Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Blaðsíða 16
Slökkviliðsstjóri með góðum gestum.
HAFNARFJARÐARDAGUR
FMRDflR
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að efna áriega til
svonefnds Hafnarfjarðardags, en á
þeim degi skal kynna einhverjar af
stofnunum bæjarins fyrir almenn-
ingi.
Þ. 5. júní sl. voru Slökkvilið
Hafnarfjarðar og Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar kynnt bæjarbúum.
Á Slökkvistöðinni voru tæki og
búnaður Iiðsins til sýnis og starf-
semin kynnt í máli og myndum. Þá
notuðu slökkviliðsmenn tækifærið
og sýndu kvikmynd um eldvarnir
og kenndu meðferð handslökkvi-
tækja.
Fiskiðjuver Bæjarútgerðarinnar
var einnig opið almenningi. Sýndar
voru kvikmyndir um fiskvinnslu og
starfsemi frystihúsa, gengið var
undir leiðsögn um vinnslusali fyrir-
tækisins og fylgst með vinnslu. í
matsal fyrirtækisins voru fram-
reiddir ótal gómsætir sjávarréttir
sem gestkomandi gafst kostur á að
bragða og jafnvel taka með sér
heim í formi uppskrifta.
Það verður ekki annað sagt en að
kynning þessara fyrirtækja hafi
tekist vel og verið forsvarsmönnum
þeirra og starfsfólki til mikils
sóma.
í Bæjarútgerðinni á Hafnarfjarðardegi.
BÆJARMALA
Lpunktar
* Bæjarráð hefur samþykkt að
tekin verði upp tímabundin
gangbrautarvarsla á mótum
Reykjanesbrautar og Flata-
hrauns vegna íþróttanámskeiða
í Kaplakrika.
* Bæjarráð hefur óskað eftir því
við skipulagsnefnd, að hún
hraði vinnu við afmörkum lóð-
ar og aðkomuleiða við Hauka-
húsið, þannig að af afhendingu
eignarhluta bæjarins í Hauka-
húsinu geti orðið, sbr. sam-
þykkt bæjarstjórnar frá 13.
mars sl.
* Á fundi bæjarstjórnar þ. 19.
þ.m. var felld á jöfnum atkvæð-
um tillaga um að bæjarstjórn
heimili fyrir sitt leyti Gylfa
Norðdal og Haraldi Hansen að
reka knattborðsstofu (billjard) í
SNÓKER að Hjallahrauni 13.
Atkvæði féllu á þann veg í
bæjarstjórn að 4 greiddu
atkvæði með tillögunni 4 voru á
móti og 3 sátu hjá.
Með atkvæðagreiðslu þessari
virðist það vera yfirlýstur vilji
bæjarstjórnar að umræddum
aðiljum verði endanlega óheim-
ill rekstur knattborðsstofu og/
eða leiktækjasalur í SNÓKER.
* Úr fundargerð rafveitustjórn-
ar frá 7. maí sl.:
„Rafveitustjóri skýrði frá
nauðsyn þess að ráða álesara í
veikindaforföllum Helga
Enokssonar, sem verður frá
vinnu um nokkurra mánaða
skeið.
Rafveitustjóra var falið að
leysa málið fyrst um sinn.“
Já, það er ekki fátt sem menn
taka sér fyrir hendur.
* Á fundi bæjarstjórnar þ. 19.
júní sl. kvaddi bæjarritari
bæjarstjórn með stuttu ávarpi,
en hann lætur nú af störfum hjá
bænum eftir 15 ára samfellt
starf.
í ávarpi Guðbjörns kom m.a.
fram að á ferli sínum hefur
hann á fundum bæjarráðs og
bæjarstjórnar skrifað 9200
blaðsíður í fundargerðarbækur
þessara aðilja. Eins kom fram á
þessum 15 árum jafngilti sá tími
sem hann hefur setið fundi
bæjarráðs og bæjarstjórnar 3
árum samfellt (8 st. á dag).
Forseti bæjarstjórnar, Árni
Grétar Finnsson, þakkaði Guð-
birni frábær störf í þágu bæjar-
félagsins og árnaði honum og
fjöiskyldu hans alls velfarnað-
ar.
EINA SERVERSLUNINIHAFNARFIRÐI
MEÐ LJÓSMYNDAVÖRUR
ndavörurog
rammar í úrvali
larþjónusta samdægurs
LJÓSMYNDAVERSLUN n Am Jimil] T
REYKJAVIKURVEGI 64
220 HAFNARFIRÐI - SÍMI 54710