Helsingi

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Helsingi - 01.06.1945, Qupperneq 12

Helsingi - 01.06.1945, Qupperneq 12
12 H E L S I N G I Qvdsending til áskrifenda að fyrirhuguðu Ijóðaúryali mínu sl. ár. Ákvörðun öll gagnvart þeirri 100 ein taka útgáfu breyttist skyndilega síðari hluta vetrar í fyrra eða um það bil, er úrvalið var a'ð mestu fullbúið til prent- unar. Mér barst þá óvœnt sérstaklega gott tilboð frá ísafoldarprentsmiðju !>m útgáfu á heildarsafni af ljóðum mínum. A/ endanlegum samningum varð þó ekki í það sinn og liggja þar ýmsar orsakir að. En eins og öllum hlýtur að vera ljóst, hefði það verið ó- verjandi framkoma af minni hálfu gagnvart áskrifendum mínum, hefði ég haldið áfram hinni dýru 100 eintaka útgáfu á úrvali Ijóðanna, en svo hefði komið út á svipuðum tíma, eða nokkr- um mánuðum síðar heildarútgáfa allra ljóðanna, 4—5 sinnum stærri bók en langtum ódýrari og þó hin vandaðasta að frágangi. En sérstaka tölusetta út- gáfu af heildarsafninu hafði ég aftur á móti í huga, í stað úrvalsins. En svo fór sem fyr er sagt, að ekkert gat orð- ið úr þessari útgáfu á sl. ári og enn ó- ráðið hvort til þeirrar útgáfu kemur eða ekki. En af hinni nýju ljóðabók minni sem nú er í prentun hjá forlagi Pálma H. Jónssonar — og hér auglýst á öðrum stað í blaðinu, — mimu áskrifendur mínir að úrvalinu fá send eintök í al- veg sérstæðum búningi og þannig úr garði gert, að ég vænti þess fastlega að allir hlutaðeigendur geti orðið ánægð- ir. Engir þurfa þó að álíta' áskrift sína að úrvalinu bindandi fyrir sig til að taka á móti hinni nýju ljóðabók minni, í þess stað. Svo biðst ég velvirðingar á því hversu hefur dregist að senda þeim til- kynningu þessa. Kristnjshæli, 14. maí 1945 Steindór Sigurðsson. EFNI í BLAÐIÐ — Framh. af 9. síðu. verkefni það, sem honum er fyrirætl- að eingöngu að reyna að taka nokkra steina úr ruðningi nýrrar götu, í áttina til þess sem verða mætti til að draga úr því óbætanlega tjóni, sem samfélagið vinnur óafvit- andi sjálfu sér og sem þjóðin missir í þeim mönnum og möguleikum þeirra. En úr þessu greinasafni munu birtast hér í blaðinu smápóstar öðru hvoru. Og skal svo þessari upptalningu lokið, enda sýnir framtíðin best sjálf, hvað kemst að og hvað ekki. Suður um liöf Eftir Sigurgeir Einarsson. Saga rannsóknarferða til suðurskauts Jarðar, stórfróðleg bók og skemmtileg. Margir kaflar þessarar bókar eru heillandi og ógleymanlegur lestur. Karlmennska og óbilandi þrautseigja heimskautsfaranna ímm fámn úr minni líða. Ungum mönnum er holt að lesa þessa bók. Hún stælir til dáða og gefur góð fordœmi. Sorrell og sonur Hin óvenju hugþekka og fagra skáldsaga Warwick Deeping, sem átt hefur mjög góðum vinsældum að fagna hjá íslenskum les- endum. Við, sem vinnum eldliússtörfin Víðkunn og afburða vinsæl skemmtisaga eftir Sigrid Boo. Þessi bók hefur verið kölluð „óskabók ungra stúlkna“, og mun það vera réttnefni. Ólafur Liljurós Skrautútgáfa á þessu undurfagra og vinsæla þjóðkvæði með fallegum heilsíðumyndum eftir Fanneyju Jónsdóttur. Hans Karlsson Ævintýri úr þjóðsögum Jóns Árnasonar með myndum eftir Jóhann Briem listmálara. — Munið að íslenskar bœkur henta íslenskum mönnum best. Bókaútg. Guðjóns Ó. Guðjónssonar. REYKJAVÍK Heildver zlun JÓNS HEIÐBERG Laufásveg 2A — Reykjavík Símnefni: Heiðberg — Sími 3585. Borðbúnaður Búsáhöld Leir og glervörur Verkfæri alskonar Burstavörur Tækifærisgjafir Leikföng Vefnaðarvörur Smávörur Fatnaður alskonar Skófatnaður Leðurvörur Ritföng Umbúðapappír og pokar Svissnesk úr. HELSINGI Verð 2 kr. tbl. — Augl.verð 4 krónur pr. cm., eindálka. PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. AK. 1945. ) )

x

Helsingi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helsingi
https://timarit.is/publication/949

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.