Fjarðarpósturinn - 18.09.1997, Qupperneq 8
8 Fjarðarpósturinn
wmtm
30 ár á íslandi
TILBOÐSDAGAR
á CANDY þvottavélum
og kæliskápum
GOÐUR AFSLATTUR
'RAFBÚÐ/N
Álfaskeiði 31 • Sími 555 3020 •
■S"
Fjarðarkaups Apótek
Hólshrauni 1B.
Afgreiðslusími 555 6800,
Læknasími 555 6801, bréfasími 555 6802
mastey
HÁRVÖRUR^
Kynning
föstdaginn 19. sept.
Frá kl. 14.00-18.00
20% afsláttur
Fitt apótel^
Opið á sama tíma og Fjarðarkaup
Tveggja milljóna króna tap á Víkingahátíð
„Víkingahátíðin er komin
til að vera“
Rúmlega tveggja milljóna
króna tap varð á Víkingahátíð-
inni sem haldin var í sumar en
það er um helmingi minna tap
en á hátíðinni 1995. Helsta
skýringin er sú að minni að-
sókn var að hátíðinni cn búist
var við og setti veðrið þar strik
í reikninginn. Reiknað var með
13-14.000 gestum á hátíðina.
Niðurstaðan var sú að um
10.000 manns greiddu að-
gangseyri að svæðinu.
Rögnvaidur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Landnáms
sem stóð að Víkingahátíðinni
segir að stefnt sé að Víkingahá-
tíð 1999 sem verður smærri í
sniðum Þá er stefnt að myndar-
legri hátíð árið 2000 í tilefni af
landafundum Leifs Eiríkssonar
fyrir 1000 árum og jafnvel að
nokkrir aðilar taki sig saman um
að minnast þeirra.
„Forseti íslands, Hr. Ólafur
Ragnar Grímsson hefur viðrað
þá hugmynd að þeir aðilar í
ferðaþjónustu sem gera út á vík-
ingatímann taki sig saman og
minnist þeirra tímamóta. Hafnar-
fjörður gæti verið í forystuhlut-
verki í þeirri vinnu" segir Rögn-
valdur.“ Því má ekki gleyma að
þegar um 650 erlendir gestir
koma hingað, eins og var á Vík-
ingahátíð, gagngert til að sækja
viðburð sem þennan, þá skilar
það auknum tekjum fyrir þjón-
ustuaðila í bænum. Við ætlum
líka að endurskoða það hve
marga daga hátíðin stendur yfir
og þjappa dagskránni þá betur
saman.“
Rögnvaldur segir að mikill
velvilji sé varðandi hátíðina og
þverpólitísk samstaða meðal
bæjarfulltrúa um að halda hátíð-
ina í Hafnarfirði. Bæjarfulltrúar
tóku virkan þátt í hátíðinni í
sumar. Hún hafi vakið athygli á
bæjarfélaginu á jákvæðan hátt og
hátíðin hafi fengið góða umfjöll-
un í íjölmiðlum.
Rögnvaldur segir að á næstu
víkingahátíð verði lögð áhersla á
að hin forna menning víkinganna
komi meira fram og minna verði
um bardagasýningar og meiri
áhersla lögð á handverk þessa
tínia og almenna lifnaðarhætti.
Landnám er að hálfu í eigu
Hafnarfjarðarbæjar og eiga
ferðaskrifstofur og Flugleiðir
hinn helminginn.
„Þetta félag, Landnám, þarf að
starfa allt árið en ekki bara í
kringum hátíðirnar. Við fáum
fyrirspurnir í hverri viku um
næstu hátíð hér á upplýsinga-
skrifstofu ferðamála og það þarf
að halda þessu starfi lifandi og
gera áætlanir fram í tímann. Vík-
ingahátíð í Hafnarfirði er komin
til að vera.“ sagði Rögnvaldur að
lokum.
Breskur Ieiöbein-
andi í útskurði hélt
tvö námskeiö í
Flensborgarskóla í
siðustu viku.
A myndinni er
hann að sýna
áhugasömum
þáttakendum réttu
vinnubrögðin við
útskurðinn og nem-
endurnir fylgjast
einbeittir með.