Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Blaðsíða 1
SVMARHÚS
STOFNAÖ 1925
HJALLAHRAUNI 10
HAFNARFIRÐI
SIMI51070
FJflRDflR
18. TBL. 1993 - 11. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ
VERÐ KR. 100,-
SUMARHÚS
STOFNAÐ 1975
Stórfelld skuldaaukning, samkvæmt ársreikningum bæjarsjóös 1992, og stefnir í enn meiri skuldaaukningu:
Eignfærð fjárfesting 1.018 millj. kr. í
móti 1.242 millj. kr. skuldaaukningu
Staða bæjarsjóðs Hafnarfjarðar er mjög alvarleg, ef ekki verður þeg-
ar gripið í taumana, samkvæmt skýrslu skoðunarmanns reikning-
anna. Heildarskuldir voru 1.940 millj. kr., um síðustu áramót, eins
og Fjarðarpósturinn greindi frá í síðasta tölublaði og í umræðum á
bæjarstjórnarfundi í gær kom fram, að skuldastaðan stefnir í allt að
2.300 millj. kr. í árslok. Þar kemur einnig fram sú alvarlega stað-
reynd, að á árunum 1989-1991 var aukning á skuldum um 1.242
millj. kr., en á sama tíma var eignfærð fjárfesting nettó 1.018 millj.
kr., þannig að hluti af lántökunum fór beint í rekstur. Þá kemur
fram, ef skoðuð eru fjögur sl. ár, að meðaltal rekstrargjalda og gjald-
færðrar fjárfestingar nettó er 96,6% af tekjum, þannig að ekki er
eftir nema 3,4% af skatttekjum til að mæta afborgunum lána og
eignfærðri fjárfestingu. Þetta vill segja, að allar eignfærðar fjárfest-
ingar hafa á þessu tímabili verið unnar fyrir lánsfé.
Fráfarandi bæjarstjóri, Guð- viðurkenndi að skuldastaðan hefði
mundur Ámi Stefánsson, gerði hækkað, t.d. væri nettóskuldastaða
grein fyrir reikningunum. Hann nú 782,3 millj.kr.,jókstum 54,3%
Ráðherra setur Eggert
J. Levy f stöðuna á ný
„Maðurinn hefur ekkert brotið
af sér í starfi og ég vil reyna til
þrautar hvort ekki næst sam-
komulag. Þess vegna sé ég ekki
ástæðu til að auglýsa stöðuna og
hef sett Eggert J. Levy skóla-
stjóra að nýju til eins árs“, sagði
Ólafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, er tíðindamaður
Fjarðarpóstsins ræddi við hann í
gær.
Eggert J. Levy er settur á ný í
embætti skólastjóra í Víðistaða-
skóla, þrátt fyrir áskomn meiri
hluta skólanefndar um að staðan
verði auglýst aftur.
Mikill stirr hefur staðið um setn-
ingu Eggerts í stöðuna, en ráðherra
kvaðst þess fullviss, að friður tæk-
ist um hann og störf hans. Ráð-
herrann sagði einnig að málið yrði
metið á ný að ári liðnu.
Fjaröarpósturinn
kominn í sumafrí
Frá og með þessu tölublaði Fjarðarpóstsins fara starfsmenn
blaðsins í sumafrí. Fjarðarpósturinn kemur því ekki út á ný
fyrr en í ágúst.
Þar sent verslunamiannahelgin er fyrstu helgina í ágúst, kentur
fyrsta tölublaðið eftir sumarfrí út í annarri viku ágústmánaðar, þ.e.
fimmtudaginn 12. ágústn.k.
milli áranna 1991 og 1992. Leið-
beining bæjarstjórans fráfarandi til
þeirra sem eftir sitja var eftirfar-
andi: „Hér eftir á bæjarstjóm
Hafharljarðar aðeins að tala um
nettóskuldir, enda var sú uppfinn-
ing hafnfirsk."
Oddvitar minnihlutaflokkanna,
Jóhann G. Bergþórsson og Magn-
ús Jón Ámason, ræddu reikning-
ana í stuttu máli. Þeir vömðu báðir
við Jreirri alvarlegu þróun sem
skuldastaðan væri komin í og Jó-
hann sagði skuldimar því miður
stefna í 2.300 millj. kr. í árslok.
Páll V. Daníelsson, skoðunar-
maður reikninganna, gerir margar
og alvarlegar athugasemdir við
reikningana í skýrslu sinni. Hann
bendir m.a. á að þessi gífurlega
skuldaaukning eigi sér stað á sama
tíma og tekjur á íbúa haft aukist
verulega.
Þessi myiid var tekin fyrir utan Kentucky Fried af frífluin jlukki Hauka-pœja á leið til Eyja.
Pæjurnar okkar gerðu það gott
Þær gerðu það gott hafnfirsku pæjumar á Pesi- flokki a var lið FH valið prúðasta liðið og t 5.
pæjumótinu í Eyjum unt helgina. Haukastelpum- flokki B sigmðu Haukastelpumar einnig. í þeim
ar sigmðu í 4. flokki b og Harpa Kolbeinsdóttir, flokki var Hlín Jóhannesdóttir, Haukum, valin
Haukum, var þar valin prúðasti leikmaðurinn. í 4. besti leikmaðurinn. - Til hantingju stelpur.
137gestirlrásex
Norrænt vinabæjarmót hefst í Hafnarfirði n.k. föstudag, 18. júní.
Það stendur yfir til 21. júní. Samtals koma til mótsins 137 gestir frá
sex löndum, þ.e. Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi
og Grænlandi.
Gestimir koma til landsins á formleg setningarhátíð hefst í
föstudag og verða meðal annarra Hafnarborg kl. 17.30.
gesta á stórtónleikum Sinfóníu- Á sunnudag verða famar ferðir
hljómsveitar íslands og búlgörsku m.a. til Gullfoss, Geysis og að
söngkonunnar Ghenu Dimitrova í Skógarfossi. Auk þess verður boð-
Kaplakrika. Á laugardag verða ið upp á ferð um Reykjanes.
kynnisferðir og ráðstefnur, en Kvöldverður verður fyrir hópinn í
löndum
skíðaskálanum í Bláfjöllum.
Mánudeginum verður m.a. var-
ið til baðferðar í Bláa lónið. Áfram
verður fundað um hin ýmsu bæj-
armálefni og slit mótsins verða í
kvöldverðarhófi kl. 18.
Norrænu vinabæir Hafnarfjarð-
ar em: Frederiksberg, Hámeen-
linna, Tartu, Uppsalir og Bærunt,
en þcir skiptast á um að halda mót-
in.
“Mannbætandi að
geta sem oftast
verið í góðu skapi“
Sjá viðtal á bls. 6 og 7
Urslitin í (jetraun-
um Pappirs h.f. og
Delta a V0R '93
- Sjá bls. 2 og 4
Smíðar dúkkuhús
til að skapa at-
vinnu og tekjur