Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Page 6

Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Page 6
6 Fjarðarpósturinn Rómversk görigubrú á Áslandi Nýstárleg göngubrú hefur verið byggð á útivistarsvæðinu við Ástjörn. Brúin er hlaöin með grjóti úr Áslandi og er byggð í boga, í rómverskum stíl. Guðjón Kristinsson hefur haft veg og vanda af hleðslunni og hefur hann hlaðið svipaðar göngubrýr í Ölfusborgum í Ölf- usi. Hann segir hleðsluna vera mikið vandaverk og fyrirhugað er að hlaða aðra minni brú í sama stíl í nágrenninu. Lagðir hafa verið um 2,5 kíló- metri af göngustígum á svæðinu og var sú vinna í höndum Vinnu- skólans tvö síðustu sumur. Þegar stígarnir verða fullbúnir verður kominn um 3ja kílómetra göngu- stígur um svæðið Foreldrar sóttu námskeið í Setbergsskóla Um 100 foreldrar sóttu nám- skeið fyrir foreldra 6 ára barna sem haldið var í Setbergsskóla við upphaf skólaárs. Að sögn Jóns Olafs Ólafssonar for- manns foreldrafélags skólans var mikil ánægja með þetta framtak bæði hjá foreldrum og skólayfirvöldum. Hann segist vonast til að framhald verði á námskeiöahaldi sem þessu en þetta er í fyrsta sinn sem for- eldrum í Hafnarfiröi gefst kostur á aö taka virkan þátt í upphafi skólagöngu barna sinna. Utgefandi: ALMIÐLUN ehf, Trönuhrauni 6, 220 Hafnarfirði. Sírnar: Ritstjórn: 565 1766. auglýsingar: 565 1745. Fax: 565 1796. Netfang: Aliuullun@isholf.is Framkvæmdastjóri: Sæmundur Stefánsson. Stjórnarformaður: Oli .lón Olason. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hólmfríður Þórisdóttir. Markaðs- og auglýsingastjóri: Oli Jón Olason. Fjármálastjóri og innheimta: Steinunn Hansdóttir. Umbrot: Guðm. J. Guðjónss. Dreifing: Póstur&Sími Prentun: Steinmark. Fjarðarpósturinn er aðili að Samtiikum bæjar- og héraösfréttablaða. Egill Strange sýnir í Hafnarborg „Hef verið að smíða frá því ég gat haldið á hamri" Sýning á verkum Egils Ólafs Strange var opnuð í Hafnar- borg 6. september sl. Á sýning- unni eru verk hans frá ýmsum tímum bæði útskurðarverk og líkön scm og ýmis mót sem liann hefur gert í gegnum tíð- ina. Egill nam við Handíða- og myndlistaskólann árin 1944-45 og módelsmíði lærði hann af Sigurði Jóns- syni módelsmið. Þekktastur meðal Hafnfirðinga er Egill sjálfsagt fyrir kennslustörf sín en hann kenndi við Flensborgarskóla um 30 ára skeið. „Ég hef verið að smíða síðan ég gat haldið á hamri“ sagði Egill er Fjarðarpóst- urinn leit inn á sýn- ingu hans á dögun- um. „Þetta er fyrsta sýningin sem er hald- in á verkum mínum og það voru börnin og félagar mínir sem stóðu fyrir þessu.“ Svo skemmtilega vill til að Egill fagnar einmitt 70 ára afmæli sínu þann 22. september eða síðasta sýningardaginn. „Þetta krefst mikillar vinnu og ekki síður þess að maður sé nokkuð þolinmóður." segir Egill en allir munirnir eru úr tré. Hann segist skera mest í birki, það sé þægilegur viður að vinna með. Á sýningunni eru nokkur húsalíkön. Eitt þeirra sýnir Holdsveikraspítalann sem stóð uppi á árunum 1898-1943 og er líkanið í eigu Oddfellowreglunn- ar á Islandi. Það er unnið útfrá teikingum sem til voru af húsinu og sýnir reisulega byggingu með fjölda útihúsa. Annað Iíkan er af Flensborgarskólanum sem brann árið 1937 en kennarar við skól- ann afhentu skólanum líknanið að gjöf er skólinn fagnaði 100 ára afmæli sem framhaldsskóli 1982. Líkan af Volvo strætisvagni ár- gerð 1968 vekur mikla athygli en það er í eigu Strætisvagna Reykjavíkur. Egill segir að nokk- uð sé um það að til hans sé leitað með að smíða ýmsa gripi fyrir hina og þessa aðila. Á sýning- unni er einnig að finna líkan af hinu nýja skátaheimili sem nú er að rísa á Víðistaðatúni. Skátafé- lagið Hraunbúar á líkanið en Eg- ill hefur verið virkur í skáta- hreyfingunni um árabil. „Ég er ekki með neitt sérstakt í smíðum núna“ segir Egill „kannski eina eða tvær gesta- bækur“ en þess má geta að bæk- urnar sem Egill hefúr skorið í við hin ýmsu tilefni eru orðnar yfir 80 talsins. Egill kennir nú við Námsflokka Hafnaríjarðar og er leiðbeinandi í útskurði við starf aldraðra í Reykjavík. Egill við líkan af Volvo strœtisvagni, þeim fyrsta sinnar tegundar sem notaður var eftir að skipt var í hœgri umferð. Nafnarnir Egill afastrákur og Egill Stange vió leikfangahornið. Stólinn sem merktur er Egill Ölafur á Egill yngri.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.