Helsingi

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Helsingi - 01.06.1945, Qupperneq 6

Helsingi - 01.06.1945, Qupperneq 6
6 -H E L S I N G I övd sending til væntanlegra kaupenda blaðsins. Þeir, sem vilja geta gerst áskrifendur að Helsingja og verður það þakksam- lega þegið, en nokkuð verður það að vera með öðrum hætti en venjulegast er sökum þess óráðna um framtíðarmögu- leika þess um stærð og tölublaðafjölda. Verða áskriftargjöld því ekki miðuð við ársfjórðunga — eða árgjöld, held- ur við eintaksverð, sem verður hið sama til áskrifenda og í lausasölu, eða 2 krónur hvert tölublað hvort sem um 12 eða 4 síður er að ræða. Er nánara gerð grein fyrir verði blaðsins hér á öðrum stað. En ávinningur áskrifenda liggur vilanlega í því að þeir fá blaðið sent þpim til sín í pósti, eða borið út af útsölumönnum. Víða er það og að ekki verður unnt að koma lausasölu við, og verður þá áskrift eina leiðin til að eignast blaðið fyrir þá sem vilja styrkja viðleitni mína. — Ekki er hægt að gerast áskrifandi að minna en fimm tölublöðum — en svo er hverjum í sjálfsvald sett hve margra tölublaða á- skrift hann sendir, fram í tímann, ef ekki fylgir fyrirframgreiðsla. En þeir er það vilja og góðfúslega greiða fyrir- fram eru heðnir að taka það til greina, að ekki verður veitt móttaka slíkum fyrirf ramgreiddum áskriftargj öldum fyrir meira en 5 blöð eða áætlaðan lágmarks tölublaðafjölda til áramóta. Annars er lil þess ætlast að áskriftar- gjöld verði greidd til útsölumanna, eða sent beint til mín fyrir hver 5 blöð í senn við móttöku sjötta tölublaðsins o. s. frv. Verða svo ekki teknar frekari ákvarð- anir um áskriftir að sinni. En þeim, sem fyrstir senda mér áskriftir sínar kem ég til að skulda meira þakklæti en orð mín hér gætu túlkað. HELSINGI Ritstj. og útgef. STEINDÓR SIGURÐSSON Heimilisfang blaðsins: Kristneshœli. Verð kr. 2. ÚR MYRKRI HINNA LÖNGU NÓTTTA. (Framh. af 1. síðu). „Orðsendingu“ í 1—200 eintökum. Þar reyndi ég nokkuð að gera skilj- anlega grein fyrir því, að itréf mitt hefði þá þegar náð fyllilega tilgangi sínum, hvað mig snerti persónulega. Þar reyndi ég einnig að færa fáein en augljós rök fyrir því að ákall mitt var knúið fram úr öðrum og ægilegri djúpum hugsana og til- finninga, heldur en einstaklings- sársauki, algerlega bundinn stundar- skynjunum, hefði getað skapað, vegna öfugstreymis líðandi stunda gegn persónulegum tilfinningum og geðbrigðum; — knúið fram af ólíkt máttugri vitundaröflum, en risið gátu upp við sársauka frá spjóts- stungum stundrænna atvika daglegs lífs í opna kviku hugsanalífsins, — þessara tímabundnu atriða, sem til samans voru svo eðlileg og táknræn smámynd alls hins samfélagslega lífs okkar mannanna — og enda að- eins óhjákvæmileg afleiðing þess. í orðsendingu þessari reyndi ég að gera ljóst, bæði þetta og margt annað í Opnu bréfi, sem valdið hafði misskilningi, eða gat komið til að gera það. En þvi miður sá ég ekki fj árhagslega möguleika fyrir mig til að hafa upplag Orðsending- arinnar, — stæfra en 1—200 eintök. Ég geri líka ráð fyrir þó upplagið væri lítið, að þá hafi Orðsendingin komist nokkuð víða því eintökunum dreifði ég um landið eftir föngum í þeirri von að einhver eintök henn- ar að minnsta kosti, héldu svo á- fram milli manna. Einstakar ábendingar úr orðsend- ingunni eru þó birtar hér á víð og dreif í blaðinu eftir því sem rúm leyfði og sumt af efni þess segir nokkuð hið sama og þar var sagt. Áskriftarlistar fylgdu mörgum orðsendingunum, og vil ég hér vin- samlegást mælast til þess að þeir, sem ekki hafa endursent mér þá, en hafa þó í hyggju að gera það, að þeir láti það ekki dragast í höml- ur hér eftir, hvort sem nöfnin eru mörg eða fá. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR A K U R E Y R I Stofnsett 1901 I Símar 45 og 370 Pósthólf 45 Einhver fullnkomnasta bókaprent- i smiðja landsins.

x

Helsingi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helsingi
https://timarit.is/publication/949

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.