Fjarðarpósturinn - 26.10.1988, Blaðsíða 4
HflRDflR
ptsturmn
RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRlÐA PROPPÉ
AUGLÝSINGAR: HJÖRDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR
DREIFING: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR: FJARÐARPÓSTURINN OG RÓBERT ÁGÚSTSSON
SETNING, UMBROT, FILMUVINNA OG PRENTUN: BORGARPRENT
ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ REYKJAVÍKURVEGI 72 OG ER OPIN ALLA VIRKA
DAGA FRÁ KL. 10-17. SÍMAR 651745 OG 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN SKRIFSTOFU).
Hlutverk Fjarðarpóstsins
Aö marggefnu tilefni verður hér aöeins drepiö á meginatriði rit-
stjórnarstefnu Fjarðarpóstsins, en blaöið sér sig knúiö til að rifja þetta
upp.
Þeir sem fylgst hafa meö útgáfu bæjarmálablaðanna, sem nú teljast
tvö, síðustu mánuði, sjáfljótlegareginmun. Fjarðarpósturinn erseldur
en hinu er dreift frítt, jafnvel einnig utan Hafnarfjarðar. Fjarðarpóstur-
inn hefur ekki þá vinnureglu að safna fyrst auglýsingum og nota síðan
það pláss sem eftir er undir efni. Efnið hefur forgang, en því er ekki að
neita að rýrnandi auglýsingar í versnandi tíð verslunarinnar í Firðin-
um hafa gert fjárhagsdæmið erfitt. - Blaðið kemur þó enn út og má þar
þakka sívaxandi sölu þess. Með enn aukinni sölu verður því þörfin fyr-
ir auglýsingar minni og plássið fyrir efni meira. Blaðið kemur út viku-
lega, hvern miðvikudag, og mun gera á meðan stætt er.
Fjarðarpósturinn sér enn ekki ástæðu til að vekja hylli auglýsenda
með málamyndadreifingu utan bæjarmarkanna og enn síður til að
standa í viðskiptum um dreifingu allskyns auglýsingabæklinga, enda
fá bæjarbúar áreiðanlega nóg af slíkum sneplum þess utan. - Póst-
áskrift til fólks sem á uppruna eða ættingja í Firðinum og búsett er um
allt land, eykst þó með hverri vikunni og mun blaðið leggja rækt við þá
utanbæjardreifingu.
Fjárhagsgrundvöll byggir blaðið sem sagt á því að það seljist vegna
efnisinnihalds þess en ekki á margbreytilegum sölusamningum, áður
en að vinnslu frétta og greina er komið. Blaðið þarf þó einnig á auglýs-
ingum að halda, ef það á að geta haldið starfsfólk til að sinna sínu hlut-
verki og þar hefur vissulega þrengt að, eins og hjá öðrum þjónustufyr-
irtækjum í bænum.
Hlutverk og ritstjórnarstefna Fjarðarpóstsins er að miðla upplýsing-
um til bæjarbúa og þjóna einstaklingum og hinum ýmsu félögum og
félagasamtökum um allt það sem Hafnfirðinga og Hafnarfjörð varðar.
Þá lítur blaðið á það sem eitt af sínum meginhlutverkum að upplýsa
almenning um hvað kjörnir fulltrúar þeirra við stjórnun bæjarfélagsins
aðhafast, hvernig þeir þjóna bæjarbúum og fara með hagsmuni þeirra
og fé.
Þetta kann að valda ráðamönnum bæjarfélagsins „vandræðum",
eins og sannast hefur áþreifanlega nýverið. - Væntanlega er ástæðan
sú, aö þeir hafa vanist því að enginn væri að skipta sér af gjörðum
þeirra, nema þá einstaka maður með sín persónulegu mál. Þetta sýnir
best og sannar þörfina fyrir upplýsingamiðil eins og Fjarðarpóstinn.
Bæjarstjóri, Guðmundur Árni Stefánsson, sagði á bæjarstjórnar-
fundi í gær, að halda þyrfti enn nýjan „friðarfund" nefnda bæjarins um
byggingarmála og skipulagsmál, ásamt embættismönnum sem um
þessi mál fjalla, bæjarfulltrúum og öðrum sem málin varða til að:
„Taka gasið úr þeirri flösku", eins og hann orðaði það. Hann tók gasið
vonandi úr sinni flösku á baksíðu Hafnfirska fréttablaðsins í síðustu
viku. Því miður hafði hann ekki „nennu", eins og hann orðaði það, til
málefnalegrar umfjöllunar.
