Fjarðarpósturinn - 13.05.2004, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is
Fimmtudagur 13. maí 2004
Vöktu mikla athygli
Sýndu kjóla úr innkaupapokum
Sú var tíðin að hveitipokar
voru notaðir til fatagerðar og úr
þeim gerðir glæsikjólar. Þá var
gott kjólaefni af skomum
skammti en sú var ekki ástæðan
hjá henni Nikulínu Einarsdóttur
þegar hún hannaði og saumaði
kjóla úr venjulegum plastpokum
úr stórmörkuðunum í Hafnar-
firði. Hún hefur áður saumað
kjóla úr ótrúlegustu efnum og
það hafa verið félagar í Félagi
eldri borgara í Hafnarfirði sem
hafa sýnt kjólana.
Kjólana úr pokunum hafa
konumar sýnt á Hrafnistu, á
skemmtun í Örkinni og hjá
Slysavamarfélaginu og alls stað-
ar vakið mikla athygli.
Sumir kjólamir eru skreyttir
með gullfólíuafgöngum úr prent-
102 ára og vel hress
Fimm ættliðir saman komnir í afmælinu
Fimm œtlliðir; Valdís Anna, Lilja Viggósdóttir, Lilja Þorsteinsdóttir,
ísak Þorsteinsson og Kristín Guðmundsdóttir.
Kristín er uppalin á Ströndum
en bjó síðan á Isafirði um árabil
er hún fluttist til Hafnarijarðar
þar sem hún hefur búið í um 45
ár, lengst af á Flókagötunni en
fluttist svo í “Sólvangshúsin”
þegar þau vora byggð.
Kristín sagðist vera mest inni
við en hafi áður gengið mikið
enda er hún við mjög góða
heilsu. Kristín sagði við blaða-
mann Fjarðarpóstsins að hún
væri farin að gleyma aðeins en
fólk sem umgengst hana segir
hana mjög hressa og klára í
kollinum.
Hann Isak Þorsteinsson (3)
heimsótti langa, langömmu sína
og fannst pönnukökumar góðar
en hann á líka langa, langömmu
í föðurætt en það er líklega ekki
algengt að eiga eina langa,
langömmu - hvað þá tvær.
Kristín Guðmundsdóttir varð
102 ára á þriðjudaginn og hélt
upp á daginn í matsalnum á 3.
hæðinni á Sólvangi. Eðlilega var
mjög gestkvæmt og þáðu gestir
kaffi og glæsilegar kökur eins og
gerðist best fyrr á ámm. Að vísu
var kanilkaffi ekki í boði eins og
Kristín bauð svo oft uppá og
þótti svo gott.
smiðju og vom hinir glæsileg-
ustu eins og sjá má á myndinni.
Söftinðu fyrir læk
(9), Hulda D. Jónasdóttir (10),
Geir Andersen (10), Yr Stein-
þórsdóttir (9), Benedikt Her-
bertsson (7).
Nokkrir krakkar í Lækjarskóla
héldu hlutaveltu og söfnuðu fé
fyrir Læk sem er dagvistun fyrir
fólk með geðraskanir og er næsta
hús við Lækjarskóla. Krökk-
unum var boðið í morgunmat þar
sem þau afhentu peningaupp-
hæðina. Þau heita:
Fanney Ösp Finnsdóttir (12),
Högna Kristbjörg Knútsdóttir
(9), Melkorka Knútsdóttir (5),
Guðlaug Þóra Gunnarsdóttir (9),
Brynhildur M. Herbertsdóttir
Dekurgróðrarstöðin Þöll
Gróörarstöð áhugamanna um garðrækt - og fagmanna
Það grænkar óðum á svæði
Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Félagið hefur nýlega stofnað
fyrirtækið Gróðrarstöðina Þöll
ehf. sem mun sjá um framleiðslu
og sölu á trjám og mnnum.
Að sögn Steinars Björgvins-
sonar ræktunarstjóra er þessa
dagana verið að setja upp ný
borð á söluhlaði, sem þau kalla
svo, fyrir framan þjónustubygg-
inguna. Segir Steinar stöðina
vera hálfgerða dekurstöð þar
sem þar séu ræktaðar fleiri
tegundir en víðast hvar annars
staðar og stöðin sé orðin þekkt
fyrir það að þar sé hægt að fá
sjaldgæfari tegundir mnna og
trjáa og þama sé allt heima-
ræktað. A stöðinni er viðskipta-
vinum veitt fagleg ráðgjöf og
þama má fá skrautrunna, beija-
mnna og allt upp í stór tré og
stöðin þjónusti einstaklinga,
fyrirtæki, stofnanir og bæjar-
félög.
Opið er mánudaga til fimmtu-
daga frá kl. 8-16, á föstudögum
kl. 8-20 og á laugardögum kl.
10-16.
Félagar í skógræktarfélagi fá
15% afslátt hjá Þöll þrátt fyrir
lágt vömverð.
Steinar með Bergsóley,
skemmtilega klifurjurt.