Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Side 7
Fjarðarpósturinn 7
Aðstandendur hafnarfjarðarleikhússins og Islenska leikhússins i áhorfendabekkjunum- aldreiþessu vant.
Hafnarfjarðarleikhúsið í startholunum
Þrjár frumsýningar
á íslenskum verkum
Þriðja starfsár Hafnarfjarð-
arleikhússins er að hefjast og
verður fyrsta sýning vetrarins
unnin í samvinnu við ísienska
leikhúsiö. Ymsar nýjungar
verða í starfseminni í vetur og
geta væntanlegir áhorfendur
farið að búa sig undir
spennandi leikár.
I október nánar tiltekið þann
11. verður frumsýnt leikritið
Draumsólir vekja mig,
samstarfsverkefni Hermóðar og
Háðvarar og íslenska
leikhússins. Verkið er unnið
uppúr skáldskap Gyrðis
Elíassonar þremur bókum hans
og ljóðum. Leikgerðin er eftir
Þórarin Eyíjörð og með er hann
einnig leikstjóri. i leikritinu
koma fram margir af þekktustu
leikurnum þjóðarinnar af yngri
kynslóðinni, Asa Hlín
Svavarsdóttir, Harpa Arnardóttir,
Alma Guðmundsdóttir, Þorsteinn
Bachmann, Valgeir Skagfjörð,
Hinrik Olafsson, Þröstur
Guðbjartsson, Skúli Gautason og
Jón Stefán Kristjánsson.
Tröll og forynjur
Fyrri frumsýning Hermóðar
og Háðvarar í vetur verður
leikritið Siðasti bærinn i dalnum
sem flestir sem komnir eru á
þrítugsaldurinn ættu að kannast
við. Kvikmynd efir þessari
mögnuðu sögu Lofts
Guðmundssonar var sýnd
reglulega í ríkisssjónvarpinu á
árum áður og er löngu orðin
klassísk. Sagan kom líka út á bók
um 1950.
Leikritið fjallar um baráttu
góðs og ills og koma álfar, tröll
og huldufólk mjög við sögu.
Leikgerð er eftir Hilmar Jónsson
og Gunnar Helgason.
Nýir leikarar hafa gengið til
liðs við Hermóð og Háðvör í
þessu verki en með hlutverkin
fara Björk Jakobsdóttir, Jón St.
Kristjánsson, Halldór Gylfason,
María Ellingsen og Gunnar
Helgason. Leikstjóri er Hilmar
Jónsson.
Nýtt íslenskt verk í vor
Þorvaldur Þorsteinsson er að
skrifa nýtt leikverk fyrir
Hafnafjarðarleikhúsið sem tekið
verður til sýninga í vor. Nýjasta
verk Þorvalds, Bein útsending, er
nú sýnt í Loftkastalanum.
Þorvaldur er í hópi fremstu
leikritahöfunda á íslandi.
Ýmis konar leiklistarnámskeið
verða fyrir börn og unglinga í
vetur og einnig
undirbúningsnámskeið fyrir þá
sem hyggjast þreyta inntökupróf
í Leiklistarskólanum í vor.
Nýtt leiksvið verður tekið í
notkun í haust, á þriðju hæó
gömlu Bæjarútgerðarinnar sem
hefur hlotið nafnið Efra sviðið.
Þar verður ýmis konar starfsemi í
vetur, leiklestrar, upplestrar,
„uppistand“ og svokallað
„theatre sport“, þar sem allt getur
gerst og byggir mjög á samspili
áhorfenda og leikara.
Veitingasala verður á Efra
svióinu og framkvæmdastjóri
þess er Björk Jakobsdóttir.
Forvorn er
fyrirhyggja
Málþing um meltingarsjúkdóma
Haldið í fundarsal St. Jósefsspítala
laugardaginn 20.09.97 kl. 13:00
Málþingið er öllum opið
13:00-13:05 Málþingið sett Árni Sverrisson framkvæmdastjóri
Fundarstjóri: Gunnhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri
Tími Efni Fyrirlesari
13:05- 13:25 Meltingarsjúkdómar - nýjungar í greiningu og meðferð Ásgeir Theodórs yfirlæknir
13:35- 13:45 Hægðatregða - leiðir til sjálfshjálpar Kristín Ólafsdóttir hjúkrunardeildarstjóri
13:45- 14:05 Langvinn hægðatregða/ hægðaleki Kjartan Örvar læknir
14:15- 14:35 Fyrirspurnir - Hressing
14:35- 14:50 Offita - faraldur næstu aldar? Gunnar Valtýsson læknir
14:50- 15:00 Offita - stuðningur til sjálfshjálpar Bergþóra Karlsdóttir hjúkrunardeildarstjóri
15:10-15:15 Fyrirspurnir Ásgeir Theodórs yfirlæknir
MálÞingi slitið
Opið hÚS á speglanadeild
St. Jósefsspítala kl. 15:15- 16:00
Sýning - nýjar rannsóknaraðferðir
Bæjarbúar!
Notið þetta einstaka tækifæri til að fræðast af
sérfræðingum og bera fram fyrirspurnir
Við erum L árs!!!
Föstudaginn 19. Sept. er Qleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL 1. árs.
Verslunin hefur staðið við loforð sitt um að bjóða gæðagleraugu á
góðu verði og kemur til með að gera það um ókomna tíð.
Hún er líklega sú ódýrasta og hlýlegasta gleraugnaverslun sem
fyrirfinnst norðan Alpafjalla.
Afmœlisvikuna sem og allar aðrar vikur bjóðum við alla velunnara
velkomna í hlýlega verslun okkar að Reykjavíkurvegi 22.
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
Reykjavíkurvegi 22, Hafnarfirði,
3SL sími 565 5970, heimasíða www.itn.is/sjonarholl