Fjarðarpósturinn - 02.02.1995, Side 11
FJ ARÐARPÓSTURINN 11
Met sett
í hlaup-
um og
stökkum
FH og ÍR gengust fyrir mótuni í
hlaupum og stökkum síðastliðinn
föstudag. Stökkmótið fór fram í í-
þróttahúsinu Kaplakrika og þar
stökk Sigrún Össurardóttir 170
sm. Það er besti árangur hafn-
tirskrar konu í hástökki hingað til
og einkar athyglisvert vegna þess
að Sigrún er aðeins 15 ára.
Á spretthlaupsmótinu, sem fram
fór í Baldurshaga í Laugardal, setti
Ólafur Traustason Hafnarfjarðarmet
í aldursflokki 17-18 ára í 50 m
hlaupi; 5,9 sek. Eldri bróðir hans,
Bjami Þór, hljóp á sama tíma og ár-
angurinn telst mjög góður hjá báð-
um.
Þá setti Helga Halldórsdóttir
Hafnarfjarðarmet á mótinu, hljóp 50
m grindahlaup á 7,4 sek.
Ósanngjarnt að hækka lóða-
leiguna svona mikið í einu
-segir Gísli Jónsson prófessor
Hafnfirðingar hafa á undan-
förnum dögum fengið að vita hvað
þeir eiga að borga í lóðaleigu á
þessu ári. Sem kunnugt er af frétt-
um var lóðaleigan hækkuð við gerð
fjárhagsáætlunar í 1% af lóðamati
en var áður 3 aurar á fermetra.
Gísli Jónsson prófessor hafði sam-
band við Fjarðarpóstinn og sagði
að hann teldi ósanngjarnt að leigan
hækki svona mikið í einu. Gjaldið
sem Gísli borgar fer úr 20 krónum
og upp í 8.360 krónur.
“Lóðaleiga í Hafnarfirði hefur ver-
ið óheyrilega lág í mörg ár eða allt frá
árinu 1962 þar til henni var breytt
nú,” segir Gísli. “Eg hef ekkert á
móti því að lóðaleigan hækki en ég
tel hækkunina alltof mikla í einu. Þar
að auki greiða lóðaeigendur í Hafnar-
ftrði mun hærri leigu en til dæmis í
Reykjavík.”
Gísli segir að hann hafi kynnt sér
hvemig málum er háttað í höfuðborg-
inni og að ef hann væri Reykvíking-
ur hefði hann þurft að borga um
1.200 krónur í ár. Það telji hann sann-
gjama leigu.
í Hafnarfirði borga íbúar sömu
Fjarðarpósturinn
alltaf á
fimmtudögum
lóðaleigu hvort sem um íbúðar- eða
iðnaðarhúsnæði er að ræða en í borg-
inni er gjaldið mismunandi eftir teg-
und húsnæðis. Gísli vill að svipuðum
reglum verði komið á í Hafnarfirði
og að sama prósentuhlufall gildi, það
er 0,145% af lóðum undir íbúðahús-
næði og 1% undir iðnaðarhúsnæði.
Árekstrar
f hálkunni
Mikil hálka var á götum Hafn-
arfjarðar í upphafi vikunnar og
nokkuð um árekstra af hennar
völdum. Allt var þetta þó minni-
háttar nudd og engin slys á fólki.
Stærsti áreksturinn varð á Hval-
eyrarbraut, við Islensk matvæli, um
þrjú leytið á mánudag. Þar skall stór
sendiferðabifreið á þremur öðrum
bílum. Að sögn lögreglunnar mun
ökumaður sendiferðabílsins ekki
hafa áttað sig á hve hálkan var mikil
og missti stjóm á bifreiðinni með
fyrrgreindum afleiðingum. Skemmd-
ir vom minniháttar og engin slasað-
ist.
Heppinn áskrifandi
Ragnheiður Gunnarsdóttir einn af síðasta ári. Hér sést hún með skápinn
áskrifendum Fjarðarpóstsins var sem hún keypti fyrir vinning sinn
dregin út sem heppinn áksrifandi á skömmu fyrir jól.
Samningur um útgáfu
Aukin og bættur tækjakostur Oli Jón Ólason framkvæmdastjóri
Fjarðarpóstsins gefur möguleika á Fjarðarpóstsins samning um að
fjölbreyttari verkefnum. Á myndinni Fjarðarpósturinn sjái um útgáfu á
undirrita þeir Kjartan R. Stefánsson kynningarbækling
formaður Gistisambands íslands og Gistisambandsins.
HEPPINN
FJARÐARPÓSTURINN, BÆJARHRAUN 16,220 HAFNARFJÖRUR. Áskrift sími 5651945, Auglýsingar 5651745, Fax 565 0835