Fimmtabekkjarförin 1943 - 01.06.1943, Síða 10
8
neraa hálfan vaeturgaflinn.. og nokkra glugga* Vínnuhraði hitaveitunnar
var likur og um morguninn, Hreingerningar voru.litlar, og sló flokk^
urinn hitaveituna alveg át i vinnuhraða, íQ,.3,30 var kaffi drukkið,
og aiðan f6ru menn át um hvippinn og hvappinn, Jðkat nú mjög fylgi
þeirra, sem aðhyltuit kenningar "drullismans”0 Um kvöldið bættust
enn þrir við h6pinne En það voru þeir Sveinn.Torfi Gústafsson Sveins-
son, vopnaður tveim mynaavélum og tólf filmum, Guðmundur Arnason cg
Gunnar Helgason i rosalegum reiðstigvélum,,
Kvöldverður var etinn kl6 7. ,'Veðrið var ágætt þennan dag
fram að hádegi, en þá hvessti dr norðri, lygndi svo aftur um miðjan
dag! og var ágætt ve?ur komið aftur um kvöldið, Máladeildin hafði
ávallt hugað á hefndir eftir ðfarirnar á sunnudaginn, Kepptu þeir
þvi við stærðfræðideildina eftir kvölamat6 Lauk þeim leilc með algerum
sigri máladeildarinnar, er vann með 9 mörkum gegn 20 Léku menn sér
úti góða stund, þar til safnazt.var inne Var þá skemmt með eftirherm-
um, það sem eftir var kvöldsinsc íyrst léku þeir Karl J, Guðmundsson.
og Haraldur Arnason hið alkunna ”Bjölluhneyksli’1 úr 5e bekk 0 i vetur,
og tókst það vel af báðum aðilumtt Þá hermdi Karl eftir ýmsum kennurum
og t6kst með ágætum vel0 Auk þess hermdu þeir Thor Gv Vllhjálmsson
og Geir IJallgrímsson eftir ýmsum þeklctum st3órnmálamönnum0 Þarf ekki
að segja, að alllr skemmtu sér velc Kl0 12e30 var gengið til hvilu,
Miðvikudagurinn rapn upp all-drungalegur ásýndum, Blés
iskaldur þéttindsvindur að norðan„ Bliknuðu þá vonir margra um gott
ferðaveður. Allt gekk sinn vana gang þennan morgun, Póru menn yfir-
leitt rólega i sakirnar, Hjálpuðust menn þar jafnt að málarar sem
hitaveitumenn. Þennan morgunn fór rektor Í bæinn ásamt Nielsi Parsberg,
sem var mjög aumur i löppinni, Karli Je Guðmundssyní Guðmundi Þórarins*
syni og.Skúla Norðdaþl, Tiðindalaust var á öllum yigstöðvum fram til
hádegis* Kl, 11,30 var etið nýtt kjöt og kjöfsúpa, sem þótti ágætur
rnatur, Hinn nýi undirbryti, Haraldur Arnason, stóð sig ágætlega i
nýju stöðinni, Eftir hádegi óx kuldinn og vindurinn um allan hijlming,
Króknuðu þá sumar hetjurnar úr kulda og héldu sig mest ínnf viðt það
sem eftir var dagsins, Kakð var drukkið á venjulegum tima, og var
ekkert aðhafzt, þar til kvöldverður var etinn kl, 7, Eftir. kvöldverð
héldu qienn uppteknum hættl, þangað til skemmtinefnd, þ,e.a,s0 sá hluti
hennar#.sem viðstaddur var, boðaði til fundar„ Pormaður hennar, Sveinn
Arnason, tilkynnti skemmtiatriði, lyrst las Björn Tryggvason annað