Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 31.08.2000, Blaðsíða 3

Fjarðarpósturinn - 31.08.2000, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 31.8. 2000 Fjarðarpósturinn 3 Stálgrímur skrifar ... sveifla haka og rækta nýjan skóg Það er eins og Stálgrím rámi í að hafa einhvern tímann sungið hendinguna hérna að ofan - oftar en ekki í einhverjum gleðskap og verið þá svo upptekinn við að skemmta sér að hann hefur ekki mátt vera að því að láta þennan tæra kveðskap ná alveg inn til hjartans og hugleiða hinn djúp- sækna en einfalda boðskap ... sveifla haka og rækta nýjan skóg. Og morguninn eftir slíka gleð- skapi hafa allir söngvar af þessu tagi verið grafnir og gleymdir þangað til í næsta eða þar næsta gleðskap. Og þó að Stálgrími finnist textinn ágætlega sönghæf- ur hefur það allt fram á þennan dag ekki hvarflað að honum eitt augnablik að taka þennan texta bókstaflega. í fyrsta lagi þyrfti eitthvað mikið til að Stálgrímur færi að nota haka væri hann í skógræktarhugleiðingum og í öðru lagi hefur hann alltaf vor- kennt því fólki sem hefiir talið sér trú um að hægt væri að rækta skóg á íslandi. Þangað til í sumar. Þá varð Stál- grímur snögglega fyrir stórkost- legri og undursamlegri opinber- un. Ekki svo að skilja að heilagur andi hafi átt þar einhvern hlut að máli eins og iðulega þegar opin- beranir eiga sér stað. Þvert á móti. Heilagur andi verður ekki með neinu móti sakaður um að hafa lokið upp augum Stálgríms og boðað honum, hálfheiðnum og lítilssigldum manninum, ný sann- indi. Stálgrímur getur með engu móti tekið undir með atvinnu- predikurum, sem segja þegar mikið liggur við: Guð talaði til mín! Nei, hins vegar gæti Stál- grímur sagt með nokkrum sanni: Guðni talaði til mín! Þannig var mál með vexti að Stál- grímur fór sem sé í sumarfrí eins og sannur íslendingur. Og ók um byggðir landsins. Ogþegar maður ekur um byggðir landsins og sér allan þann stórhug sem ný gróð- ursettir stubbar hist og her um landið vitna um - hreint eins og þeim hafi verið skotið úr þyrlu í fijóan svörð - ja þá er ekki hægt annað en að hrífast með og verða altekinn hinum sanna skógræktar- anda. Rækta hér skóg svo um munar þannig að ekki verði nokk- ur leið að sjá til hafs eða himins alla leið frá Reykjavík til Egils- staða. Verst er að Stálgrímur held- ur að hann verði dauður áður en sú stórkostlega framtíðar sýn verður að veruleika. Þetta var nú útúrdúr. Það kom sem sé á daginn að Stálgrímur var ekki búinn að tapa hæfileikanum til að hrífast í einlægri og barns- legri gleði. Né heldur hafði hann misst hæfileikann til að skipta um skoðun en fyrir allt annað hefur Stálgrímur verið þekktur um dag- ana en að skipta auðveldlega um skoðun. Eitt augnablik óttaðist Stálgrímur að hann væri að skipta um skoðun og gat vart ímyndað sér, að hann, þessi forni fjand- maður alls ræktunarstarfs, væri að verða hugfanginn af skógrækt og um það bil að ganga í flokk með skógræktarmönnum. Fjandakorn- ið, það mátti ekki ske! Og á með- an þessu efunartímabili stóð, sem að vísu var ekki langt, gerðist það æ ofan í æ að ekki var opnuð út- varpsstöð eða sjónvarpsstöð án þess þar væri ekki mættur minn maður, Guðni landbúnaðar, að setja niður Suðurlandsskóg, Norðurlandsskóg, Austurlands- skóg eins og ekki neitt. Það var sem sé Guðni sem réði sinna- skiptum Stálgríms í skógræktar- málum. Stálgrímur getur varla beðið næsta vors að fá að slást í lið með Guðna og fara í þeysireið um eyðimerkur landsins og stofna þar nýja skóga hvern á fætur öðr- um. Stálgrímur og Guðni að sveifla haka og rækta nýjan skóg....! Stálgrímur Strandgötu 11 Sími 565 1147 Námskeid fyrir eldri borgara... GrimdvrtlLmatriði upplýsingattiekni Windows stýrikerfið U'orcl ritxdnnslrt • Notkun Internetsins Námskeldid liefst 5. septembei. og líkui' 6. oktobei. Keiutt vei öm á pridjudogmn og fiinnitiuiogdin frákl. 9.00 til 1200 Náiim-i upplýsingrtr og innrituii i sinium 555 4980 og 544 4500 ... 60 árn og eldri Nýi tölvu- & viðskiptaskólinn Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sfml: 5S5 4980 - Fax: 555 4981 Hllðasmára 9- 200 Kópavogi - Síml: 544 4500 - Fax: 644 4501 Tölvupó8tfang: skoll@ntv.ls - Heimaslöa: www.ntv.ls

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.