Helsingi - 01.06.1945, Qupperneq 10
10
H E L S I N G I
Þessum bálk blaðsins er œtl-
að í framtíðinni að flytja ým-
islcgt samþjappað lestrarefni
og léttara hjal, hvaðanœva af
vettvöngum dœgurmála og
dagsviðburða, ftó að þessu
sinni verði að mestu leiti
bundinn málum Eins hels-
ingja eins og allt annað efni
þessa tölublaðs.
Dreifar- og dægurskraf.
IÞetta fyrsta tölublað mun koma
fyrir augu allra eða flestra áskrif-
enda Eins helsingja, því svo var ákveð-
ið að þeim verður öllum sent það ó-
keypis og sér að kostnaðarlausu.
Og er með því ætlast til að þeir geti
fylgst með því sem gerist í þeim mál-
um, sem varða stofnun Helsingjasjóðs
og haft betra tækifæri til að leggja þeim
lið, ef hugur þeirra er samur og áður.
PP
2Meðal þessa fólks — áskrifend-
anna — vænti ég mér líka mestr-
ar fyrirgreiðslu og trausts hvað varðar
framtíðarmöguleika þessa litla blaðs.
Frá því vænti ég fastlega að fá að
finna hið sama drenglundaða, skilnings
fúsa hugarfar gagnvart einstaklinguin
samfélagsins, og það þegar hefur sýnt
mér.
Og að þeir vilji leggja sína liðveislu
lítilli tilraun, um óháð málgagn undir
merkjum fordómaleysis og leitandi
skilningsvilja, það tel ég mig eigi þurfa
að efa.
Og ég geri mér jafnvel vonir um, og
það ekki að ástæðulausu, að þeir verði
margir meðal þeirra, sem ekki láta sér
nægja að gerast sjálfir áskrifendur,
heldur útvegi og sendi mér áskriftir
nokkurra fleiri úr sínum heimahögum
eða nágrenni.
Sendi ég svo öllum áskrifendum Eins
helsingja alúðarkveðjur og þökk fyrir
þeirra hlýju handtök í haustmyrkrinu
og það svipheiði mannlegs eðlis, er þar
brá birfu yfir veg einföruls ferðamanns
Og ekki síst bfera þessi orð lilýj u hug-
ans til þeirra mörgu meðsjúklinga
minna hér á Kristneshæli, sem þegar
gerðust áskrifendur í haust þegar listi
lil áskrifta var lagður fram innan þess-
ara veggja. Og þeim er þar brutu ísinn
vildi ég mega segja aðykkurflyturEinn
helsingi best sjálfur þakkir sínar. Og
verði svo að einhverjum finnist drætt-
irnir í svip hans, meira mildaðir, en
líkur virðast standa til, þá er það ekki
hvað síst þessvegna að mynd hans ber
blæ af ykkar hugarfari. Og kannske er
það mesta þakklætið og það sem er
nokkurs virði.
Hi1
3Þetta 1. tölublað Helsingja kemur
út á einhverjum þýðingarmestu
augnablikum mannkynssögunnar. —.
Styrjöldinni í Evrópu er lokið og hall-
ar undan fæti óðfluga hjá Japönum,
hvarvetna í Asíu. Og frá San Franc-
isko-ráðstefnunni, þar sem búast má
við að ráðin verði örlög friðarins ný-
fengna, — þaðan berst nú minni ófrið-
argnýr, en mörgum mun hafa þótt efni
standa til, eftir áður þekktum viðhorf-
um víðsvegar um heiminn, og ekki sízt
innan herteknu landanna að frelsi
fengnu. Með hliðsjón af nokkru yfirliti
og innsýn á þróunarsögu stjórnmála og
stjórnarfars í heiminum s. 1. 25—30 ár,
getur tæplega hjá því farið að
menn hafi séð, að til þessa hef-
ur daglega komið nýtt og nýtt í ljós,
sem nægði til þess að nokkur uggur
slæddist fyrir brjóst manna mitt í frið-
arfagnaðinum, — svo glögglega blasir
það líka við, hvernig allt í heiminum
virðist nú renna stöðugt þéttar og hrað-
ar á tvo meginstrauma um lífsskoðan-
ir og skipulagningu þjóðanna og mann-
legs samfélags; — tvö andstreymandi
fljót sem aldrei virðast muni geta runn-
ið saman í eitt, heldur streyma i þver-
ORÐ
Gangir þú á fund kvenna þá gleymdu ekki
svipunni heima.
Fr. Nietzsche.
Konan skilur betur barnið en maðurinn af
því maðurinn er meira barn en kpnan.
Fr. Nietzsche.
öfugar áttir hvert við annað og stefna
sitt í hvert hafið.
Viðhorfin í Póllandi, Grikklandi,.
Frakklandi, Belgíu, Italíu o. s. frv. tala
ægilega skýrt sínu máli. Og þá ekki síst
það sem mest var áberandi síðustu vik-
ur. í fyrsla lagi: hinar ýmsu dularfullu
fregnir, sem bárust síðustu dagana fyr-
ir stríðslokin frá hinni eldspúandi als-
herjar vopnaverksmiðju og hernaðar-
byrgðabúri' — Tékkóslóvakíu, — vítis-
vélinni í hjarta Evrópu.
Og svo í öðru lagi, það sem nú hefur
verið að gerast síðustu dagana um-
hverfis lykilinn að Adríuhafi, —
Tríeste, — og jafnframt einn af þýð-
ingarmestu útvörðum breskra heims-
veldishagsmuna á meginlandi Evrópu.
Og svo síðast en ekki síst Sýrlandsmál-
in og öll hin sí-ógnandi arabiska Jehad-
hrópandi hætta að baki þeirra.
Nei, því verður ekki varist, þrátt
fyrir fögur fréttaorð og friðsamlegt
bjal á opinberum ráðstefnum, að geig-
vænlega niðar nú í djúpunum í Mann-
heiminum.
En hvað framtíð næstu mánaða ber
í skauti sínu er víst öllum ofviða að
geta um, þó víðara hefðu vængfangið
Bókaverzlun
Gunnl. Tr. Jén; onar
RáShússtorgi I - Sími 100 Akureyri