Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Side 1
w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
36. tbl. 24. árg. 2005
Fimmtudagur 22. september
Upplag 7.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði
ISSN 1670-4169
Nú eru hlaupin alvara í sam-
einingarhugmyndir Hafnarfjarð-
ar og Vatnsleysustrandarhrepps
en nú, aðeins tveimur og hálfri
viku fyrir kosningu er lögð fram
skýrsla sem ætlað var að greina
áhrif sameiningar. Þetta er 42
síðna síðna skýrla þar sem gert er
stöðumat í sveitarfélögunm,
samtekin eru helstu áhrif sam-
einingar á ýmsa málaflokka auk
þess sem í skýrslunni eru töflur
með tölulegum upplýsingum.
ParX, viðskiptaráðgjöf IBM
vann skýrsluna.
Jón Gunnarsson sagði að-
spurður við kynningu skýrsl-
unnar að hreppsnefndin fjallaði
um skýrsluna á fundi sínum og
aðeins ef hreppsnefndin kæmist
að einni sameiginlegri niður-
stöðu myndi hreppsnefndin gefa
upp hug sinn við íbúana.
Í skýrslunni kemur fram
þjónustustig í Vatnsleysustrand-
arhreppi myndi aukast, sam-
göngumál bötnuðu með tilkomu
strætisvagna og bættu aðgengi
að sérfræðiþekkingu.
Þjónustuver yrði sett upp í
Vogum en stærsti hluti stjórn-
sýslunnar yrði í Hafnarfirði þó
möguleiki yrði á að einstakir
starfsmenn gætu unnið í Vogum
með fjartengingu við ráðhúsið í
Hafnarfirði. Einhver hagræðing
yrði af einfaldari yfirstjórn en þó
er ekki reiknað með að starfs-
mönnum fækki um einn.
Sameinað sveitarfélag yrði um
um 306 km² og íbúar þess um
23.000.
Sameiningarmálið:
Fólk hvatt til
að kynna
sér málið
Íbúar Hafnarfjarðar og
Vatnsleysustrandarhrepps eru
hvattir til að kynna sér vel kosti
og galla sameiningar og taka
svo þátt í kosningum 8. októ-
ber. nk. Það má gera með því
að lesa fylgiblað með Fjarðar-
póstinum í dag, mæta á kynn-
ingarfund og lesa skýrsluna
sem unnin var fyrir sameining-
arnefndina. Sjá vefsíður sveit-
arfélaganna.
Fylgirit um
sameiningu
Hafnarfjarðar
og Voga
Fjarðarpóstinum dreift í
Vatnsleysustrandarhrepp
Með blaðinu í dag fylgir 4
síðna kálfur um mögulega
sameiningu Vatnsleysustrand-
arhrepps og Hafnarfjarðar þar
sem kynntar eru helstu
niðurstöður úr skýrslu þar
greind eru áhrif sameiningar.
Ör uppbygging er í Vogum, Vatnsleysustrandarhreppi, nágrönnum okkar í suðri.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Jón Gunnarsson, oddviti og Lúðvík Geirsson bæjarsstjóri taka við
greinarskýrslu um áhrif sameiningar á þriðjudag úr hendi Arnars
Jónssonar hjá ParX. Sameiningarnefndarmenn standa hjá.
Sameiningar-
hugmyndir kynntar
Fundir í Vogum á miðvikudag og í Hafnarfirði á fimmtudag
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Opnum í Firði, Hafnarfirði
á laugardaginn kl. 11.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n