Fjarðarpósturinn - 05.04.1990, Qupperneq 6
UMSJON: ÞORÐUR BJORNSSON
IÞROTTIR:
4. flokkur kvenna í handbolta:
Haukar í 2. sæti
Úrslitakeppnin í 4. flokki
kvenna í handbolta var haldin í
Vestmannaeyjum. Bæði FH og
Haukar komust í úrslit í þetta
sinn.
Fyrir fram var búist við, að
Haukastúlkur yrðu ofarlega í
þessari keppni, sem og varð raun-
in. Þær enduðu í 2. sæti og geta vel
við unað.
FH-stelpurnar enduðu í 5. sæti,
sem er einnig mjög góður árang-
ur, en FH vann Hauka í hörku-
leik, 12-10.
MimibottilOáraíkörfu:
Guttarnir í Haukaliðinu stóðu sig með mikilli prýði í leikjum sínum
og börðust eins og ljón, þó á brattann væri að sækja. Þeir enduðu í 2.
sæti með betra stigaskor í leikjum sínum en næsta lið.
Leikirnir enduðu þannig: Haukar - Njarðvík 19-26. Haukar - KR 39-
18 og Haukar - Keflavík 28-33.
FH-b í 3. sæti
B-lið FH, sem leikur í 2. deild í handboltanum, endaði í 3. sæti, sem
er frábær frammistaða. Þeir hefðu ekki getað komist upp í 1. deild
vegna þess, að hvert félag má aðeins eiga eitt lið ■ fyrstu deild.
Haukarnir léku einnig í 2. deild, en eftir góða byrjun hrundi liðið,
enda ungt að árum. Þeir gera örugglega betur næsta vetur. Það er svo,
að fyllilega er kominn tími til að Haukarnir endurheimti fyrstu deildar
sæti sitt.
Ekki crráðncma í tíma sé tckið
GÓÐFÚSLEGA ATHUGIÐ aö koma
tímanlega meö fötin í hreinsun fyrir
fermingar og páska.
ATH.:
Tökum einnig sængur í hreinsun.
VÍÐISTAÐAKIRKJA
Pálmasunnudagur 8. apríl.
Fermingarguðsþjónustur kl. 10 og
kl. 14.
SÉKA SIOUKÐUK HELQl GUÐMUUDSSOn
HAFNAÍRFJARÐARKIRKJA
Pálmasunnudagur 8. apríl
Fermingarmessur kl. 10.30 og
kl. 14.
SÉKA ÞÓRUILDUK ÓLAFS OO
séra oumtóR inoASon
Iv, '23' R C N
f|íll||lMri ííii]
FRÍKIRKJAN
Pálmasunnudagur 8. apríl.
Ferming kl. 10.30.
SÉRA EinAR EYJÓLESSOn
F
Islandsmeistarar í spennu
Það var sannkölluð háspenna sem ríkti í Valsheimilinu á dögunum, þegar úrslit í íslandsmeistaramót-
inu, 4. flokki karla, réðust. FH-ingar tryggðu sér fslandsmeistaratitilinn eftir hörkubaráttu við Val og
Stjörnuna.
FH vann fimm leiki og gerði jafntefli við Val, 10-10, og Stjörnuna 12-12. FH-ingar unnu þó á hagstæð-
ustu markatölunni og stóðu uppi sem sigurvegarar. Voru þeir svo sannarlega vel að sigrinum komnir.
Jónas Stefánsson, markmaður FH-inga var valinn besti markmaður mótsins. Við óskum strákunum
til hamingju.
Á myndinni eru talið frá vinstri, efri röð: Ólafur Kristjánsson þjálfari, Árni Þorvaldsson, Stefán Ein-
arsson, Guðmundur Karlsson, Skúli Norðfjörð, Björn Hólm Þórsson, Orri Þórðarson, Hrafnkell Krist-
jánsson, Guðmundur Ásgeirssson, Ásgeir Gunnarsson og umsjónarmaður flokksins. Neðri röð frá
Hafliði Guðmundsson, Gunnar Þórarinsson, Arnar Ægisson, Kristinn Guðmundsson, Jónas
on, Þórarinn Þórarinsson, Jökull Þórðarson og Guðni Sigmundsson.
Unglingaflokkur Hauka tryggði sér íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn, er hann vann Njarðvík-
inga auðveldlega 87-66. Haukarnir töpuðu ekki leik eftir 17. nóvember. Þó voru þeir án miðherja síns,
Haraldar Sæmundssonar, seinustu fjóra leikina.
Bræðurnir Pétur og Jón Arnar Ingasynir blómstruðu heldur betur í þessum leikjum, en í heildina er
liðið mjög jafnt með nokkra stráka, sem eru heldur betur farnir að banka á dyrnar hjá meistaraflokki.
Þjálfari strákanna var Bandaríkjamaðurinn Jonatan Bow, en hann var farinn heim og við liðinu tók
Ólafur Rafnsson í seinustu leikjunum.
Við óskum Haukunum til hamingju með titilinn. Þeir voru vel að honum komnir.
Enn af íslandsmeisturum
Úrslitakeppni 7. flokks körfu-
boltans í íslandsmótinu fór fram í
Njarðvík. Á endanum stóðu
Haukastrákarnir uppi sem sigur-
vegarar, eftir hörkubaráttuleiki.
Leikgleðin og sigurviljinn voru
aðalsmerki Haukanna. Bestir í
liðinu voru Flóki Árnason fyrir-
liði, Jón Hákon Hjaltalín átti
einnig góða spretti og Óðinn
Rafnsson dreif félaga sína áfram
af miklum baráttuvilja.
Þjálfari liðsins varenginn annar
en Ingvar Jónsson. Við óskum
strákunum til hamingju.
6