Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Blaðsíða 12

Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Blaðsíða 12
12 FJAROARPÓSTURINN —ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR— Myndarlega staöiö að uppbyggingu á FH-svæðinu í Kaplakrika Albert Guðmundsson og Árni Grétar Finnsson hafa komið síðustu pall- einingunni fyrir. Á milli þeirra stendur formaður FH, Bergþór Jónsson. Laugardaginn 16. maí sl. bauð stjórn FH til sín gestum í tilefni þess að búningsaðstaða félagsins við grasvöllinn og hluti stúkunnar eru nú fokheld. Til þessa ,,reisugillis“ var boðið ráðherrum, bæjarstjórn- armönnum, byggingameisturum og ýmsum öðrum sem með einum eða öðrum hætti tengjast þessum byggingarframkvæmdum. Þórður Sverrisson, stjórnar- maður og Bergþór Jónsson, for- maður FH ávörpuðu gesti og röktu framgang framkvæmda á Kapla- krikasvæðinu. Nokkrir forráðamenn FH, glaðir á góðri stund. Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra og Árni Grétar Finnsson, forseti bæjarstjórnar, urðu þess heiðurs aðnjótandi að koma fyrir síðustu palleiningunni í þeim hluta stúkunnar sem uppsteyptur er. FH-konur sáu um glæsilegar veitingar sem menn neyttu með góðri lyst. Fjarðarpósturinn óskar FH- ingum til hamingju með þennan áfanga og árnar þeim heilla í fram- tíðinni. Körfuboltaskóli HAUKA 20.-26. ágúst Körfuknattleiksdeild Hauka verður í ágúst með körfuboltaskóla fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 7 til 9 ára (yngri flokkur) og 10 til 12 ára (eldri flokkur). Kennslan fer fram í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Farið verður yfir helstu undir- stöðuatriði körfuknattleiksins og leikið á „minni körfu“. Þá verður boðið upp á körfuknattleiksmyndir af myndböndum og jafnframt munu þekktir körfuknattleiks- menn og þjálfarar koma í heim- sókn. Námskeiðið verður sem hér segir: Mánudaginn 20. ágúst verður innritað og byrjað. Verð fyrir nám- skeiðið er kr. 200.-. Stendur nám- skeiðið síðan út vikuna. Sunnudaginn 26. ágúst cndar námskeiðið með móti fyrir þátttak- endur o.fl. Kennari verður Ingvar S. Jónsson, íþróttakennari og þjá/fari. undirbúningur hafinn fyrir næsta vetur 3L Einar. Webster. Haukar hafa nú gengið frá ráðn- ingu Einars Bollasonar sem þjálf- ara í körfunni næsta vetur. Þó skipulagðar æfingar séu ekki hafnar þá hafa Haukarnir haldið Hafnfirðingar • Nágrannar Viö erum meö vélastillingar, hleöslu- og startaraviógerðir, auk allra almennra viögeróa. Reynið viðskiptin, ódýr, fljót og góð þjónusta. Vönduð vinna vanir menn. BÍLASTILLING SOS HF.^ REYKJAVÍKURVEGI64 - HAFNARFIRÐI SIMI 54318 NAFNNÚMKR 1109-0834 sér í fullu formi og „leikið sér“ tvisvar í viku til þess að vera til- búnir í slaginn næsta vetur. í raðir þeirra bætist nú Dakarsta Webster sem hefur fengið íslenskan ríkis- borgararétt og fer nú að fara um hin liðin í deildinni. Ekki er að efa að Haukar stefna á toppsæti úr- valsdeildarinnar og það verður enginn svikirin af að fylgjast með úrvalsdeildinni næsta ár. Þá hefur Ingvar S. Jónson tekið að sér þjálfun og umsjón með yngri flokkum Hauka í körfubolta. Það er því vel séð fyrir þjálfun hjá Haukum og sannarlega verður gaman að fylgjast með gengi Haukanna í körfunni næsta vetur. % ..i 4 * »*• V* f VjS «• VIÐ SPORUM ÞÉR SRORIN Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur nú tekið upp verslun með erlendan gjaldeyri í afgreiðslu sinni við Strandgötu. Fyrst í stað nær gjaldeyrisþjónustan til Ferðamannagjaldeyris, námsmannagjaldeyris og innlendra gjaldeyrisreikninga. Gjaldeyrisviðskiptin eru enn einn þátturinn í vaxandi þjónustu sparisjóðsins við viðskiptavini sína. Öll viðskipti á einum stað spara tíma, ferðir og fyrirhöfn. n Sparisjóðurinn sér um sína. 5PARI5JÚÐUR HAFNARFJARÐAR STRANDGÖTU 8—10 - Q 54000 VISA ISLAND

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.