Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Side 10

Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Side 10
10 FJARÐARPÓSTURINN 270 imglingar í vinnuskólanum Rætt við mgvar viktorsson, for- stöðumann um starfsemi skólans Jóhann Morávek skipuleggur daginn með sinum hópi. Það verður gaman að fylgjast með „hljóðmúrnum“ eftir að unglingar Vinnuskólanum hafa farið um hann höndum. Þáttur vinnuskólans í fegrun bæjarins er ákaflega mikill. Það er ekki síst þeim unglingum sem þar eru að þakka hve miklum stakka- skiptum Hafnarfjörður og nánasta umhverfi hefur tekið undanfarin ár. Ingvar Viktorsson hefur verið forstöðumaður Vinnuskólans síð- ustu árin. Við fórum með honum hringferð um bæinn og fengum hann til þess að segja okkur frá starfsemi Vinnuskólans í sumar. Umsvifin aukast. „Það má segja að starfsemin sé í nokkuð föstum skorðum, en umsvifin eru þó alltaf að aukast. Við erum með um 270 unglinga í um 20 hópum. Lögð er áhersla á að ekki séu fleiri en 10 - 12 í hóp. Fyrir hverjum hópi er flokksstjóri. Hann verður að vera orðinn tvítugur og búsettur í Hafnarfirði. Af þessum 270 unglingum eru nokkrir á leik- völlum þæjarins og annast þar gæslu undir umsjón þeirra sem þar starfa. Þá eru einnig hópar að störfum hjá hinum ýmsu félaga- samtökum í bænum. Fjölbreytt starfsemi. Starfsemin í sumar verður mjög fjölbreytt. Margir hópar verða í hreinsun bæjarins og bæjarlands- ins. Það er með ólíkindum hve mikið drasl safnast upp árlega. Það skiptir mörgum tonnum. Einn skemmtilegasti þáttur Vinnuskól- ans er aðstoð við öryrkja og ellilíf- eyrisþega. Hópar sjá um að slá blettinn og hirða fyrir fólkið og hefur þetta verið mjög vel þegin þjónusta og oft endað með stór- veislu fyrir unglingana. Ýmis félagasamtök hafa fengið aðstoð hjá okkur eins og áður sagði. Við lánum þeim hópa ef á þarf að halda endurgjaldslaust. Nú, einn hópur byrjar sína vinnu klukkan 6 á morgnana. Sá hópur sér um að miðbærinn sé sæmilega hreinn þegar þæjarbúar fara almennt á stjá. Ingvar ásamt Magnúsi Baldurssyni, aðstoðarmanni sínum. Það kennir margra grasa í draslinu. Hér er Edda Arnbjörnsdóttir og hennar hópur með „sýnishorn“. Gott félagslíf. Félagslegi þátturinn gleymist ekki. Á timabilinu sem Vinnuskól- inn starfar fer hver hópur einu sinni í útilegu með flokksstjóra sínum. Aðra hvora helgi er dansleikur og í lokin er alltaf mikið um að vera hjá okkur eins og flestir bæjarbúar vita nú orðið. Samstarf er að hefjast við vinnuskóla í nágrannabyggðar- lögunum. Rætt hefur verið um sameiginlegt mót og fleira í þeim dúr. Gott samstarf við marga aðila. Ég vil sérstaklega nefna Kristján Gunnarsson, garðyrkjufræðing bæjarins. Hann er okkar lífakkeri ef svo má segja. Hann leiðbeinir flokksstjórum um rétt vinnubrögð og við skipuleggjum ýmis verkefni í samráði við hann. Þá hefur sam- starfið við starfsmenn áhaldahúss- ins gengið sérstaklega vel og þeir verið okkur mjög innan handar. í skógræktinni er alltaf hópur og Ólafur Vilhjálmsson, sem þar ræður ríkjum hefur verið óþreyt- andi að segja unga fólkinu til í gróðurstörfunum. Margir flokksstjórar ár eftir ár. Þar sem hver hópur er nokkuð sjálfstæð eining, er mjög vandað til flokksstjóra. Margir þeirra eru búnir að vera nokkur ár hjá vinnu- skólanum. Við Magnús Baldurs- son, sem er mín hægri hönd, höldum reglulega fundi með flokksstjórunum, þar sem verkefn- in eru rædd og einnig ýmis vanda- mál sem upp kunna að koma. Þetta er mjög samhentur hópur, sem lært hefur að vinna vel saman og flestir með mikla reynslu við verkstjórn, þó margir séu ungir að árum. Laun hækkuð. Nú eru um 60 - 70 fleiri unglingar en í fyrra. Þar munar mestu held ég, að launin voru hækkuð töluvert frá því í fyrra. Nú fá unglingar fæddir 1971 80,80 kr. á tímann en þeir sem fæddireru 1972 fá 71,30 kr. Þettaer svipað og er í nágrannabyggðar- lögunum. Þetta hefur tvímælalaust skapað meiri virðingu hjá ungling- um fyrir vinnunni og þeir leggja sig betur fram. Þar sem tæplega 300 unglingar starfa við hin marvíslegustu verk- efni er mikils um vert að vel sé á málum haldið. Vinnuskóli Hafnar- fjarðar er til mikillar fyrirmyndar og verkin sýna merkin. Hér fer saman uppeldi og athöfn og bæjar- búar allir njóta góðs af. Því fé er sannarlega ekki illa varið sem veitt er til uppbyggingar og starfsemi Vinnuskólans. Þess sér sannarlega víða stað í Hafnarfirði.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.