á móti okkur og sýndi, alveg óvænt, meistaralega hæfni í matreiðslulistinni. En gefum Andrési orðið meðan hann stússar í eldhúsinu, við sitjum í eldhús- króknum vinsæla og látum fara vel um okkur á meðan. „Aðalástæðan fyrir því að við fluttum erlendis var sú að ég ætlaði í áframhaldandi nám, og les nú við Háskólann i Örebro, í „System- vetenskapliga linjen“. Tölvufræði er held ég það íslenska orð sem kemst næst sænsku merkingunni, þó það sé mjög ónákvæmt. En ástæðan fyrir því að við komum til Eskilstuna er að Logi bróðir (bæjarstjóri á Neskaupstað, vina- bæjar Eskilstuna) þekkti til hér og kom mér í samband við handbolta- liðið G.U.I.F. sem ég komst strax á samning hjá. Það er skemmst frá því að segja að það var tekið frábærlega á móti okkur. Félagið hefur staðið við alla samninga með prýði, útvegaði okkur góða íbúð og hefur veitt okkur ýmsa aðra fyrirgreiðslu sem stórlega létti undir með okkur, sér- staklega í byrjun. Við eignuðumst fljótt góða kunningja. Hér eru nokkrar aðrar íslenskar fjölskyldur sem við komumst fljótt í kynni við, og eins höfum við kynnst mörgum Svíum og umgöngumst þá mikið. Ég verð að segja að við þekkjum ekki þá drumbslegu hlið á Svíum sem okkur virðist margir íslend- ingar kvarta yfir. Þetta er hresst og skemmtilegt fólk sem við kunnum mjög vel við. Fyrstu mánuðirnir fóru í að koma sér fyrir, athuga með námið og koma sé inní málið, en við byrj- uðum bæði á því að fara á sænsku- námskeið. Við komum hingað í september en ég var ekki löglegur leikmaður með félaginu fyrr en 1. desember, þannig að við gátum tekið það rólega í byrjun. En ann- ríkið lét ekki á sér standa, leikir og æfingar á fullu og síðan fæddist Kristján í mars þannig að ekki var minna að gera á heimavelli.“ ** * * * * * * * * * * * « ♦ « « « « * * * « * « « * * « * « * *************************** Hafnfirðingar! Munið að hjá okkur er opið allan sólarhringinn. BÍLASTÖÐ HAFNARFJARÐAR Reykjavíkurvegi 58 símar: 5 1 666 • 51667 50888 - 50889 Munið okkar vinsælu nætursölu. % ♦ ♦ * « * ♦ « * ♦ * * « * « * « « « * * * « « * * * « * * * % * **************************** Andrés Kristjánsson í leik með sænska liöinu GUIF. Hvað geturðu sagt okkur um mun á aðstöðu og æfingum hér og heima? „Munurinn er í fyrsta lagi sá að hér eru hvorki meira né minna en fjórar manneskjur í fullu starfi á skrifstofu félagsins, sem sjá um alla starfsemi þess. Æfingar eru fyrr á daginn en heima, yfirleitt kl. fimm eða hálf sex, og allan æfingafatnað og þvi sem fylgir fáum við ókeypis. Það er auglýsing frá framieiðslu- fyrirtækjunum að sjálfsögðu. Læknir kemur á æfingar minnst einu sinni í viku og öll þjónusta við leikmenn er mjög góð. Við gerum ekkert annað en æfa og spila, það er séð um allt annað fyrir okkur. Öll æfingaaðstaða er miklu fjöl- breyttari hér, við getum gengið í laugina, stundað lyftingar og margt fleira. Hver og einn hefur afmarkað verkssvið, þjálfari þarf bara að sjá um þjálfun. Hann þarf ekki að hafa áhyggjur af því að vera vallar- stjóri, mála völlinn, sjá um auglýs- ingasöfnun, leysa deilur og annað eins og vill brenna við heima. Það er sérstakur maður sem sér um bún- inga og það eru fimm menn sem gera ekkert annað en að sjá fyrir ýmsum þörfum leikmanna. Nú, það er svo alltaf læknir viðstaddur alla leiki, sem er mjög mikið örygg- isatriði ef einhver verður fyrir meiðslum“. Sérgrein okkar er huroasmiði Við erum ekki stórir.en þekktir fyrir vandaða vinnu 05 hagkvæm verð. Hafðu sambanck við gerum tilboð og veitum þér allar frekari upplýsingar um glugga- og hurða- smíði. GLUGGA-OG HURÐASMIfXJA SIGURÐAR BJARNASONAR Dalshrauni 17, HafnarfirÖi, simi-53284.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.