Fjarðarpósturinn - 29.06.1995, Blaðsíða 3
Gaman er að ganga um höfnina og njóta kyrrðarinnar.
Byggðasafnið en þar er gott að hefja skoðunarferðir.
Upplýsingmið-
stöð ferða-
manna fyrir alla
skemmtigarður prýddur fjölda sjald-
gæfra trátegunda. Hamarkotslækur-
inn á sögufræðilegu hlutverki að
gegna í sögu Hafnarfjarðar og reynd-
ar landsins alls, því þar reisti Jóhann-
es Reykdal fyrstu rafstöð á Islandi.
Hamarinn með sína konunglegu álfa-
byggð og frábært útsýni, en upp á
Hamrinum finnum við Flensborgar-
skóla, fjölbrautarskóla Hafnarfjarðar,
en nafnið minnir okkur á
dönsk/þýsku borgina Flensborg, það-
an sem kaupmenn fyrri tíma komu.
Uppi á Hamrinum er líka eina lokaða
klaustrið á Islandi. I útjaðri og ná-
grenni bæjarins finnum við Hvaleyr-
ina þar sem talið er að Víkingurinn
Hrafna-Flóki og hans menn hafi
komið árið 860. Nú er þar eins og
áður segir golfvöllur Hafnftrðinga.
Malimar í austurhluta bæjarins eru
minnjar um mikla saltfiskverkun út-
gerðarmanna í Hafnarftrði, en þama
voru miklar breiður saltfisks breiddur
út á góðvirðisdögum. Sunnan við
Hafnarfjörð er Asfjallið sem er 127
metra há ísaldarhæð þar undir er As-
tjöm og bærinn Ás. Þama er sérstakt
fuglalíf og gróðurfar. Rétt þama hjá
er hið nýja íþróttasvæði Hauka. Enn
sunnar á móts við álverið er svo að
finna friðlýsta foma kapellu sem
helguð er dýrðlingi ferðamanna St.
Barböru og síðan sunnan við álverið
er svo listamiðstöðin Straumur í
gömlu burstabyggðum bæ.
Hér er aðeins stiklað á stóru og
marga merka staði er hægt að telja
upp til viðbótar en við nemum hér
staðar að sinni.
Gönguferð um bæinn
Oft er það svo að nánasta um-
hverfið verður manni svo tammt að
maður hættir að veita því athygli. Það
er því góð tilbreyting hjá fjölskyld-
um, eða vinahópum að taka einn og
einn dag eða eina og eina kvöldstund
til að ganga um sitt nánasta umhverfi
og reyna að skoða það eins og
ókunnugir, eða ferðamenn sjá það.
Getur verið skemmtilegt að taka sér
slíka göngu og ganga um hina ýmsu
stíga og göngubrautir sem víða liggja
og eru ekki þær leiðir sem maður fer
dags daglega á leið til og frá heimili
sínu, skoða húsagerðarlistina, sem
oft er stórkostleg, en maður tekur yf-
irleitt ekki eftir, skoða garðana og
umhverfið. Síðan er hægt að fikra sig
inn í önnur hverfi bæjarins og þannig
koll af kolli þar til maður þekkir
heimabæ sinn. Þetta er holl útivera,
skemmtilegt fjölskyldugaman, þar
sem fjölskyldan er saman að skoða
og læra. Hjá flestum sem byrja á
þessu verður þetta til að fjölskyldan
fer að fara meira saman út í náttúruna
og verða meira meðvituð um um-
hverfi sitt, um leið og hún nýtur þess
að vera saman.
Það eru ekki nema tæp tíu ár
síðan fyrsta alvöru upplýsinga-
miðstöð fyrir ferðamenn var opn-
uð í Reykjavík. I samstarfsamn-
ing sem Ferðamálaráð, ferða-
málasamtök landshlutana og
Reykjavíkuborg gerðu með sér
var gert ráð fyrir að á næstu
árum kæmu síðan upplýsinga-
miðstöðvar vítt og breytt utn
landið, mismunandi stórar, eftir
því hvar þær væru staðsettar. Það
virtist í fyrstu vera útbreiddur
misskilningur á meðal íslendinga
að þessar miðstöðvar væru aðal-
lega eða eingöngu ætlaðar útlend-
um ferðamönnum, en það hefur
breyst með árununt.
Fyrir nokkrum árum var Upplýs-
ingamiðstöð ferðamála opnuð hér í
Hafnarfirði og samkvæmt upplýs-
ingum frá Rögnvaldi Guðmunds-
syni, ferðamálafulltrúa, fer það sí-
fellt meira í vöxt að Islendingar
komi til að fá þar upplýsingar, bæði
þegar þeir ætla að ferðast um Island
og eins þegar þeir fá erlenda gesti
sem þeir vilja leiðbeina um landið.
Þá er mikið um það að Hafnfirðing-
ar komi til að fá upplýsingar um
Hafnarfjörð til að senda vinum og
kunningjum erlendis.
Það er mjög áríðandi fyrir alla
sem ætla að njóta ferðalags, hvort
sem það er gönguferð um heim-
byggð sína, ferð um byggðir eða
óbyggðir landsins, að fá sem allra
bestar upplýsingar áður en lagt er af
stað í ferðina. Flestir sem ferðast
um ókunnar slóðir reka sig á það
þegar heim er komið að þeir hafa
misst af einhverjum markverðum
stað eða náttúru undri, ýmist af því
þeir vissu ekki um það eða að þeir
vissu ekki hvar það væri að finna.
Á Upplýsingamiðstöð ferða-
manna á Vesturgötu 8, er hægt að fá
bæklinga og upplýsingar um flesta
staði á Islandi, einnig er það starfs-
fólk sem þar vinnur fullt af fróðleik
og er tilbúið til að hjálpa fólki við
undibúning ferðainnar hvað upplýs-
ingar varðar. Það getur líka oft bent
fólki á hvar það getur fengið fyllri
upplýsingar þegar það er komið á
það svæði sem það ætlar að heim-
sækja. Það er því fyllst ástæða fyrir
fólk að heimsækja Upplýsingamið-
stöðina þegar það hyggur á ferða-
lag, hvort sem það er til að ferðast
um Hafnarfjörð, með fjölskyldunni
eða vinum eða áður en það leggur í
ferð um landið.
Nú þessa dagana er að koma út
nýr bæklingur um Hafnarfjörð, full-
ur af nytsamlegum og fróðlegum
upplýsingum, auk þess sem í bæk-
lingnum er settar fram hugmyndir af
því sem er að sjá og tillögur um
dagsferðir um bæinn. Fjarðarpóstur-
inn vill hvetja fólk til að verða sér
úti um bæklinginn.
í Firðinum er hjá Bi 1,30 kr. lægra verð pr. Itr.
Sjálfsafgreiðsla á einni dælu
OLÍS þjónusta
á tveimur dælum