Það skal tekið hérfram að Fjarðarpósturinn hefurekki „nennu“ til að
svara persónulegu skítkasti, en varðandi þann lið að Fjarðarpósturinn
sé málpípa minnihlutans, þá er skýringarinnar líklegast að leita í því,
að minnihluti bæjarstjórnar hefur steinsofið í hlutverki sínu. Þess
vegna eru frásagnir Fjarðarpóstsins af einföldum staðreyndum um
stöðu mála álitnar árásir á friðhelgi „einkalífs" meirihlutans til að
ráðskast með vald sitt.
Fjarðarpósturinn mun halda sinni stefnu, hvað svo sem þeirflokkar
heita sem eru í meirihluta eða minnihluta i bæjarstjórn. Það kemur
blaðinu hreint ekkert við. Fjarðarpósturinn mun einnig láta gott heita,
þó honum sé kennt um öll þau ófriðarbál sem fengið hafa að fara leynt
fyrir almennum bæjarbúum, en koma nú fyrst fyrir þeirra sjónir. Það
má efna til eins margra „friðarfunda" og bæjarstjórninni sýnist með
þeim inngangi að allt sé þetta Fjarðarpóstinum að kenna - bara ef
þeim, sem bæjaryfirvöld eiga að þjóna, er ekki meinaður aðgangur að
þeim upplýsingum sem hlutverk bæjarmálablaðs er að miðla.
„Hver gerir slíka áætlun“
- Fjárhagsstaöan er enn þá „afspymusteik“ sagii bæjarstjóri m.a. á bæjarstjómarfundi í gær.
Staða fjármála bæjarsjóðs tók stóran hluta umræðutíma bæjar-
stjórnar á fundi hennar í gær, en þar lá fyrir skýrsla endurskoðanda
bæjarsjóðs fyrir bráðabirgðauppgjör fyrstu níu mánuði ársins. Bæjar-
endurskoðandi gerir ákveðnar athugasemdir við marga liði uppgjörs-
ins og sérstaklega finnur hann að því, hversu margir liðir í fjárfesting-
um hafa farið úr böndum. Bæjarstjóri, Guðmundur Árni, sagði m.a. í
svörum sínum, að þrátt fyrir þetta væri staða bæjarsjóðs „afspyrnu-
sterk“ og hann sagði einnig, að niðurstaða bæjarsjóðs í árslok yrði
réttu megin við núllið, án þess að farið yrði í stórfelldar lántökur.
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjörinu eru gjöld umfram tekjur
kr. 58,6 millj. kr., en fjárhags-
áætlun gerði ráð fyrir að tekjur
yrðu 66 þúsund umfram gjöld.
Bæjarfulltrúarnir Árni Grétar
Finnsson, Jóhann Bergþórsson og
Sólveig Ágústsdóttir, ræddu um
skýrslu bæjarendurskoðanda og
bentu á ýmislegt sem þar kemur
fram og kröfðust skýringa á öðr-
um liðum. M.a. bentu bæjarfull-
trúarnir á, að alvarlegast í máli
þessu væri, að innheimta gjalda
hefði á sama tíma aldrei verið
betri, ennfremur hefði bæjarfé-
laginu áskotnast umtalsverðar
tekjur, sem ekki var reiknað meö
í fjárhagsáætlun. Sólveig Ágústs-
dóttir sagði m.a. varðandi niður-
stöðurnar, að hún sæi alls enga
ástæðu til að eyða þeim gífurlega
tíma sem varið væri við gerð fjár-
hagsáætlana, þegar á engan hátt
væri farið eftir þeim.
Varðandi Engidalsskóla kemur
fram, að kostnaður við stækkun
hans var áætlaður kr. 15 millj. kr.,
en kominn í rúmar 44 millj. kr. 30.
september sl. Bæjarendurskoð-
andi spyr í þessu sambandi: „Flver
gerir slíka áætlun? Hefur verið
gerð breyting á áætluninni sem
ekki hefur skilað sér í bókhald-
inu? í hverju var eftirlit með
kostnaði fólgið og var bæjarstjórn
kunnugt um slíkan mun og hvern-
ig skyldi bregðast við?“.
