Fjarðarpósturinn - 12.12.2002, Qupperneq 14
14 www.fjardarposturinn.is
Fimmtudagur 12. desember 2002
Jóladagskrá
í Hafnarflrði
laugardagur 14. desember
11-18 Jólahandverksmarkaður, skemmtun, tónlist og
uppákomur í Firði.
1317 Sala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar á jólatrjám á Thorsplani.
13-18.30 Strandgatan: 13 Fríkirkjukórinn 14-16 Spilandi jólasveinar 14.30-16 Flensborgarkórarnir og Þórður harmónikuleikari. 16-18 Kariakórinn Þrestir
14 Snuðra og Tuðra í Bæjarbíói. Bókasafn Hafnarfjarðar býður í leikhús, á sýningu Möguleikhússins Jólarósir Snuðru og Tuðm. Ókeypis aðgangur
15 Gaflarakórinn syngur í Firði undir stjórn Guðrúnar Ásbjörnsdóttur.
16 Kvikmyndasafn íslands í Bæjarbíói: Punktur, punktur, komma strik eftir Þorstein Jónsson. Aðgangseyrir 500 kr.
20 Jólahátíð Skátakórsins í Hafnarborg: Söngur og skemmtiatriði.
Sunmidagur 15. desember
13 Kökumeistarinn skreytir piparkökur og nafnamerkir fyrir börnin í Firði. Geiri góði trúður skemmtir.
13-17 Sala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar á jólatrjám á Thorsplani.
20.30 Kór Hafnarfjarðarkirkju með jólavöku í Hafnarfjarðarkirkju.
Miðuikudagur 18. desember
20 Jólatónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar í
Hásölum.
Gestir kórsins verða Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona,
Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari og Gunnar
Gunnarsson fiautuleikari.
Fimmtudagur 19. desember
20 Tónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar og tveggja
kóra Flensborgarskólans í Víðistaðakirkju.
Föstudagur 20. desember
21 Mozart við kertaljós
Kammerhópurinn Camerarctica heldur nú sína tíundu
kertaljósatónleika í Hafnarfjarðarkirkju.
Mikið spurt um skattafslátt
vegna hlutabréfakaupa
Spjallað við Svandísi Kristinsdóttur þjónustufulltrúa íslandsbanka:
Mikill erill er jafnan í útibúi ís-
landsbanka í Fjarðargötu á þess-
um tíma árs í tengslum við
hlutabréfaviðskipti. „Fólk kemur
mikið milli jóla og nýárs með
fyrirspumir um skattafslátt
vegna hlutabréfakaupa," segir
Svandís Kristinsdóttir, þjónustu-
fulltrúi í útibúinu. „Við höfúm
hins vegar reynt að fá fólk til að
vera fyrr á ferðinni til að koma í
veg fyrir að biðraðir myndist hjá
okkur yftr hátíðamar."
Fjölmargir hafa á undanföm-
um ámm nýtt sér skattafslátt sem
veittur er vegna kaupa einstakl-
inga á hlutabréfum. Samkvæmt
þeim reglum sem um afsláttinn
gilda getur fólk fengið allt að
60% af kaupverði hlutabréfa
dregið frá tekjuskattstofni sínum.
Reglumar munu falla úr gildi um
næstu áramót og er árið 2002 því
síðasta árið sem fólk getur notið
þessara fríðinda.
Aukinn afsláttur fyrir greið-
endur hátekjuskatts
Svandís segir að í ár nemi
skattafslátturinn rúmlega 30 þús-
und krónum fyrir einstakling en
61 þúsund fýrir hjón. „Þetta þýð-
ir að einstaklingur getur keypt
hlutabréf fyrir rúmlega 133 þús-
und krónur en hjón íyrir 266
þúsund til að nýta sér afsláttinn
að fúllu. Þeir sem greiða hátekju-
skatt fá aukinn afslátt. Einstakl-
ingur sem hefur meira en fjórar
milljónir króna í árstekjur fær
rúmlega 36 þúsund krónur í af-
slátt og hjá hjónum sem hafa
meira en átta milljónir í árstekjur
samanlagt nemur afslátturinn
tæplega 73 þúsund krónum,"
segir Svandís.
Reglumar um skattafsláttinn
voru upphaflega settar til að efla
íslenskan hlutabréfamarkað og
stuðla að auknum spamaði lands-
manna um leið. Framan af gilti
afslátturinn því einungis þegar
keypt vom hlutabréf í íslenskum
félögum en síðan árið 2000 hefur
afslátturinn gilt um öll hlutabréf
sem skráð em í kauphöll á
Evrópska efhahagssvæðinu.
Meiri áhugi vegna
viðsnúnings á niarkaðnum
Viðsnúningur hefur orðið á
íslenskum hlutabréfamarkaði á
fjessu ári og hefúr vísitala Aðal-
lista í Kauphöll Islands hækkað
töluvert síðustu mánuði. Þá virð-
ast erlendir hlutabréfamarkaðir
vera smám saman að taka við sér
áný.
lengri tíma. Fyrir flesta hentar að
kaupa hlutabréf í grónum og
traustum fyrirtækjum til að
tryggja að fjárfestingin skili arði
í samræmi við væntingar.
Skilyrði að fólk auki við
hlutabréfaeign sína
Svandís segir að fólk þurfi að
átta sig á því að það þarf að auka
við hlutabréfaeign sína yfir árið
til að geta notið skattafsláttarins.
„Ef fólk hefur selt hlutabréf á
árinu, dregst andvirði þeirra ffá
„Það er mikilvœgt aðfólk líti á hlutabréfakaupin sem langtímafjár-
festingu, “ segir Svandís Kristinsdóttir, þjónustufulltrúi í útibúi
Islandsbanka við Fjarðargötu.
„Við höfum orðið vör við að
batnandi ástand á mörkuðum hef-
ur valdið auknum áhuga meðal
fólks á að nýta sér skattafsláttinn.
Hins vegar virðist það halda aftur
af sumum að afslátturinn er
bundinn því skilyrði að fólk eigi
bréfin yfir fimm áramót. Þeir sem
kaupa hlutabréf nú mega því ekki
selja bréfin fyrr en í ársbyijun
2007. Þó getur fólk, ef það vill,
skipt út hlutabréfum á þessu
tímabili en þá verður að kaupa ný
hlutabréf fýrir sömu ijárhæð og
nemur andvirði bréfanna sem
skattafsláttur var veittur út á.“
Að sögn Svandísar leggja ráð-
gjafar Islandsbanka áherslu á að
skattafslátturinn sé hugsaður til
að auðvelda fólki að spara til
verði bréfa sem keypt hafa verið
á árinu. Afsláttur er aðeins veitt-
ur ef heildareign í hlutabréfum
eykst yfir árið.“
Hún bendir einnig á að fyrir þá
sem hafa tekjur undir skattleysis-
mörkum nýtist skattafslátturinn
til lækkunar á eignarskatti og
fjármagnstekjuskatti. „Skattaf-
slátturinn hækkar persónuafslátt
þeirra sem eru undir skattleysis-
mörkum. Aukinn persónuafslátt-
ur nýtist þeim til að minnka eign-
ar- eða fjármagnstekjuskatt.
Þetta getur komið sér vel fyrir
marga í hópi aldraðra sem hafa
litlar tekjur en eiga eignir sem
þeir þurfa að borga af,“ segir
Svandís.
|
Jólatilboð á Ijósakortum!
Stjömuféi
Fjarðargötu 17 - Sími 555 7272
- iiiiöbœ Hafnaijjaröar