Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Qupperneq 2

Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Qupperneq 2
KOMPAN Golfarar vilja vínveitingar Sýslumaðurinn í Hafnar- firði hefur óskað umsagnar bæjaryfirvalda vegna um- sóknar Golfklúbbsins Keilis um leyfi til að selja bjór og léttvín í veitingasal Keilis að Steinholti 1. Málinu var vísað til umsagnar áfengisvamítr- nefndar. Jafnframt var í- þróttafulltrúa falið að afla til- tekinna gagna. Sundhöllin 50 ára Sundhöll Hafnarfjarðar verður 50 ára í ágúst n.k. og Sundfélag Hafnarfjarðar 65 ára. Forráðamenn Sundfé- lagsins hafa reifað hugmyndir við bæjaryftrvöld um hvemig fagna megi þessum áföngum. Nýir starfsmenn í grunnskólana Skólanefnd Hafnarfjarðar gekk frá ráðningum nýrra starfsmanna í grunnskóla bæjarins á fundi sínum 1. júní sl. Gífurlegur fjöldi umsókna lá fyrir um störfin en eftirtald- ir hlutu þau: Baðvörður Lækj- arskóla, 75% starf, Ema Brynjólfsdóttir. Baðvörður Víðistaðaskóla, 80% starf, Ragnheiður Sigurbjartsdóttir. Mötuneyti nemenda í Set- bergsskóla, 60% starf, Ásta Eyjólfsdóttir. Mötuneyti nemenda í Lækjarskóla, 60% starf, Bima Þórhallsdóttir. Gangavörður Setbergsskóla, fullt starfi, Sóley Guðrún Sveinsdóttjr, sem hlaut þrjú atkvæði. Ásta Michaelsdóttir hlaut eitt atkvæði í stöðuna. Vegna heilsdagsskóla voru eftirtaldir ráðnir: Lækjarskóli Þórdís L. Gísladóttir, Víði- staðaskóli Páll J. Malntberg, Engidalsskóli Margrét Tóm- asdóttir, Setbergsskóli Hildur Karlsdóttir og Margrét Böðv- arsdóttir og Hvaleyrarskóli Alda Baldursdóttir. Hvað varðar heilsdags- skóla var tillaga formanns samþykkt samhljóða nenta um starfsmann í Víðistaða- skóla. Þar hlaut Páll þrjú at- kvæði en annar umsækjandi, Kjartan, eitt. Glaðningur vikunnar Eftirtalinn áskrifandi Fjarðarpóstsins fær heimsenda ókeypis 16 tomma pizzu að eigin vali, ásamt einum og hálfum líter af Coke. Gildir til 24. júní Halldór Örn Oddsson Suðurbraut 28, Hf. S_______________________> 4.482 reiknivélarúllur voru í getraun Pappírs h.f. á Vor '93 Steingrímur Björnsson, Stuðla- bergi 88 í Hafnarfirði, sigrað í verðlaunagetraun fyrirtækisins Pappír h.f., á athafnasýningunni Vor '93, sem fram fór í Kaplakrika nýverið. Getraunin gekk út á að finna út hversu margar reiknivélarúllur voru í hráefnisrúllu á sýningunni. Steingrímur giskaði á 4.500, en rúllurnar voru 4.482 talsins. Þrír voru með töluna 4.500, en nafn Steingríms var dregið út. Steingrímur hlaut í verðlaun vandaða reiknivél frá Einari Th. Mathiesen og kassa af reiknivéla- rúllum, sem afhent vom sl. föstu- dag. Eigendur fyrirtækisins og feðgamir Sigurður Jónsson og Jó- hannes Sigurðsson afhentu Stein- grími verðlaunin. Hann sagðist ekki hafa átt reiknivél fyrir og því kæmi hún sér mjög vel. Pappír h.f. er fjölskyldufyrir- tæki. 'Það er staðsett við Dranga- hrauni lb og hefur verið starfrækt frá árinu 1987. Að sögn þeirra Sig- urðar og Jóhannesar notar fyrir- tækið um 150 tonn af pappír á ári. Pappír h.f. annast hvers kyns pappírsrúllugerð og sérhæftr sig í framleiðslu á pappírsrúllum í myndsenda og reiknivélar. Einnig annast þeir alls kyns umbúðar- pappírframleiðslu og sjá um prent- un á hann, ef óskað er. Helsta samkeppni þeirra er inn- flutningurinn, en þeir em það stór- ir í framleiðslunni að þeir gætu með góðu móti annað allri innan- landsnotkuninni með því að vinna í 6 tíma á dag. Stærsti hluti fram- leiðslunnar fer beint til stórra dreif- ingaraðila en einnig selja þeir beint til smærri aðila. Steingrímur tekur við verðlaununum úr hendi Jóhannesar, en Sigurður er lengst til hœgri á myndinni. Mannlíf f vaxandi bæ „Hafnarfjörður - Mannlíf í vax- andi bæ“ er heiti á bók eftir Jón Kr. Gunnarsson, sem nýkomin er út. Bókin er prýdd fjölda lit- mynda og með texta bæði á ís- lensku og ensku. - Bókin er hugsuð sérstaklega sem kynningarbók um Hafnartjörð, jafnt fyrir er- lenda sem innlenda gesti, en mikil eftirspurn hefur verið eftir slíkri bók. I bókinni er ágrip af sögu Hafnar- fjarðar fyrr og nú en. Myndir og texti eru eftir Jón Kr. en enskur texti eftir Láms Vilhjálmsson. Próförk las Stefán Júlíusson. Umbrot, filmu- vinna og prentun í Steinmark. Það er Bókaútgáfan Rauðskinna í Hafnar- firði sem gefur út. Bókin verður til sölu í bókaverslunum og á helstu Kr. Gunnarsson með eintak af stöðum sem ferðamenn sækja. nýiu bokinni. „HAFNARI JORDUR - Mannlíf í vaxandi bæ“ er heiti á nýrri bók eftir Jón Kr. Gunnarsson. Bókin er velþegin, enda oft verið spurt um slíka bók með mvndum og stuttum upplýsandi texta. Enn betra er, að allur texti í bókinni er einnig.