Það kemur einnig fram í skýrslu
bæjarendurskoðanda, að kostn-
aður við yfirdrátt á reikningi
bæjarsjóðs hjá Sparisjóði Hafn-
arfjarðar, sem Fjarðarpósturinn
greindi frá í síðasta blaði og var
um 85 millj. kr. 30. sept. sl., nem-
ur nú um 10 millj. kr., en var áætl-
aður 1,7 millj. kr. á fjárhagsáætl-
un. Þá var ekki gert ráð fyrir nein-
um kaupum né sölum á fasteign-
um í fjárhagsáætlun, en útgjöld til
þess liðar nemi nú þegar 17,4
millj. kr. Endurskoðandi segir
einnig: „Eina ferðina enn bendi
ég á þá nauðsyn að gerð sé greiðslu-
áætlun þannig að til slíkra refsi-
vaxta þurfi ekki að koma og yfir-
sýn stjórnenda verði betri."
Bæjarstjóri sagði í svörum sín-
um m.a., áö þrátt lynr þetta ætl-
aði hann sér að skila hallalausum
rekstri bæjarsjóðs í árslok, og það
myndi teljast gott miðað við eins
og háfls milljarðs króna veltu á
ári. Þess má geta, að bæjarstjóri
hefur auglýst lausa stöðu yfir-
manns kostnaðareftirlits, en í því
starfi á að vera fólgin yfirumsjón
með bókhaldi bæjarsjóðs og
stofnana hans.
Tveir „Grænlendingar“
Iönduouum500tonnum
Tvö grænlensk rækjuveiðiskip eru nú í höfn. Það eru þau Abel
Egede og Rakel en þau hafa Iandað samtals um 500 tonnum af rækju,
eftir langt úthald.
Þessi skip byrjuðu veiðar við Vestur-Grænland og fluttu sig síðan
yfir á Dorn-bankann, þegar veiðitíminn hófst þar.
Heldur er líflegra við höfnina þessa dagana en var fyrir nokkru, að
sögn Viðars Þórðarsonar hafnsögumanns. Nokkur stór skip eru vænt-
anleg þar á meðal „saltskip" um næstu mánaðarmót.
Lóöaúthlutun til Gól h.f.
Bæjarstjórn samþykkti í gær með 11 samhljóða atkvæðum, að Gól
h.f. verði gefínn kostur á lóðinni nr. 41 við Hvaleyrarbraut undir
atvinnuhúsnæði.
Á bæjarráðsfundi nýverið voru
lagðir fram uppdrættir Arkó h.f.,
dagsettir í ágúst sl. að byggingu á
lóðinni, ásamt umsögn skipulags-
stjóra, sem telur nýtingu vera of
háa.
í tillögu bæjarráðs til bæjar-
stjórnar sagði m.a, að fyrirtækinu
Fríkirkju-
kaffisala
Hin árlega kaffísala Kven-
félags Fríkirkjunnar verður
n.k. sunnudag, þann 30. októ-
ber í íþróttahúsinu við
Strandgötu, að lokinni messu
í kirkjunni.
Kvenfélagskonur hvetja
alla Hafnfirðinga til að koma
milli kl. 15 og 18 og fá sér kaffi
og kökur, en þær verða seldar
afhlaðborði. Ágóðinn rennur
í nýja safnaðarheimilið, sem
söfnuðurinn hefur nýverið
fest kaup á.
Betra líh
Jurtarétta
skuli gefinn kostur á umræddri lóð
samkvæmt framlögðum uppdrátt-
um og með teknu tilliti til athuga-
semda skipulagsstjóra. Áskilið er
að bygging hefjist eigi síðar en í
aprfl 1989 og ljúki að fullu eigi síð-
ar en 1991.
Verslunaimannalélagið:
GOára
Verslunarmannafélag Hafnar-
fjarðar varð 60 ára þann 28. júní
sl. Fyrsti formaður félagsins og
aðalhvatamaður að stofnun þess
var Jón Mathiesen. Núverandi
formaður er Friðrik Jónsson.
Félagið býður öllum félags-
mönnum og velunnurum til
afmælishófs í Gaflinum n.k. laug-
ardag kl. 15. Fjarðarpósturinn
sendir félaginu og félagsmönnum
árnaðaróskir í tilefni þessa merk-
isáfanga.
námskeið
„Betra Iíf“ er kjörorð fyrir röð
af námstefnum sem Aðventistar
standa fyrir. Þar er áherslan lögð
á heilbrigt líferni, t.d. er nám-
skeiðið „Ondum léttar“, sem sagt
var frá í síðasta tölublaði ætlað
reykingafólki, sem vill hætta
reykingum. Það hefst í Flensborg-
arskóla fímmtudaginn 27. októ-
ber n.k.
Þá hefst í Hainarfirði þann 3.
nóvember n.k. námskeið í gerð
ljúffengra jurtarétta. Þar verður
áhersla lögð á notkun kornmetis,
bauna, soyakjöts og hneta. Áhugi
á j urtaréttum fer vaxandi hérlend-
is með ári hverju, en á námskeið-
inú, sem verður fjögur fimmtu-
dagskvöld, munu þátttakendur
borða fjölbreytilega jurtarétti og
fylgjast síðan með sýnikennslu í
samsetningu þeirra.
