Fjarðarpósturinn - 13.05.2004, Side 7
Fimmtudagur 13. maí 2004
www.fjardarposturinn.is 7
Margir áhuga-
uerðirtónleíkar
Vortónleikar í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Á næsm dögum verða fjöl-
margir tónleikar í Tónlistarskóla
Hafnarijarðar - Hásölum.
Kammersveit Tónlistarskólans
heldur vortónleika sína á laugar-
daginn kl. 15. Á efnisskránni
verður Chacony eftir H. Purcell í
útsetningu Benjamins Brittens.
Gítarkonsert í D-dúr eftir Vi-
valdi. Adagio fyrir strengi efti
Samuel Barber. Konsert fyrir
tvær fiðlur og strengi eftir J.S.
Bach og „Caprol“ svíta Peters
Warlocks.
Einleikarar með hljómsveit-
inni verða Sveinn Þórarinsson á
gítar, Huld Hafsteinsdóttir og
Sigrún K. Jónsdóttir á fiðlur.
Stjómandi Kammersveitarinnar
er Óliver Kenthis. Aðgangur er
ókeypis, en í lok tónleikanna
verður selt kaffi og heimabak-
aðar kökur sem foreldrafélag
sveitarinnar hefur bakað til
styrktar ferðasjóði sveitarinnar,
en Kammersveitin áformar að
endurgjalda heimsókn strengja-
sveitar frá Berlin á næsta ári.
Á sunnudaginn heldur kamm-
erkór Hafnaríjarðar sína árlegu
vortónleika í Hásölum sem
hefjast kl. 20. Á tónleikunum
verða fluttir Madrigalar og þjóð-
lög. Stjómandi er Helgi Braga-
son.
Vortónleikar Kórsmiðjunnar
verða mánudaginn 17. maíkl. 18
þar sem nemendur smiðjunnar
og jafnframt yngstu nemendur
skólans syngja og leika mörg
skemmtileg lög undir stjórn
Brynhildar Auðbjargardóttur.
Þriðjudaginn 18. mai verða
tónleikar framhaldsdeildar kl.
20, en á þeim tónleikum koma
fram nemendur sem lengst em
komnir í námi og flytja fjöl-
breytta efnisskrá.
Vortónleikar gmnndeildarinn-
arem miðvikudaginn 19. maíkl.
18 og Vortónleikar miðdeildar
sama dag kl. 20 Á báðum þess-
um tónleikum verður afar fjöl-
breytt efnisskrá og leikið á
ijölmörg hljóðfæri.
Kiwanis gefur
reiðhjólahjálma
Um þessar mundir fá öll sex
ára böm á landinu (fædd 1997)
reiðhjólahjálma að gjöf. Þetta er
átak til að stuðla að auknu öryggi
bama á reiðhjólum en um 4200
sex ára böm fá hjálmana að gjöf
og þrautabók sem inniheldur
fróðleik um öryggi á reiðhjóli og
þrautir.
Þetta er í fyrsta sinn sem öll
sex ára böm á landinu fá hjálm
að gjöf og að baki liggur sarnn-
ingur þriggja aðila, Kiwanis,
Eimskips og Flytjanda. Eimskip
flytur hjálmana til landsins,
Flytjandi sér um dreifinguna, og
Kiwanis menn afhenda hjálmana
í skólum landsins.
Rannsóknir sýna að hjálmur
sem er rétt stilltur kemur í veg
fyrir áverka á höfði í 85% tilfella
hvort heldur um er að ræða
árekstur við bifreið eða að bamið
detti á hjóh. Flest hjólreiðaslys á
bömum verða við fall af reiðhjóli
án þess að ökutæki komi þar við
sögu. I slíkum tilfellum dregur
hjálmurinn úr högginu ef höfuð
bamsins lendir á gangstétt,
kantsteini eða öðmm hörðum
fleti. Fimm til sex ára böm em
fær um að valda tvfhjóli, en
öryggið skiptir öllu máli. Bömin
eiga að nota reiðhjólahjálm og
mega hjóla á ömggum stöðum
þar sem þau er aðskilin frá bíla-
umferð.
Hápunktur átaksins verður
fjölskyldudagur sem haldinn
verður uin allt land á laugar-
daginn. I þrautabókinni sem
dreift verður til allra bama á
þessum aldri er að finna þrautir
sem þau leysa á fjölskyldudeg-
inum. Tekið verður við þátttöku-
seðlum á fjölskyldudaginn og
dregið verður úr seðlum þann 22.
maí næstkomandi og era
glæsilegir vinningar í boði.
Afhenging hjálma hér f bæ fer
ffam á Víðistaðatúni á laugar-
daginn kl. 11-12. Öllum bömum
verður afhent gjafabréf í
skólunum og þurfa þau að koma
með þau og fá hjálminn afhent-
ann.
Lögreglan í Hafnarfirði verður
á staðnum til leiðsagnar og
Lúðrasveit tónlistarskólans spil-
ar.
Glæsileg hleðsla
Fólk er alltaf jafn dolfallið yfir
hleðslunni yfir Lambagjá rétt við
Kaldá. Þar eru merkar leifar
fyrstu vatnsstokksins úr Kaldár-
botnum sem fleytti vatninu
áleiðis að Lækjarbotnum.
Að sögn kunnugra var grjót
sótt í gamla fjárborg sem stóð
þama rétt hjá og ofan á hleðsl-
unni var tréstokkur en þetta þótti
mikið mannvirki þegar þetta var
byggt um 1919.
Vatninu var fleytt yfir Lamba-
gjána og stuttu síðar var vatninu
hleypt í hraunið og kom það
rúmri viku síðar upp í Lækjar-
botnum.
TILBODSDAGAR
Fyrir alla fjölskylduna
áður 4.990,-
st. 36-41 • svartir
áður 4.990,-
st. 36-41 • svartir
áður 4.990.
st. 36-42
Ijósbrúnir
áður 5.490,-
st. 36-41 • drappaðir
áður 6.990,-
st. 39-47 • svartir
áður 7.990,-
st. 41-46
svartir, brúnir
áður 3.990,-
st. 28-39
svartir, rauðir
Fleiri góð tilboð!
EURO SKO
FJÖRÐUR
- ntiöbœ Hafmrjjaröar
Skóhöllin - Firði • sími 555 4420
Kringlan • sími 568 6211