Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Blaðsíða 4
4 Fjarðarpósturinn Frá Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar Átak í stærðfræði- kennslu í grunnskólum éTW jC /s ** ■£ jrwf WltÆM^WW,j/Í MMf* mlMLMwM&MÆ ÍMwMMr i ttÁTuXJ'm, „fll-hafnfirsk“ geislaplata Ný geislaplata, Hafnarfjörð- ur í tónum er komin út. Platan innihleidur 12 lög eftir hafn- firska tónsmiði og lagahöf- unda. Hafnfirskir tónlistar- mcnn sjá um flutning laganna. Á plötunni eru lög eftir Friðrik Bjarnason, Matthías Á Mathisen, Árna Gunnlaugsson, Gunnar Gunnarsson, Björgvin Halldórs- son, Stefán Þorleifsson, Jón Þór Gíslason, Ladda og Björn Thoroddssen. Um flutning lag- anna sjá kvintett Guðmundar Steingrímssonar, Sigurður Björnsson, Margrét Eir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Laddi, Laufið, Jó- hanna Linnet, Magnús Ólafsson, Jón Þór Gíslason og hljómsveit Björns Thoroddsen. Björn Thoroddsen og Guð- mundur Steingrímsson sáu um vinnslu plötunnar og studdu Menningarmálanefnd og bæjar- yfirvöld í Hafnarfirði útgáfuna. Platan Hafnafjörður í tónum fæst m.a. hjáUpplýsingamiðstöð ferðamanna í Hafnarfirði og kostar aðeins 1490 krónur. Skólaskrifstofa Hafnarfjarð- ar mun á næstu tveimur árum standa fyrir átaki til að efla stærðfræðikennslu í grunn- skólum bæjarins. Átakið er margþætt og felst m.am í upp- lýsingaöflun, námskeiðum fyrir kennara, fundum fyrir löreldra og þróunarstarfi úti í skólunum. Sem dænii ntá nefna að gerð verður athugun meðal kennara, nemenda og foreldra varðandi áhcrslur og viöhorf til stærðfræðináms. Átak þetta er unnið að frum- kvæmi skólanefndar Hafnar- fjarðar í samráði við skóla- stjórnendur. Skólaskrifstofan hefur sam- starf við ýmsa aðila um þetta málefni og má þar nefna Rann- sóknarstofnun Kennaraháskóla íslands og Freudenthalstofnunina í Hoilandi sem er ein helsta rann- sóknar-og þróunarstofnun á sviði stærðfræðimenntunar í heimin- um og nýtur hún virðingar um allan heim. Þróunarsjóður grunn- skóla veitti styrk til verkefnisins og ráðinn hefur verið námstjóri í stærðfræði sem mun hafa um- sjón með verkefninu. Dagana 24. -27. september koma hingað dr. Jan de Lange og dr. Marja van den Heuvel-Pan- huizen frá Freudenthalstofnun- inni í Hollandi. Þau munu halda fyrirlestra og námskeið um stærðfræðinám og stærðfræði- kennsiu fyrir kennara á þjónustu- svæði Skólaskrifstofu Hafnar- fjarðar. Auk þess flytja þau opin- beran fyrirlestur á vegum Rann- sóknarstofnunnar Kennarahá- skóla íslands. Laugardaginn 27. september gest skólamönnum annars staðar að á landinu kostur á að sækja námskeið undir stjórn dr. Jan de Lange og dr. Marja van den Heu- vel-Panhuizen og kynnast hug- myndum þeirra um stærðfræði- nám og kennslu. Námskeiðið verður haldið í Frímúrarahúsinu, Ljósutröð 2, Hafnarfirði. Freudenthaistofnunin er hluti af stærðfræði- og tölvunarfræði- deild Háskólans í Utrecht í Hollandi. Stofnunin hefur síðast- liðin 25 ár stundað öflugt rann- sóknar- og þróunarstarf á sviði stærðfræðináms og kennslu í Hollandi og einnig í samstarfi við erlendar rannsóknarstofnan- ir. Ný námskrá fyrir grunn- og framhaldsskóla í Hollandi byggir á starfi Freudenthalstofnunarinn- ar og er að hefjast umbóta- og þróunarstarf á háskólastigi undir stjórn hennar. Á síðustu árum hefúr stofnun- in í auknum mæli sinnt rann- sóknar- og þróunarstarfi í Banda- ríkjunum, Verkefnið “Mathemat- ics in context’’ þar sem þróað var nýtt námsefni fyrir 5.-8. bekk í samvinnu við Háskólann í Wisconsin hefur vakið athygli í Bandaríkjunum og víðar og hefúr það leitt til þess að stofnunin vinnur nú að fjölmörgum rann- sóknar-og þróunarverkefnum víða um heim. Guðný Helga Gunnarsdóttir er námstjóri í stœrðfrœði við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar Ný ódýr falleg hornsófasett og sófasett Hornsófasett frá kr. 56.800.- stgr. Sófasett 3+1+1 í~rá kr. 65.500.- stgr. Verð sem lítandi er á! Erum ávallt með mikið úrval af notuðum vel meðförnum húsgögnum Margar gerðir og stærðir af nýjum myncLum og fallegum myndarömmum NOTUÐ & NÝ HÚ860ÖB Smiðjuvegi 2 við hliðina á Bónus • Sími 587 6090 • Pax 587 6091

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.