Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Blaðsíða 6
6
FJARDARPÓSTURINN
vegleg peningagjöf
Aðalheiður Pétursdóttir gefur
Hringnum peninga-
gjöf til minningar um Þórunni systur sína.
í vetur barst Kvenfélaginu
Hringnum í Hafnarfirði peninga-
gjöf aö upphæð 50 þús. kr. frá
Aöalheiði Pétursdóttur. Aðalheiður
gaf peningana til ininningar um
systur sína, Þórunni Pétursdóttur
sjúkraþjálfara en luin heföi oröið
áttræð 10. mars sl. Þórunn arf-
leiddi Hringinn að peningaupp-
hæð, sem nota átti í þágu vangef-
inna harna. Var þá stofnaður
Þórunnarsjóður og hefur Kven-
félagið gefiö fé úr þessum sjóði til
hjálpar börnum og vangefnum. Nú
síðast voru sambýlinu að Kletta-
lirauni færðar 35 þús. kr. Pening-
arnir sem Aðalheiður gaf runnu í
þennan sjóð. Þórunn var flestum
Hafnfirðingum að góðu kunn en
hún rak nuddstofu hér i Hafnar-
firði um 30 ára skeið. Þær systur
Þórunn og Aðalheiður bjuggu hér
um árabil og síðast að Alfaskeiði 40
eöa þar til Þórunn lést árið 1978.
Eftir það flutti Aðalheiður til
Reykjavíkur og býr ein í eigin íbúð
að Skipholti 51 þó hún sé orðin 85
ára gömul.
Aðalheiður Pétursdóttir
Við slógumst í för með tveimur
Hringskonum þeim Huldu Sigurð-
ardóttur, formanni Hringsins og
Þórdísi Albcrtsson er þær færðu
Aðulhciði þakkir fyrir þessa höfð-
inglegu gjöf.
Aðalheiður ber aldurinn vel og
þrátt fyrir smá lasleika síðustu daga
tók hún á móti okkur með hlöðnu
veisluboröi. Aðalheiður varð fús-
lega við þeirri beiðni okkar að segja
í stuttu máli frá lífi og starfi þeirra
systra og þá aðallega árunum þeirra
hér í Hafnarfirði.
„Við erum fæddar í Ólafsvík en
fluttum fljótlega til Grundarfjarð-
ar og ólumst þar upp. Eftir að við
fluttum suður vann ég á ýmsum
stöðum og þá helst störf sem fólust
í því að hlúa að fólki. Ég vann lengi
hjá Líkn, fór þá í hús og aðstoðaði
ef um veikindi var að ræða eða
meðan kona lá á sæng. Einu sinni
var sagt um mig að ég væri brot úr
hjúkrunarkonu og það þótti mér
vænt um. í þessu starfi kynntist ég
mörgu góðu fólki. Ég gerðist líka
ráðskona, var í nær 5 ár hjá Sturlu
Jónssyni, kaupmanni, sem bjó á
Laufásveginum.
Þórunn dvaldi á þessum árum í
Englandi. Þar lærði hún sjúkra-
nudd og vann sem sjúkraþjálfari í
London allt stríðið. Alls var hún í
Englandi rúm 11 ár og allan þann
tima bjó hún að mestu hjá enskum
hjónum sem hún hafði kynnst hér
heima gegnum Þorleif Þórðarson,
forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins.
Þessi hjón voru barnlaus en reynd-
ust Þórunni eins og hún væri dóttir
þeirra.
Eftir heimkomuna keypti
Þórunn fljótlega nuddstofuna og
við fluttum báðar í Fjörðinn. Fyrst
bjuggum við að Sunnuvegi 6 en
keyptum seinna hæð á Álfaskeiði
40 og bjuggum þar þangað til
Þórunn dó 1978 en þá flutti ég til
Reykjavíkur. Ég sé alltaf eftir því að
hafa flutt úr Firðinum. Þar hefði ég
átt að vera áfram.
Flest öll árin mín í Hafnarfirði
vann ég á Sólvangi. Ég byrjaði þar
áður en Sólvangur tók til starfa sem
elliheimili, í fyrstu aðallega við
saumaskap, saumaði rúmfatnað,
gardínur o.fl. Eftir að sjúklingar
komu inn á heimilið aðstoðaði ég
yfirhjúkrunarkonuna þangað til
hún fékk lærða hjúkrunarkonu. Þá
vann ég við ljósaböðin og mynda-
tökur þegar farið var að taka
röntgenmyndir á Sólvangi. Ég held
að árin mín þar hafi í allt orðið 27.
Eins og áður hefur komið fram
keypti Þórunn nuddstofu hér í
Hafnarfirði og þar starfaði hún í
um það bil 30 ár eða alveg fram á
sinn síðasta dag þrátt fyrir erfið
veikindi seinustu árin. Þórunn
hafði áhuga á öllum sem áttu bágt,
bæði mönnum og málleysingjum
og sérstaklega bar hún hag þeirra
barna, sem áttu við erfiðleika að
búa, fyrir brjósti.
Þórunn gekk snemma í Hringinn
og má segja að hún hafi verið
Hringskona af lífi og sál. Hún
gegndi þar mörgum trúnaðarstörf-
um og var m.a. lengi gjaldkeri, og
ekki lét hún veikindi sín aftra sér frá
því að starfa með þeim Hrings-
konum.
Mér þykir vænt um að geta eflt
þennan sjóð til styrktar vangefnum
börnum en Þórunn var búin að
ræða mikið um að gefa peninga í
þágu barna og því fannst mér ég
best minnast áttræðisafmælis
hennar með þessari peningagjöfí1
Margt fleira kom fram í viötalinu
við Aðalheiði, inargt sem gaman
hefði verið að gera skil en veröur að
bíða betri tíma.
Orðsending til
rafmagnsnotenda
Þegar álesari er í álestraryfirferð og kemst ekki
inn í hús til að lesa á rafmagnsmæla, skilur
hann eftir grænt spjald, með beiðni til notenda
um að lesa á mælinn eða mælana og koma
álestri til rafveitunnar.
Vinsamlegast bregðist vel við þessari beiðni og
sendið rafveitunni álesturinn strax, annað
hvort með græna spjaldinu eða símleiðis, svo
að ekki þurfi að áætla rafmagnsnotkunina á
næsta reikningi.
Með bestu kveðju
Rafveita Hafnarfjarðar
SNYRTISTOFAN
ANDUTSBÖÐ • HÚÐHREINSANIR
• FÓTAAÐGERÐIR • VAXMEÐFERÐIR
• HANDSNYRTING • UTANIR
•FÖRÐUN
Opnunartími:
Kl. 13 - 18 mánudaga ■ HULDA '■ BENEDIKTSDÓTTIR
föstudaga „ snyrtifræðingur
M Klausturhvammi 15 2r 65 19 39
Kl. 9 - 13 laugardaga