Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.12.2002, Page 19

Fjarðarpósturinn - 12.12.2002, Page 19
Fimmtudagur 12. desember 2002 www.fjardarposturinn.is 19 Ástríku foreldrar Valgarður Valgarðsson lögregluvarðstjóri skrifar: Nú þegar jól og ára- mót nálgast þá langar mig, að gefnu tilefni, að biðja foreldra um að leiða hugann sérstak- lega að útivistartíma bama sinna. Það hefur sýnt sig í gegnum tíð- ina að þegar jólafrí grunnskólanna byrjar þá aukast skemmdarverk, hverskonar, nokkuð. Virðist sem foreldrar slaki nokkuð á útivistarreglunum yfir jólahátíðina og taki í staðin upp nýjar og oft miður góðar „afþvíbara" reglur. Skemmdarstarfsemin tengist oftast sölu og meðferð skotelda og blysa dagana í kringum ára- mót. Þá þykir sumum bömum og unglingum spennandi að útbúa varasamar sprengjur úr þeim skotföngum sem era á boð- stólum. Og oft kviknar skemmd- arfýsnin er skyggja og kvölda tekur og stendur jafnvel hæst þegar komið er framyfir úti- vistaratíma hjá ungu fólki. Ég hvet foreldra líka sér- staklega til að sýna ástríki og ábyrgð í verki gagn- vart börnum sínum um áramótin, líkt og alla aðra daga, og stuðla að fjölskyldu- vænu gamlárskvöldi þar sem allir fái notið sín í öraggu og ánægjulegu andrúms- lofti. Eyðum þeim ljóta ósið og ómenningu að börn og ung- menni séu úti á lífinu á nýársnótt, eftirlitslaus við óæskilegar að- stæður, jafnvel drakkinn og hættuleg sjálfum sér og öðram. Byggjum upp á heilbrigðum grunni í þessum málum, foreldr- um og ekki hvað síst bömunum okkar til heilla. Það hefur sýnt sig að þegar böm og ungmenni lenda hvað oftast í vandræðum og óæski- legum aðstæðum sem þau kunna ekki að ráða fram úr þá er það eftir að útivistartíma þeirra lýkur. Böm era foreldrum sínum afar kær og því skulum við virða þau lög og reglur sem eru sett þeim til vemdar líkt og útivistarregl- unum er ætlað að gera. Þekkír hú bæinn binn? Gönguferðir um bæinn vekja mann til umhugsunar um gamla tíma og nýja. Þú leitar oft gœfutmar langt yfirskammt, þú leitar ífjarlœgð en átt hana samt. En vel skal þess gœta, hún oftast nœr er, í umhverfi þínu hið nœsta þér. Tryggvi Þorsteinsson Hollvinasamtök Flensborgarskólans www.fjardarposturinn.is/hollvinir Ert þú búin(n) að skrá þig? ^ésmíða verkstseój GYLFA ehf. Öll almenn trésmíðavinna eldhúsinnréttingar • sólbekkir • skápar Hólshrauni 5 • Sími 565 4797, 897 7947 • fax 565 7947 Uppistand í Kaffi Firði Snorri Hergill og Hjörtur Howser Mjög vel tókst til á fyrsta uppistandinu í Kaffi Firði á laug- ardaginn. Á laugardaginn kemur Hjörtur Howser í fyrsta sinn fram sem uppistandari og verður spennandi að sjá hvemig honum tekst til. Einni kemur Snorri Hergill fram en hann er einn fyndnasti maður íslands og komst í úrslit í keppni um fyndn- asta mann íslands fyrir skömmu. Uppistandið hefst um kl. 20 og aðgangur er ókeypis. Steinn Armann Magnússon hefur um- sjón með þessum skemmtilegum kvöldum. Frumburðarrétturinn - rénur okkar allra Gunnar Örlygsson stuðningsmaður Frjálslynda flokksins: Sjávarút vegsstefna Frjálslynda flokksins mun hleypa nýju lífi í byggðir landsins. Stefnan byggir á þeirri leið að strandveiði- flotinn fari allur undir sóknarkerfi, aðskilja veiðar og vinnslu og um leið stuðla að löndun alls afla á ferskfiskmarkaði. Fymingaleið j verði valin með innköllun veiði- j heimilda á 5 áram. Frystitogara-, nótaveiði- og flottrollsflotinn geta verið áfram í framseljanlegu kvótakerfi innan eins útgerðar- flokks. Þessi útgerðarflokkur getur ekki keypt heimildir niður fýrir sig úr íslenskri landhelgi. Ljóst er að þessi leið mun hleypa miklu Kfi í byggðir lands- ins. Hin erfiða umræða brott- j kasts mun heyra sögunni til, opn- j að verður fyiir nýliðun í greinina og fiskvinnslu án útgerðar verð- ur gert rétt til með þeirri skipan að öllum afla verði landað á ferskfiskmarkaði. Jöfn tækifæri, réttlæti og ftjáls samkeppni era gildi sem loks munu líta dagsins ljós eftir myrkviði undanfarinna 20 ára. Hvert bæjarfélag mun fínna fyrir miklum breytingum á stutt- um tíma. Andrúmsloftið verður J þægilegra og biturð vegna órétt- látra úthlutana mun ekki vara við. Við mun taka heilbrigð kappsemi í takt við forsjá Islend- ingsins og bæði afla- og útflutn- ingsverðmæti sjávarfangs mun stóraukast í hverri byggð fyrir sig. Oeðlilegt peningaveldi ör- | fárra fjölskyldna mun lappast niður og við tekur framburðar- réttur