Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Side 3

Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 22. september 2005 3ja rétta kvöldverður: – frá kr. 1.990,- 2ja rétta hádegisverður: – frá kr. 990,- Nýlega var dreift inn á öll heimili bæklingi sem ber heitið „Verndum bernskuna“ og að því mjög góða framtaki standa Forsætisráðuneytið, Þjóðkirkjan, Velferð- arsjóður barna, Um- boðsmaður barna og Heimili og skóli. Ég hvet hafnfirska foreldra og uppalendur að til- einka sér þau 10 heil- ræði sem þar eru gefin. Eins saknaði ég þó í þessari skýru framsetn- ingu og það er. Verum barninu góð fyrirmynd. Ég tel eitt hið mikilvægasta í hlutverki uppalandans að sýna sjálfur í verki góða siði sem barninu eru innrættir í orði. Þetta getur m.a. átt við um orðbragð og umtal um menn og málefni. Einnig er mjög mikilvægt að sýna börnum í verki góðan og jákvæðan lífsstíl og hafa ekki fyrir þeim heilsu- skaðlegt líferni svo sem reykingar og áfengisneyslu. Horfast verður þó í augu við að reykingar verða seint upprættar þótt margt hafi áunnist og neysla áfengis er því miður að verða hluti af daglegum lífsstíl margra. Þannig hefur einn- ig verið sífellt slakað á kröfum til veitingar vínveitingaleyfa. Í liðinni viku afgreiddi bæjar- stjórn Hafnarfjarðar vínveitinga- leyfi til skyndibitastaðar sem nýverið opnaði hér í bæ. Þetta væri etv. ekki í frá- sögur færandi nema vegna þess að tveir fulltrúar, Guðmundur Rúnar Árnason og undirritaður, greiddu atkvæði gegn tillög- unni og bókaði ég af- stöðu mína þannig: „Ég greiði atkvæði gegn þessari leyfisveit- ingu. Ég tel að bæjar- ráð og bæjarstjórn fari með um- sóknir um vínveitingaleyfi án við- hlítandi málefnalegrar skoðunar, sérstaklega með tilliti til forvarna og hagsmuna fjölskyldunnar. Ég hvet til að settar verði reglur um málsmeðferð umsókna um vín- veitingaleyfi þar sem forvarn- arnefnd verði umsagnaraðili um öll ný leyfi.“ Kjarni málsins er að ekki eru til sérstakar reglur í Hafnarfirði um málsmeðferð umsókna og í raun er engin stefna til um hvernig framfylgja megi megin tilgangi áfengislaga eins og skýrt er kveð- ið á um í 1. gr. þeirra en þar segir orðrétt. Tilgangur laga þessara er að vinna gegn misnotkun áfengis. Í 14. gr. laga þessara eru ákvæði um vínveitingaleyfi og þar m.a. kveðið svo á um að áður en sveitarstjórn veitir leyfi til áfengisveitinga á veitingastað afli hún umsagnar lögreglustjóra og heilbrigðisnefndar sem metur innréttingu og annað svipmót veitingarekstrar. Þá er tekið fram að sveitarstjórn skuli rökstyðja niðurstöðu sína og gera grein fyrir þeim sjónarmiðum sem henni réðu. Enn fremur er ákvæði í reglugerð að sveitarstjórn er heimilt að takmarka vínveit- ingaleyfi við bjór og létt vín. Ekki er mér kunnugt um að til slíkrar takmörkunar hafi verið gripið hér í hafnarfirði nema í umdeildu vínveitingaleyfi í jólaþorpi fyrir tæpum 2 árum. Skyndibitastaðir eru á sinn hátt vettvangur fjölskyldunnar og því er það í andstöðu við hagsmuni hennar að þar sé veitt áfengi. Áfengissala á slíkum stöðum þekkist heldur ekki í flestum við- miðunarlöndum okkar og því með ólíkindum að svona sé kom- ið á Íslandi þar sem lýðheilsa og forvarnir eru í hávegum höfð, alla vega í orði. Við skulum því taka af skarið hér í Hafnarfirði og setja skýrar reglur um veitingu vín- veitingaleyfa þar sem forvarnar- sjónarmið verða höfð að leiðar- ljósi. Vínveitingar á skyndibitastöðum Almar Grímsson Við hendum ekki drasli á jörðina! Hafnfirðingar! Hættum sóðaskapnum – gerum bæinn okkar snyrtilegan Einstaklings- hjóna- og fjölskylduráðgjöf: Unnið með Multimodal therapy, sérsniðið eftir þörfum hvers einstaklings. PICT meðferð fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir kynferðislegu- og/eða öðru ofbeldi á barnsaldri og eiga erfitt með að tala um það. Í þessari meðferð þarf ekki að segja frá því sem gerðist. Prepare Enrich fyrir hjón/sambúðaraðila í vanda. Einnig fyrirbyggjandi ráðgjöf fyrir pör sem eru að hugleiða sambúð/hjónaband. Tímapantanir í síma 896 9568 Gréta Jónsdóttir fjölskylduráðgjafi ACC Undirbúningur er nú hafinn fyrir Jólaþorpið sem staðsett verður á Thorsplaninu og verður opnað fyrstu helgina í aðventu, 26. nóvember. Þorpið verður með