Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Síða 6
6 Fjarðarpósturinn
Rómversk görigubrú
á Áslandi
Nýstárleg göngubrú hefur
verið byggð á útivistarsvæðinu
við Ástjörn. Brúin er hlaöin
með grjóti úr Áslandi og er
byggð í boga, í rómverskum
stíl.
Guðjón Kristinsson hefur haft
veg og vanda af hleðslunni og
hefur hann hlaðið svipaðar
göngubrýr í Ölfusborgum í Ölf-
usi. Hann segir hleðsluna vera
mikið vandaverk og fyrirhugað
er að hlaða aðra minni brú í
sama stíl í nágrenninu.
Lagðir hafa verið um 2,5 kíló-
metri af göngustígum á svæðinu
og var sú vinna í höndum Vinnu-
skólans tvö síðustu sumur. Þegar
stígarnir verða fullbúnir verður
kominn um 3ja kílómetra göngu-
stígur um svæðið
Foreldrar sóttu námskeið
í Setbergsskóla
Um 100 foreldrar sóttu nám-
skeið fyrir foreldra 6 ára barna
sem haldið var í Setbergsskóla
við upphaf skólaárs. Að sögn
Jóns Olafs Ólafssonar for-
manns foreldrafélags skólans
var mikil ánægja með þetta
framtak bæði hjá foreldrum og
skólayfirvöldum. Hann segist
vonast til að framhald verði á
námskeiöahaldi sem þessu en
þetta er í fyrsta sinn sem for-
eldrum í Hafnarfiröi gefst
kostur á aö taka virkan þátt í
upphafi skólagöngu barna
sinna.
Utgefandi: ALMIÐLUN ehf,
Trönuhrauni 6, 220 Hafnarfirði.
Sírnar: Ritstjórn: 565 1766.
auglýsingar: 565 1745.
Fax: 565 1796.
Netfang: Aliuullun@isholf.is
Framkvæmdastjóri:
Sæmundur Stefánsson.
Stjórnarformaður:
Oli .lón Olason.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hólmfríður Þórisdóttir.
Markaðs- og auglýsingastjóri:
Oli Jón Olason.
Fjármálastjóri og innheimta:
Steinunn Hansdóttir.
Umbrot: Guðm. J. Guðjónss.
Dreifing: Póstur&Sími
Prentun: Steinmark.
Fjarðarpósturinn er aðili að Samtiikum bæjar- og héraösfréttablaða.
Egill Strange sýnir í Hafnarborg
„Hef verið að smíða frá því
ég gat haldið á hamri"
Sýning á verkum Egils Ólafs
Strange var opnuð í Hafnar-
borg 6. september sl. Á sýning-
unni eru verk hans frá ýmsum
tímum bæði útskurðarverk og
líkön scm og ýmis mót sem
liann hefur gert í gegnum tíð-
ina.
Egill nam við Handíða- og
myndlistaskólann
árin 1944-45 og
módelsmíði lærði
hann af Sigurði Jóns-
syni módelsmið.
Þekktastur meðal
Hafnfirðinga er Egill
sjálfsagt fyrir
kennslustörf sín en
hann kenndi við
Flensborgarskóla um
30 ára skeið.
„Ég hef verið að
smíða síðan ég gat
haldið á hamri“ sagði
Egill er Fjarðarpóst-
urinn leit inn á sýn-
ingu hans á dögun-
um. „Þetta er fyrsta
sýningin sem er hald-
in á verkum mínum
og það voru börnin
og félagar mínir sem
stóðu fyrir þessu.“
Svo skemmtilega vill
til að Egill fagnar einmitt 70 ára
afmæli sínu þann 22. september
eða síðasta sýningardaginn.
„Þetta krefst mikillar vinnu og
ekki síður þess að maður sé
nokkuð þolinmóður." segir Egill
en allir munirnir eru úr tré. Hann
segist skera mest í birki, það sé
þægilegur viður að vinna með.
Á sýningunni eru nokkur
húsalíkön. Eitt þeirra sýnir
Holdsveikraspítalann sem stóð
uppi á árunum 1898-1943 og er
líkanið í eigu Oddfellowreglunn-
ar á Islandi. Það er unnið útfrá
teikingum sem til voru af húsinu
og sýnir reisulega byggingu með
fjölda útihúsa. Annað Iíkan er af
Flensborgarskólanum sem brann
árið 1937 en kennarar við skól-
ann afhentu skólanum líknanið
að gjöf er skólinn fagnaði 100
ára afmæli sem framhaldsskóli
1982.
Líkan af Volvo strætisvagni ár-
gerð 1968 vekur mikla athygli en
það er í eigu Strætisvagna
Reykjavíkur. Egill segir að nokk-
uð sé um það að til hans sé leitað
með að smíða ýmsa gripi fyrir
hina og þessa aðila. Á sýning-
unni er einnig að finna líkan af
hinu nýja skátaheimili sem nú er
að rísa á Víðistaðatúni. Skátafé-
lagið Hraunbúar á líkanið en Eg-
ill hefur verið virkur í skáta-
hreyfingunni um árabil.
„Ég er ekki með neitt sérstakt í
smíðum núna“ segir Egill
„kannski eina eða tvær gesta-
bækur“ en þess má geta að bæk-
urnar sem Egill hefúr skorið í við
hin ýmsu tilefni eru orðnar yfir
80 talsins. Egill kennir nú við
Námsflokka Hafnaríjarðar og er
leiðbeinandi í útskurði við starf
aldraðra í Reykjavík.
Egill við líkan af Volvo strœtisvagni, þeim fyrsta sinnar tegundar sem notaður var
eftir að skipt var í hœgri umferð.
Nafnarnir Egill afastrákur og Egill Stange vió leikfangahornið. Stólinn sem merktur er Egill Ölafur á Egill
yngri.