á ensku. Undir gafli vakti sérstaka athygli kaflinn í bókinni um „gafl- arana“. Þar er saga gaflaranna rakin, þ.e. hvernig nafnið „gaflari“ varð til. Þeir undir gafli voru einnig himinlifandi yfir bráðsnjallri þýð- ingu Lárusar Vilhjálmssonar á heitinu gaflarar, þ.e. „Gablers“. - Við erum sem sagt „The Gablers“, sögðu karlarnir hressir undir gafli í vikunni. INNSETNING bæjarstjórans okk- ar í ráðhcrrastól sl. mánudag vakti hvað mesta umræðu undir gafli í vikunni. Þetta mun enda vera í fyrsta skipti í sögunni, sem bæjar- stjóri tekur að sér ráðherrastarf í aukavinnu. Undir gafli eru menn á því að það sé heldur ekki á færi nokkurs nema alvöru-gaflara eins og bæjarstjórinn okkar er. „The Gabler - The minister“. - Á „bæjó“ æfðu menn sig í óða önn á meðan á ríkisráðsfundinum á Bessastöðum stóð laust fyrir hádegi á mánudag í að scgja:, Já, ráðherra“. Þá fréttist einnig af Gunnari Rafni, bæjarrit- ara, í leit að myndbandsspólum með þáttunum: „Yes minister“. FJÖLMARGAR fyrirspurnir hafa borist ritstjóra Fjarðarpótsins um það hvcrnig hann fari að, þegar Guðmundur Árni hverfur úr bæjarstjórastóli, hvort Fjarðar- pósturinn hætti jafnvel ekki bara að koma ák Því er til að svara, að auðvitað saknar Fjarðarpósturinn vinar í stað, en hér eins og þar kemur maður í manns stað. Þó svo enginn hafi verið duglegri en Guðmundur Árni að auglýsa Fjarðarpóstinn, vonumst við til að arftaki hans nái töktunum, þó síðar verði. GAFLARIVIKUNNAR: - Vildi þá vera fluga á vegg í saumaklubbi Fullt nafn? Guðrún Valdís Amardóttir. Fæðingardagur? 12. mars 1966 Fæðingarstaður? Patreksfjörð- ,.ur. Fjölskylduhagir? Gift Gunnari Svavarssyni og á tvö böm. Bifreið? Skoda Favorit '90. Starf? Lager- og skrifstofustarf hjá Isal. Fyrri störf? Fiskvinnsla, máln- ingarvinna, ræsting o.fl. Helsti veikleiki? Gleymi alltaf að skila því sem ég fæ lánað. Helsti kostur? Er oftast bjart- sýn. Uppáhaldsmatur? Saltkjöt og baunir. Versti matur sem þú færð? Kjötbollur. Uppáhaldstónlist? Randver. Uppáhaldsíþróttamaður? Kristján Arason. Hvaða stjórnmálamanni hefur þú mestar mætur á? Jóhönnu Sigurðardóttur. Hvert er eftirlætissjónvarps- efnið þitt? Sakamál og drama. Hvaða sjónvarpsefni finnst þér leiðinlegast? Enska knattspym- an. Uppáhalds útvarps- og sjón- varpsmaður? Sigmundur Emir. Uppáhaldsleikari? Jodie Foster Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Lömbin þagna. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Les góða bók. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Snæfellsnes. Hvað metur þú mest í fari ann- arra? Áreiðanleika og heiðar- leika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Fólk sem gerir sig stórt á kostnað annarra. Hvaða persónu langar þig mesta að hitta og hvers vegna? Enga. Hvaða námsefni líkaði þér verst við í skóla? Islensku. Hvað rnyndir þú vilja í afmæl- isgjöf? Trönur og frítíma. Ef þú ynnir 2 millj. kr. í happadrætti, hvernig myndir þú verja þeim? I vitleysu. Ef þú gætir orðið ósýnilegur, hvar myndir þú helst vilja vera? Fluga á vegg eftir að ég væri farin úr saumaklúbbi. Ef þú værir í spurninga- keppni, hvaða sérsvið mvndir þú velja þér? Eðlisfræði (krossaspumingar). Hvað veitir þér mesta afslöpp- un? Góður göngutúr í fallegu umhverfi. Hvað myndir þú gera, ef þú værir bæjarstjóri í einn dag? Myndi endumýja leiktæki í gömlu leikskólunum, leikskól- unum sem ekki sjást í blöðunum. Uppáhalds-Hafnarljarðar- brandarinn þinn? Þessi heyrð- ist á Holtinu: „Mamma, fljúga englamir ekki?“,Jú, drengur minn.“ „Getur þá nýkomna kennslukonan flogið?„„Nei, en því spyrðu að því?“„Pabbi sagði í morgun, að hún væri engill." „Einmitt það. Já, drengur minn, hún fær að fljúga á morgun."

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.