allra einstaklinga í hverri byggð að nýta þjóðarauðlindina. Það er ekki ætlan Fijálslynda flokksins með nokkra móti að hrifsa til sín veiðirétt núverandi kvótaeiganda, síður en svo. Einungis að jöfn tækifæri til veiða, frumburðarréttur allra j verði tryggður og réttlæti við út- | hlutun fari á annan veg en raunin er í dag. Ef fólk kýs óbreytta stjóm þá um leið kastar það frá sér frumburðaréttinum sem um getur að ofan, kastar fyrir róða val- möguleika afkomenda sinna á að starfa í greininni þegar fram í sækir og um leið lofar þá einræðisstjóm sem eingöngu stendur ósvikirm vörð við hallir þeirra valdamestu og ríkustu. Frjálslyndi flokkurinn mun auka við sig fylgi í komandi alþingiskosningum. Skarpar lín- ur verða dregnar upp í öllum málaflokkum. Flokkurinn verður gerður nútímalegri. Heimasíða flokksins mun verða öflugt mál- gagn flokksins en þar verður að finna allt sem að starfi flokksins kemur. Öflugir markaðsmenn munu ná til þeirra yngri, þeirra sem minna láta sig um lands- málin varða en þessi hópur er óvenju drjúgur. Talsmenn flokks- ins verða vandlega valdir sem og frambjóðendur flokksins en boð- ið verður ffam í öllum kjördæm- um. Umfram allt verður á ferðinni ungur flokkur sem mun berjast með kjafti og klóm og byltingar- anda fyrir réttlæti, jöfhum tæki- færam og velferðamálum þeirra sem minnst mega sín. Markmið okkar er að auka fylgi flokksins úr 4,2% í 10% á landsvísu. Ef þessi markmið okkar verða af veraleika þá mun núverandi ríkistjóm falla. Við mun taka stjóm sem mun starfa fýrir fólkið í landinu. Öll sú hagræðing og velmegun sem núverandi ríkis- stjóm stærir sig af er einungis hagræðing og velmegun fyrir stærstu fyrirtækja- og fjölskyldu- blokkir landsins. Við óbreytt ástand munu milljarðar króna halda áfrarn að streyma út úr landinu. Sýnum kjark og treystum nýju fólki fyrir stjóm þessa lands. Fijálslyndi flokkurinn vill þér vel lesandi góður. H SKÓLASKRIFSTOFA J HAFNARFJARÐAR Leikskólinn Kató Skilastaða Skilastaða er laus til umsóknar nú þegar í leikskólanum Kató Vinnutími frá kl. 15.00 til 17.30 Allar upplýsingar um starfið gefur Rán Einarsdóttir, leikskóiastjóri í síma 555 019 og leikskólafulltrúi í síma 585 5800 Fræðslustjórinn í Hafnarfirði Fréttabrot ftfgreiðslutfmi bókasafnsins styttist Anna Sigríður Einarsdóttir, forstöðumaður bókasafnins, greindi menningarmálanefnd ffá hugmyndum um breyttan af- greiðslutíma safnsins. Gert er ráð fyrir að afgreiðslutími safnsins styttist um 2 tíma á viku, opið verði til klukkan 19 alla virka daga í stað 20 mánudaga - fimmtudaga og 17 á föstudögum. Safnið verði áfram opið á laugardögum frá 11-15. Menningarmálanefnd sam- þykkti þessa tillögu og var henni vísað til fjölskylduráðs. Þyrping lif. uerðurStoðhf. Lagt fram bréf frá Fasteigna- félaginu Stoð hf. tilkynnti Hafn- aríjarðarbæ um sameiningu Fast- eignafélagsins Stoð hf. og Þyrp- ingar hf. undir nafni þess fyrr- nefnda. Það verður því Stoð hf. sem á í Norðurbakka ehf ásamt Hafnaríjarðarbæ og fleirum. ÖkumennHóp- bílaogHagvagna akauistuænt Alvarlegustu vandamálin í umferðinni í dag era umferðaslys og neikvæð umhverfisáhrif. Stærsti umhverfisvandinn sem steðjar að umhverfinu er aukin losun koldíoxíð, sem stuðlar að gróðurhúsaáhrifum. Hópbflar og Hagvagnar era meðal þeirra fyrirtækja sem era mjög meðvituð um umhverfis- áhrif starfsemi sinnar og hafa því sett sér metnaðarfulla umhverfis- stefnu. Innleiðing á umhverfis- stjómunarkerfi sem þeir stefna á að fá vottað um mitt næsta ár 2003 er í fullri framkvæmd og á áætlun. Eitt af stóra atriðum stefnunn- ar er að draga úr mengandi út- blæstri frá bflum fyrirtækisins og að auka umhverfisvimnd starfs- manna með fræðslu og þjálfun, og hvetja starfsmenn til að ffam- kvæma verk sín á umhverfis- vænan hátt. I samvinnu við Öku- skólaim í Mjódd og Ökukennara- félag fslands hefur verið útbúinn sérstakt námskeið sem er sér- sniðið fýrir starfsmenn Hópbfla. Samkvæmt reynslu erlendii frá hefur náðst 10-15% spam- aður eftir slik námskeið. Það kostar ekkert að aka á um- hverfisvænan hátt. Þvert á móú má spara með því töluverða pen- inga á ári, allt efúr því hversu mikið er ekið. lelðrétting I frétt um framboðslista Sam- fylkingarinnar féll niður sfðasta nafnið á listanum en í 22. sæti er Auður Laxness húsmóðir úr Mosfellsbæ. Er beðist velvirð- ingar á þessu.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.