Fjarðarpósturinn - 28.04.2005, Blaðsíða 1
www. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
17. tbl. 24. árg. 2005
Fimmtudagur 28. apríl
Upplag 7.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði
ISSN 1670-4169
Hallarbylting var gerð á aðal-
fundi Sparisjóðs Hafnarfjarðar
síðasta vetrardag undir forystu
Páls Pálssonar, framkvæmda-
stjóra Fjarðar og varabæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins.
Á löngum og ströngum
aðalfundi var að lokum sæst á
fyrirkomulag stjórnarkosninga
og var kosið um lista. Hafði Páll
afhent Matthíasi Á. Matthiesen
formanni stjórnar sinn framboðs-
lista þremur dögum fyrir aðal-
fund eins og samþykktir SPH
áskilja. Listi með Bjarna Þórðar-
son sem formannsefni var hins
vegar lagður fram á fundinum en
deilt var um það hvort óska hefði
átt eftir hlutbundinni kosningu
með 5 daga fyrirvara svo hægt
væri að leggja fram lista en
meirihluti taldi það ekki nauð-
synlegt.
Matthías vildi ekkert segja um
þessi mál en staðfesti þó í sam-
tali við Fjarðarpóstinn að hann
hafi verið búinn að ákveða að
draga sig í hlé áður en nýtt fram-
boð kom fram.
Páll vildi ekki koma í viðtal en
sagði þó ástæðu þessara aðgerða
óánægju stofnfjáraðila með slaka
afkomu Sparisjóðsins undanfar-
in ár og í raun hafi verið tap af
hefðbundinni bankastarfsemi en
700 millj. kr. gengishagnaður
hafi verið sl. ár sem hafi bjargað
afkomunni. Hann vildi ekki
svara því hvort Björn Ingi
Sveinsson, sparisjóðsstjóri hafi
ekki haft traust nýrrar stjórnar en
sagði samkomulag hafi verið um
það að hann hætti.
Björn Ingi sagði hins vegar
það hafa verið einhliða sam-
komulag og þetta hafi komið
honum mjög á óvart.
Sjá nánar um málið á bls. 11
Telur sér
hafa verið
sagt upp!
Aðstoðarsparisjóðs-
stjóri sagður í fríi
Ingimar Haraldsson, aðstoð-
arsparisjóðsstjóri var sagður í
fríi næstu tvo daga þegar spurt
var um hann hjá Sparisjóðnum
á mánudag. Páll hitti Ingimar
að kvöldi eftir fundinn og orð
hans túlkaði Ingimar sem
uppsögn en daginn eftir var
haft samband við Ingimar og
sagt að alls ekki væri verið að
segja honum upp og væri
nærveru hans óskað.
„Ég hef vikið af vettvangi og
er að hugsa minn gang,“ sagði
Ingimar í samtali við Fjarðar-
póstinn en óstaðfestar fréttir
herma að fundur hafi verið
boðaður með Magnúsi Ægi
Magnússyni, nýráðnum spari-
sjóðsstjóra þar sem reynt yrði
að ná sáttum.
Jóhann Halldórsson, for-
stöðumaður innra eftirlits var
líka sendur í frí en vildi ekkert
láta hafa eftir sér. Fjármála-
eftirlitið er talið hafa áhyggjur
af meintri uppsögn Jóhanns.
Bylting í Sparisjóðnum
Ný stjórn rak nýja sparisjóðsstjórann
Þrír fyrrum stjórnarmenn ganga af fundi með gjafir í hönd.
Þriðjudagur 16.33: Kviknað í Eyrarhrauni. Slökkviliðið kom 6 mínútum síðar og lét húsið brenna.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
nStofnfjár-
eigendur
óska eftir
fundi
Vilja skýringar
Nokkrir stofnfjáreigendur hafa
óskað eftir fundi stofnfjáreig-
enda og er stjórn skylt að halda
slíkan fund ef minnst 10%
stofnfjáreigenda óska eftir. Vilja
þeir fá skýringar á uppsögnum
sparisjóðsstjóra og þeim
áformum sem stjórnin hefur
undir stjórn Páls Pálssonar.
Páll Pálsson, formaður stjórnar
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n