Þá verður á dagskrá „Betra lífs“
streitunámskeið, en eitt slíkt var
haldið í Hafnarfirði á sl. ári. Þar
er fólki leiðbeint, hvernig á að
meðhöndla streitu og uppgötva
orsakir hennar. Fleiri námskeið
eru í undirbúningi og verða kynnt
síðar.
( Fréttatilkynning)
Sala ÁTVR í HafnaiMi
2500
2000
1500
1000
500
Mánud
vikuna 3.-7. okt. sl.
FÖStud
Þetta súlurit um áfengiskaup í verslun ÁTVR fyrstu vikuna í október er athyglisvert að mörgu leyti, en þessi vika er mjög einkennandi fyrir
áfengissöluna yfirleitt. Úr því má t.d. lesa, að föstudagur er líklega sannkallaður flöskudagur. Mánudagar eru ekki þeir dagar sem minnst er
keypt, eins og margir hafa kannski ætlað. Þó afgreiðslur séu svipaðar fyrstu þrjá dagana er magnið áberandi meira þennan mánudag.
-------------------------- gerst hefur með sundiðkun
KARLAR VILJA kvenna frá því þær fengu sund-
KARLATÍMA laugartíma fyrir sig.
Tímamótaþing
í Firóinum
Eitt af sérgreinasamböndum Alþýðusambands íslands, Landssam-
band byggingariðnaðarmanna, hélt reglulegt þing sitt í Skútunni í
Hafnarfírði dagana 14. til 15. október sl. Þetta þing má teljast tíma-
mótaþing, því þar voru lögð drög að inngöngu Málarafélags Reykja-
víkur og Múrarfélags Reykjavíkur í sambandið. Að öllum líkindum
verður boðað til annars þings í vor í þeim tilgangi að félögin sameinist
Landssambandinu.
Aðilar að Landssambandi fóru fram umræður um stöðu líf-
byggingariðnaðarmanna eru um eyrissjóða, fræðslumál og skipu-
2.700, en 67 fulltrúar þeirra sátu lagsmál sambandsins og A.S.I.
þingið í Skútunni. Að sögn Grét- Varðandi stöðu byggingariðn-
ars Þorleifssonar formanns Félags aðarins í Hafnarfirði, sagði
byggingariðnaðarmanna í Hafn- Grétar, að nóg væri að gera í Firð-
arfirði fóru fram á þinginu venju- inum. Hann sagði að fjöldi utan-
legaðalfundarstörf. Þar varBene- bæjarmanna stundaði nú vinnu í
dikt Davíðsson endurkjörinn for- bænum og hefðu þeir aldrei verið
maður. Auk aðalfundarstarfa fleiri.
Sú kvörtun hefur borist jafn-
réttisnefnd Hafnarfjarðar, að
karlar hafa ekki sérstaka karla-
tíma í Sundhöllinni, en slíka tíma
hafi konur tvisvar í viku.
Nefndin tók málið til
umfjöllunar, en hún telur ekki
tímabært að leggja slíka kvenna-
tíma niður, þvert á móti virðist
nýting laugarinnar góð á þeim
tíma. Samþykkt var að fara þess á
leit við forráðamenn Sundhallar-
innar að kannað verði hvort ekki
sé unnt að veita körlum slíka
þjónustu, enda gætu slíkir tímar
aukið sundiðkun karla eins og
TANNSKOÐUN
FRESTAÐ
Tannverndarátaki og fyrirhug-
aðri tannskoðun 6 og 7 ára barna í
grunnskólu, sem fyrirhuguð var í
haust, varð að fresta. Stefnt er að
því að umrædd tannskoðun verði
framkvæmd í febrúar.
Þetta kemur fram í fundargerð
stjórnar heilsugæslustöðvar, en
ástæða frestunarinnar var sú, að
tannlæknadeild Háskóla íslands
gat ekki lánað skoðunarstól til
tannskoðunarinnar, vegna eigin
starfsemi.
HAFNFIRÐINGAR RAFFISALA
Kaffisala á vegum Kvenfélags
Fríkirkjunnar sunnudaginn 30.
október n.k. í íþróttahúsinu við
Strandgötu.
STJómm
Création
Stummcr
barnafötin
nýkomin
EMBLA
STRANDGÖTU 29
SÍMI 51055
I-
4
5