Fjarðarpósturinn - 10.11.1994, Blaðsíða 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
Hópurinn frá BBC ásamt þeim Rögnvaidi Guðmundssyni ferðamálafuiitrúa og Ingibjörgu Jónsdóttur.
BBC skoðar álfabyggðina í Hafnarfirði
Þulur morgunþátt-
ar BBC trúir á álfa
Hópur sjónvarpsfólks frá
bresku sjónvarpsstöðinni BBC
dvaldi í bænum um síðustu helgi í
þeim tilgangi að fjalla um álfa-
byggðina í bænum. Um cr að ræða
þáttinn Good morning TV hjá
BBC og segir þulur þáttarins,
Jenny Barnett, að hún trúi á álfa.
Þar að auki hali hún tekið með sér
hóp sem er "næmur" fyrir þessum
hlutum en þar á hún við upptöku-
stjórann, hljóðmanninn og töku-
manninn.
Rögnvaldur Guðmundsson ferða-
málafulltrúi bæjarins var hópnum
innan handar meðan á dvöl hans
stóð. Rögnvaldur segir að ferð þeirra
hafi heppnast með ágætum og þau
haft látið vel af móttökum bæjarbúa.
Umfjöllunin um álfabyggðina verði
rúmlega fimm mínútna innslag í
morgunþáttinn en áætlað er að um 2
milljónir manna sjái þáttinn á hvetj-
um morgni.
Hópurinn kom hingað í gegnum
skrifstofu Flugleiða í London en það
var Erla Stefánsdóttir sem lóðsaði
hópinn um álfabyggðina. Fyrir utan
að skoða álfa fór hópurinn m.a. í
Bláa lónið, sat víkingaveislu í Fjöru-
garðinum og fór á hestbak.
Fjarðarkaup opið á laugardögum
Okkar svar við
samkeppninni
- segir Sveinn Sigurbergsson
Fjarðarkaup hefur tekið upp
þá nýbreytni að hafa opið á
laugardögum frá kl. 10 til kl.
16. Verður þessi opnun reynd í
tilraunaskyni fram að jólum en
þá tekin ákvörðun um fram-
haldið. Sveinn Sigurbergsson
kaupmaður í Fjarðarkaupum
segir að þetta sé þeirra svar við
aukinni samkeppni.
Fjarðarkaup hefur lengi haft þá
sérstöðu meðal stærri stórmark-
aða á höfuðborgarsvæðinu að
ekki var opið hjá þeim um helgar.
Sveinn segir að þeir hafi hingað
til talið að þeir þyrftu ekki á því
að halda. "Þróunin síðastliðin tvö
ár hefur síðan verið með þeim
hætti að markaðir hafi í æ ríkari
mæli verið með opið frameftir
kvöldi og um helgar. Við erum að
bregðst við þessari þróun," segir
Sveinn.
í tilefni af þessari helgaropnun
verða margvísleg helgartilboð í
gangi hjá Fjarðarkaupum. Og á
fimmtudögum, föstudögum og
laugardögum næstu tvær vikur
verður Pepsihlutavelta í verslun-
inni þar sem viðskiptavinum gefst
tækifæri til að fá kippur og 2ja
lítra Pepsiflöskur með miklum af-
slætti.
Sveinn Sigurbergsson: Erum
að bregðast við þcssari þróun.
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
Óskar Thorarensesn, hdl.
verður vikulega til viðtals á
skrifstofu Hlífar.
Viðtalstímarnir, sem eru fyrir
félagsmenn Hlífar, verða alla
föstudaga frá kl. 14 - 16.
Stjórn Hlífar
Arni Mathiesen náöi öðru sætinu í prófkjörinu
Frá kjörstað Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
„Er mjög
ánægður
með niður-
stöðuna“
"Eg er mjög ánægður með nið-
urstöðu prófkjörsins og þakklátur
mínum stuðningsmönnum og öll-
uni þeim sem þátt tóku og unnu við
prófkjörið," segir Arni Mathiesen
en hann náði öðru sætinu í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi um síðustu
helgi.
"Það skyggir aðeins á gleði mína
að Salóme Þorkelsdóttur skyldi ekki
vegna betur og ég hefði viljað sjá
Lagt hefur verið fram bréf í
bæjarráði frá aðalstjórn Hauka
þar sem Haukar óska eftir að sett
verði á laggirnar samstarfsnefnd
Hauka og bæjaryfirvalda.
Nefndinni er ætlað að yfirfara
hana í annari stöðu í dag en útkoman
segir til um," segir Ami.
Uppröðun á lista Sjálfstæðis-
flokksins var þannig að Olafur G.
samstarfssamninginn varðandi fram-
kvæmdir að Asvöllum og leggja
drög að nýjum um næsta áfanga svo
sem byggingu íþróttahúss svo og
vegna eignaskiptasamninga vegna í-
þróttamannvirkja við Flatahraun.
Einarsson menntamálaráðherra hélt
fyrsta sætinu með naumindum, Ámi
Mathiesen varð í öðm sæti, í þriðja
sæti varð Sigríður Anna Þórðardóttir,
í fjórða sæti Ámi R. Ámason, í
fimmta sæti Kristján Pálsson og í því
sjötta varð Viktor B. Kjartansson
Árni segir að hann telji þetta vera
sterkan lista sem flokkurinn teflir
fram í næstu kosningum. Sjötta sætið
gæti orðið baráttusæti þar sem fjölg-
að verður um einn þingmann í kjör-
dæminu fyrir næstu kosningar.
Það er ljóst af úrslitunum að staða
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði er
sterk, kjaminn úr fylgi Áma kemur
þaðan en hann bendir jafnframt á að
tölumar sýni að hann hafi fengið
fylgi allstaðar í kjördæminu.
Haukar vilja
samstarfsnefnd
Fríkirkjan
Sunnudag 6. nóv.
Bamasamkoma kl. 11,00
Opið hús er í safnaðarheimili kirkjunnar sunnudaga
kl.20 fyrir unglinga, þriðjudaga kl. 17,00 fyrir 8-10
ára, fimmtudaga kl. 17,00 fyrir 11-12 ára.
Æfing bamakórs kirkjunnar miðvikudaga kl. 17:30 í kirkjunni.
Séra Einar Eyjólfsson
Hafnarfjaróarkirkja
Sunnudag 6. nóv.
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Allra heilaga messa kl. 14,00
Altarisganga - minnst látinna
Organisti Helgi Bragason.
Kyrrðarstund í hádeginu á miðvikudögum kl. 12.
Léttur hádegisverður á eftir.
Störf með 10 - 12 ára bömum kl. 18,00 þriðjudaga í safnaðar-
athvarfinu Suðurgötu. Æskulýðsstarf kl. 20,00 þriðjudaga í
Góðtemplarahúsinu.
Séra Gunnþór Ingason
Víöisfaöakirkja
Laugardagur 5. nóv.
Sr. Kritján Valur Ingólfsson flytur fyrsta fræðslu-
erindi sitt af þrem kl. 10,30 í kiirkjunni undir
heitinu Heilög messa, helgisiðir og kirkjutónlist,
Sunnudagur 6. nóv.
Bamaguðþjónusta kl. 11, Guðþjónusta kl. 14.
Allra heilagra messa látinna minnst. Flutt verður
verkið Heill þér himneska orð. Eins. Sig.
Skagfjörð Steingrímsson, Celló: Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Organleikur
Elías Davíðsson, kór Víðistaðasóknar syngur, Stjómandi Ulrik Óskarsson
Séra Sigurður Helgi Guðmundsson