Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 01.10.1992, Page 3

Fjarðarpósturinn - 01.10.1992, Page 3
Fulltrúar vinabæjarins Cuxhaven vilja efla vináttu og viðskipti Tuttugu og þrír Þjóðverjar frá vinabæ Hafnarfjarðar, Cux- haven í Þýskalandi, eru staddir í bænum þessa vikuna. Tilefnið er annars vegar, að 40 ár eru nú liðin frá stofnun stjórnmála- samband milli íslands og Þýskalands og hins vegar hefðbundin vinabæjarheimsókn. í hópnum eru fulltrúar bæjaryfirvalda, þar á meðal bæjarstjórinn í Cuxhaven. Auk þess fulltrúar úr at- vinnulífinu, þ.e. úr ferðamálaiðnaði ogsjávarútvegsfyrirtækjum. Þess utan eru í hópnum 16 kratar. Meginmarkmiðið með heim- sókninni er að efla vináttu milli íbúa þessara vinabæja og skoða hvort og þá hvernig er unnt að efla viðskiptatengsl. Hópnum var fyrst boðið til í gærkvöldi var síðan móttaka hádegisverðar í A. Hansen á og hátíðleg opnunarathöfn á mánudag, en áþriðjudag hófst stíf dagskrá. Ardegis komu fulltrúar úr atvinnulífinu saman með full- trúum atvinnulífsins í bænum. Fundað var í tveimur hópum, annars vegarum ferðamál þarsem m.a. voru mættir fulltrúar úr ferðamálanefnd Hafnarfjarðar. Hins vegar var fundað um at- vinnumál almennt, sérstaklega sjávarútvegsmál. Þar voru full- trúar úr sjávarútvegsfyrirtækjum beggja bæjanna. I báðum hóp- unum var skiptst á upplýsingum og skoðunum, enda ekki ætlunin að ganga til beinna viðskipta- samninga. Að loknum hádegisverði var ekið með hópinn í hús Skóg- ræktarfélags Hafnarfjarðar við Hvaleyrarvatn þar sem fulltrúar Skógræktarinnar tóku á móti gestum, en þar bættist m.a. í hópinn sendiherra Þýskalands á f slandi og fleiri góðir gestir. Þáðu þeir góðgjörðir og var síðan haldið til gróðursetningar á fyrstu trjánum sem sett voru niður í nýjan vinalund Cuxhaven og Hafnarfjarðar, sem er niður við vatnið. Það voru bæjarstjóramir Al- brecht Harten og Guðmundur Ámi Stefánsson sem settu trén niður. Að lokinni gróðursetning- unni sungu íslendingar á staðnum íslenskt lag fyrir gestina og þeir svöruðu fyrir sig á sinni tungu. Að lokinni athöfninni við Hvaleyrarvatn var ekið niður á hafnarskrifstofur í Hvaleyrar- húsinu en þar hafa Þjóðverjamir komið upp sýningu atvinnufyrir- tækja sinna. „Hátternið ekki and- skotalaust" Sofus sendi Fjarðarpóstinum eftirfarandi línur í tilefni af for- sfðufrétt blaðsins í síðustu viku. Þar var fjallað um samhljóða skammir bæjarstjómar í garð ríkisstjómarinnar. Vitnað var í fyrirsögn og fréttinni í ræðu for- manns bæjarráðs, Ingvars Vikt- orssonar, í bæjarstjóm þar sem hann sagði m.a., að framferði ríkisstjómarinnar væri ekki and- skotalaust: „Sumum ratast oft satt á munn sem að mikið blaðra. Öðrum er sagan katinski kunn að kjafta fyrir aðra. Svalviðrin blása, senn kemur haust sumarið blómskrúði fórnar. „Hátternið er ekki andskota- laust“ með álagningu ríkisstjórnar. sýningu listamanna frá Cuxhaven og listamanna sem tengjast bæn- um á einhvem hátt. Þar voru fluttarfjórarræður. Til máls tóku bæjarstjóramir og sendiherra Þýskalands á íslandi, Gottfried Pagenstem. Ennfremur tók til máls formaður þýsku sendi- nefndarinnar, Rolf Peters. Boðið var upp á vandaða tónlistardagskrá. Kór Flens- borgarskólans söng. Tveir ungir Þjóðverjar spiluðu á píanó og selló og Anna Júlíana Sveins- dóttir söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Málverka- sýningin í Hafnarborg stendur yfir til 19. október n.k. Hér voruferðamálin rœdd affulltrúum úrferðamálanefnd bœjarins og þýskum ferðamálafrömuðum. Fulltrúar frá Cuxhaven og Hafnafirði, sem rœddu atvinnumálin í nýja Golfskála Keilis á þriðjudagsmorgun. Stanaaveiðifélag Hafnarfjarðar Flatahrauni 29 Leigjum út sal fyrir hópa við hin ýmsu tækifæri. Upplýsingar hjá Armanni í síma 654060 BYGGINGARVÓRUR SANYL-þakrennur í hvitu og gráu nýkomnar Gerið verðsamanburð Einnig mikið úrval af gólfefnum og hreinlætistækj um Opið virka daga kl. 9-18 laugardaga 10-14 BÆJARHRAUNI 20 - SIMI: 654755 - FAX: 654820 3

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.