svipuðu sniði og áður, fag- urlega skreytt tuttugu lítil hús þar sem boðið verður upp á margt sem tengist jólunum á einn eða annan hátt. Opið verður allar helgar aðventunnar og á Þorláks- messu. Jólaþorpið er miðpunktur þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða á aðventunni. Opnunardagana verður að venju skemmtidagskrá á jólasviðinu. Helga H. Magnúsdóttir hefur verið ráðinn verkefnisstjóri og vinnur nú að því að fá skemmti- krafta og að leigja út sölubásana. Undirbúningur hafinn fyrir Jólaþorpið Helga H. Magnúsdóttir ráðinn verkefnisstjóri Bridgefélag Hafnarfjarðar er rótgróinn félagsskapur sem starf- ar yfir vetrarmánuðina og gerir þeim sem vilja kleift að spila bridge í þægilegu andrúmslofti. Öllum er heimil þátttaka og margvíslegar keppnir eru í gangi allan veturinn. Félagið spilar á mánudags- kvöldum í glæsilegum sal að Flatahrauni 3 (Hraunsel) og byrj- ar kl. 19.30. Frekari upplýsingar eru í símum 897 4961 (Ásgeir) og 565 3050 (Erla). Bridge fyrir alla Þegar núverandi oddviti sjálf- stæðismanna Magnús Gunnars- son hefur ákveðið að draga sig í hlé hef ég áhuga á að skipa fyrsta sæti lista sjálfstæðismanna fyrir komandi bæjarstjórn- arkosningar. Ég hef verið bæjar- fulltrúi frá árinu 1994 er ég fyrst tók sæti í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar og skipaði þá fjórða sæti listans. Í tæp sjö ár var mér falin formennska í hafnar- stjórn Frá árinu 1998 hef ég skipað annað sæti lista sjálfstæðis- manna, á þeim tíma hef ég sinnt störfum forseta bæjarstjórnar, átt sæti í bæjarráði og skipulags- og byggingaráði. Samhliða störfum í bæjarstjórn hef ég átt sæti í stjórn Hafna- sambands sveitarfélaga, stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu og sit nú í stjórn Öldrunarsamtakanna Hafnar. Þá hef ég stundað félagstörf innan Sjálfstæðisflokksins síðan árið 1974, á þeim tíma hef ég m.a. sinnt formennsku og öðrum stjórnunarstörfum og á nú sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Áherslur mínar eru að sjálf- sögðu margar enda að mörgu að hyggja í stóru bæjarfélagi en meðal þess sem ég tel brýnast er útrýming á biðlistum á leikskóla, þeir eiga ekki heima í nútíma- þjóðfélagi þegar allir eru að sinna vinnu og/ eða námi daglangt. Ég legg áherslu á að grunnskólinn sé tilbú- inn að taka á móti nýjum einstaklingum á sem bestan hátt burt séð frá búsetu í bæn- um. Bráðabirgðahús- næði í grunnskólanum er ekki vænn kostur. Hafnarfjörður á að vera eftirsóknarverður staður fyrir atvinnurekstur, aðstaðan með því besta sem gerist þar sem við eigum svo góðar hafnir. Eldri borgarar eiga að njóta ævikvöldsins í Hafnarfirði. Ég legg mikla áherslu á að efla heimaþjónustuna enn frekar þá vil ég sjá blómlega uppbyggingu á þjónustuíbúðum. Að sjálfsögðu verður fjárhags- staða bæjarins að vera góð þann- ig að bærinn okkar njóti virðing- ar á markaði en við megum ekki gleyma því að þjónustan við íbúana er það sem Hafnarfjörður stendur fyrst og fremst fyrir. Höfundur er bæjarfulltrúi og frambjóðandi í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kom- andi bæjarstjórnarkosningar. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins Valgerður gefur kost á sér í fyrsta sæti Valgerður Sigurðardóttir Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Kórfólk Kirkjukór Hafnarfjarðarkirkju óskar eftir söngfólki í allar raddir Kórinn er skipaður áhugasöngvurum og menntuðum söngvurum. Kórinn setur markið hátt en gleymir ekki gleðinni af að syngja. Á dagskrá er bæði veraldleg og andleg tónlist. Raddþjálfun verður tekin fyrir á kóræfingum. Allir velkomnir í prufu. Áhugasamir hafið samband við Svövu Kristínu Ingólfsdóttur kórstjóra og söngkennara, í síma 867 7882 Bókað í bæjarstjórn um raflínur Í framhaldi af frétt af bókun Sjálfstæðismanna er rétt að taka fram að í fundargerð bæjarstjórnar kemur fram að önnur bókun var gerð um málefni háspennulína á Völl- um. Þar stendur: Lúðvík Geirsson kom að svohljóðandi bókun: „Bæjarfulltrúar Samfylking- ar taka fram að aldrei hafi ann- að staðið til en að umræddar háspennulínur fari í jörð eins og upplýst hafi verið í umræðu um þessar skipulagstillögur.“ Lúðvík Geirsson (sign)

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.