Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Qupperneq 2
2 Fjarðarpósturinn
Kór Öldutúnsskóla hélt í
sína 16. utanlandsferð í sumar
og var förinni heitið á kóramót
í San Francisco. A kóramótinu
sem hafnfirski kórinn sótti
voru 14 kórar frá 10
þjóðlöndum og þátttakendur
voru um 600.
Kórarnir höfðu hver um sig
æft sömu verkin heima fyrir áður
en haldið var til vesturheims og
voru verkin æfð sameiginlega
þegar á staðinn var komið.
Lokatónleikarnir voru síðan
haldnir í einu helsta tónleikahúsi
San Francisco, Davies
Symphony Hall.
Kórinn kom víða fram á þessu
ferðaiagi og vakti hann mikla
athygli. Egill Friðleifsson,
stjórnandi kórsins, segir að
áhersla sé lögð á að kynna
Kór Öldutúnsskóla
á faraldafæti
Slappað af milli tónleika.
íslenska tónlist þegar kórinn er á
ferðalagi erlendis. íslensk
tónskáld hafa samið verk
sérstaklega fyrir kórinn og var
verk eftir Jón Asgeirsson flutt á
kóramótinu. í ferðina fóru 21
kórstúlka ásamt tveimur
fararstjórum og fulitrúa frá
Almiðlun ehf, sem festi ferðina á
filmu.
I kór Öldutúnsskóla eru alls
um 100 börn í þremur
aldursskiptum hópurn og hefur
kórinn ferðast til á milli 20 og 30
landa á ferðum sínum síðustu
áratugi.
Efri mynd: 600 manna kór í Davies Symphony Hall.
Neðri mynd: Við Golden Gate brúna, eitt helsta einkennistákn
borgarinnar.
Breytingar á skipulagi í
Klettabergi:
Parhúsum breytt
í fjölbýlishús
-íbúar óánægðir
Klámspólurnar komnar í leitirnar
Voru allan tímann í
vörslu lögreglunnar
Spólurnar níu sem tveir
ungir drengir fundu við
ruslagám við Samkaup á dög-
unum og greint var frá í Fjarð-
arpóstinum eru komnar í leit-
irnar hjá lögreglunni
Spólurnar voru allan tímann
geymdar í læstum skáp á lög-
reglustöðinni og röð tilviljana
réði því að ekki tókst að hafa
upp á þeim strax. Lögreglumað-
ur á vakt á þriðjudagskvöldi, en
ekki fimmtudagskvöldi eins og
haldið var, tók spólurnar, læsti
þær inni og hélt síðan í nokkurra
daga frí. Lögreglumenn leituðu
dyrum og dyngjum að spólunum
sem voru tryggilega læstar inni í
skápnum sem lögreglumaðurinn
sem var á vakt hafði einn aðgang
að.
Spólunum verður eytt hjá
Sorpu eins og vcnjulega er gert
við þá hluti sem lögreglan er
beðin um að farga.
Miklar og heitar umræður
voru í bæjarstjórn á þriðjudag
um skipulagsmál í Klettabergi.
Að.þeim loknum voru tillögur
um skipulagsbreytingar á göt-
unni felldar þannig að fyrir-
huguð breyting úr parhúsum í
fjölbýlisíbúðir var samþykkt.
Með þessari samþykkt er ljóst
að 19 nýjum íbúðum verður bætt
við í hverfinu. íbúar í Kletta-
bergi fjölmenntu á bæjarstjórnar-
fundinn þegar málið var tekið
fyrir. Ibúðum ijölgar við þetta úr
8 í 27 og telja íbúar sem Fjarðar-
pósturinn ræddi við afgreiðslu
málsins óviðunandi. Þeirtelja að
skólinn sé nú þegar sprunginn og
ekki sé hugað að þjónustu við
íbúa í hverfinu.
Tvær tillögur minnihlutans
hlutu ekki stuðning í bæjarstjórn
en þær miðuðu að að fresta eða
afturkalla samþykkt bæjarrráðs
um málið. Atkvæði féllu þannig
að meirihlutinn greiddi atkvæði
með þessum breytingum á gild-
andi skipulagi þ.e. samþykkti
fjölgun íbúða í hverfinu.
Sjónvarp
Hafnar-
fjörður í
loftið
Sjónvarp Hafnarfjörður
hefur útsendingar næstkom-
andi sunnudag kl. 17.
Sýndur verður þáttur um
þá garða sem fegrunarnefnd
Hafnarfjarðar verðlaunaði í
sumar.
Utvarp Hafnarfjörður hef-
ur hafið útsendingar frá bæj-
arstjórnarfundum og var
fyrsta útsendingin sl. þriðju-
dag en fundirnir eru haldnir
hálfsmánaðarlega. Útvarpið
fagnar 10 ára afmæli í vetur
og verður þess minnst í nóv-
ember með veglegum hætti.
Ölvun og
bflvelta
Sex ökumenn voru teknir
fyrir ölvunarakstur í um-
dæmi lögreglunnar í Hal'n-
arfirði um síðustu helgi.
Bifreið valt á Rcykjanes-
braut snemma á laugardags-
morgun þar sem finnn ölvuð
ungmenni voru innanborðs.
Síðar sama dag var einn af
fimmmenningunum stöðvað-
ur á Reykjanesbraut þar sem
hann sat undir stýri í sama
ástandi og um morguninn.
Málþing um
me tingar-
sjúkdóma
Málþing um meltingar-
sjúkdóma verður haldið í
fundarsal St. Jósefsspítala á
laugardag og er það opið al-
menningi. Á föstudag verð-
ur ráðstefna um sama mála-
flokk í Hafnarborg sem ætl-
uð er fagfólki.
Skýrt verður frá ýmsum
rannsóknum og leiðum til
sjálfshjálpar í baráttunni við
þessa sjúkdóma en framsögu
hafa helstu sérfræðingar á
þessu sviði sem eru flestir
starfandi við St. Jósefsspítala.
Málþingið hefst kl. 13 og allir
eru velkomnir. Að loknu mál-
þingi kl. 15:15 verður opið
hús á speglanadeild sjúkra-
hússins og til kl. 16