Fjarðarpósturinn - 05.04.1990, Síða 1
FJflRÐAR
pbstunnn
Næst
26. apríl
Fjarðarpósturinn kemur
næst út fimmtudaginn 26.
apríl, þar sem sumardagurinn
fyrsti kemur upp á fimmtu-
degi í vikunni á eftir páska.
Sérstaklega mun þetta vera vanda-
mál hvað varðar svonefnda „klasa-
byggð“, en þar hafa menn ekki
undan að sækja um breytingar.
Mun skipulagsdeild bæjarins hafa
verkefni til næstu framtíðar við
endurhönnun byggðarinnar.
Jóhannes Kjarval skipulags-
stjóri sagði aðspurður það rétt
vera, að mikið væri um lagfæring-
ar, en hann taldi slíkt ekki óvenju-
legt á nýju svæði sem Hvaleyrar-
holtssvæðið væri. Hann viður-
kenndi aðspurður, að þarna hefði
mikið magn íbúða verið skipulagt
á skömmum tíma og að réttara
hefði verið að úthluta „klasa-
byggð“ á sömu hendur.
Biðtiininn á rauðu Ijósi aukinn á álagstímum á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ:
„Oþolandi frekja og aukin slysa
hætta“, segir reiður bæjarbúi
Vegagerð ríkisins hefur breytt tímasetningu umferðarljósaskiptinga
við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar í Garðabæ.
Breytingin felur í sér að biðtími umferðar um Hafnarfjarðarveg hefur
aukist á háannatímum úr 60 sekúndum í 90 á rauðu Ijósi. Þetta hefur
skapað lengri biðraðir í gegnum Garðabæinn á þessum tímum, einnig
er þá ekki um samstillingu ljósa að ræða. Rögnvaldur Jónsson um-
dæmisverkfræðingur hjá Vegagerðinni sagði í viðtali við Fjarðarpóst-
inn, að mál þetta yrði endurskoðað, ef það kæmi í Ijós að breytingin
væri ekki til bóta.
Þrír bæjarbúar hafa haft sam-
band við Fjarðarpóstinn vegna
þessa máls. Fjarðarpósturinn
ræddi við Rögnvald Jónsson í gær.
Hann sagði að breytingin væri
samfara því, að gangbraut yfir
Hafnarfjarðarveginn, sem var
neðan biðskýlisins og sjoppunnar
Bitabæjar, hefði verið færð að
umferðarljósunum á gatnamótum
Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarð-
arvegar. Það hefði verið gert í
þeim tilgangi að gangbrautarljós-
in tefðu ekki umferðina. Á sama
tíma hefði tímalengd á ljósum
verið aukin á grænu á Vífilsstað-
avegi, og þar með á rauðu á Hafn-
arfjarðarvegi, úr 60 sek. í 90 sek.
Þetta gilti þó aðeins yfir háanna-
tímann, snemma á morgnana og
seinni hluta dags. Umferðareyjan
milli akreina neðan Bitabæjar var
girt á sama tíma. Garðbæingar
virðast hafa verið lítið hrifnir af
því framtaki, því þegar er búið að
rjúfa gat á girðinguna þar sem
gangbrautin var.
„Óþolandi frekja", sagði reiður
Hafnfirðingur sem hafði samband
við Fjarðarpóstinn. Taldi hann
stóraukna slysahættu þessu sam-
fara, þar sem biðraðir bíla hefðu
lengst til muna á erfiðum vega-
kafla í hálku, auk þess hefði um-
ferðarþunginn verið nægur fyrir.
Fjarðarpósturinn hafði sam-
band við bæjarverkfræðing og
bæjarritara. Þeir kváðust ekki
hafa fengið neinar kvartanir
vegna máls þessa.
&
Grundarkjör
Furugrund 3 Kópavogi S 46955 og 42062
Stakkahlíð 17 Reykjavík S 38121
Reykjavíkurvegi 72 - Hafnarfirði
S 53100
Söfnunarátak Krabbameinsfélagsins:
2,2 millj. kr. söfn-
uftust í Hafnarfiröi
FJflRÐflR„
7. TBL. 1990-8. ARG
FIMMTUDAGUR 5. APRIL
VERÐ KR. 70,-
Grundarkjör
Furugrund 3 Kópavogi S 46955 og 42062
Stakkahlíð 17 Reykjavík S 38121
Reykjavíkurvegi 72 • Hafnarfirði
S 53100
Að sögn Gísla Jónssonar, for-
manns Krabbameinsfélags Hafn-
arfjarðar söfnuðust tæpar 2,2
millj. kr. í Hafnarfirði í söfn-
unarátaki Krabbameinsfélagsins.
Hafnfirsk sjómannsekkja á ní-
ræðisaldri boðaði Almar
Grímsson, formann Krabba-
meinsfélags íslands, á sinn fund í
Skipulags-
stórslys?
Fjarðarpósturinn hefur fengið
ábendingar frá bæjarbúum vegna
þess að skipulag á Hvaleyrarholts-
svæðinu virðist í hinu mesta ólestri.
tilefni af átakinu og afhenti 300
þús. kr. til minningar um eigin-
mann sinn. Það var stærsta fram-
lag frá einstaklingi í söfnunina.
Að sögn þeirra Gísla og Almars
gekk átakið framar öllum vonum.
Þeir sögðu fólk hafa tekið frábær-
lega vel á móti söfnunarfólkinu.
Áhugi aldraðra var áberandi
mikill. Sagði Almar, að heimilis-
fólk á Hrafnistu hefði t.d. beðið
spennt eftir söfnunarfólki og
margspurt eftir, hvenær og hvort
það kæmi ekki.
Þeir félagar báðu fyrir bestu
kveðjur og þakklæti jafnt til
söfnunarfólksins og þeirra fjöl-
mörgu sem létu fé af hendi rakna.
Aðalfundur Krabbameinsfé-
lags Hafnarfjarðar verður haldinn
18. maí n.k.
Gleðilega páska
Duglegustu sölubörnin okkar á Fjarðarpóstinum þáðu páskaegg í verðlaun nýverið, auðvitað í tilefni
af páskahátíðinni sem er framundan. Myndin var tekin við það tækifæri. Fjarðarpósturinn sendir les-
endum sínum bestu óskir um gleðilega páska.