Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Blaðsíða 5
Skátafélagið Hraunbúar í
Hafnarfirði vinnur að því að
koma á ný af stað skátastarfi í
Vogum, Vatnsleysuströnd. Búið
er að endurvekja skátadeildina
Vogabúa en hún mun starfa í
Vogunum en fá alla aðstoð frá
Hraunbúum. Fjórir skátaflokkar
munu starfa í Vogabúum í vetur
og verða þeir með vikulega fundi
þar en einnig verður boðið upp á
kvöldvökur, dagsferðir og
útilegur. Vogabúar munu einnig
taka þátt í öllu starfi Hraunbúa í
vetur og því eru mörg skemmti-
leg og spennandi verkefni fram-
undan.
Skátastarf í Vogunum er ekki
alveg nýtt því á árum áður var
starfandi Skátafélagið Vogabúar
og var það með elstu skáta-
félögum á landinu. Skátastarf í
Vogunum leið undir lok í kring-
um 1970 og því eru eflaust
margir afar og ömmur, pabbar og
mömmur sem eru gamlir skátar
og er þeim sem og öðrum áhuga-
sömum velkomið að taka þátt í
skátastarfinu á einn eða annan
hátt. Árið 1992 var skátadeildin
Vogabúar stofnuð innan Hraun-
búa og starfaði hún í Vogunum í
rúm 10 ár en lagðist niður vegna
foringjaleysis, því er mjög mikil-
vægt að foreldrar, gamlir skátar
og aðrir áhugasamir taki virkan
þátt í starfinu í vetur.
Skátastarfið er þegar hafið og
hefur fengið miklar og góðar
viðtökur um 30 börn hafa þegar
mætt til leiks en alltaf er pláss
fyrir fleiri. Deildarforingjar
Vogabúa í vetur verða Guðrún
Stefánsdóttir og Guðrún María
Helgadóttir en þær störfuðu báð-
ar í skátadeildinni Vogabúum
áður en hún lagðist niður.
Skátafundir verða vikulega í
Íþróttamiðstöðinni í Vogum sem
hér segir:
Ljósálfa- og ylfingaflokkurinn
Stjörnur (drengir og stúlkur á
aldrinum 9-10 ára): Fimmtudaga
kl. 17-18.
Skátaflokkarnir Vatnaliljur og
Hörpur (stúlkur á aldrinum 11-
14 ára): Fimmtudaga kl.18-19
Skátaflokkurinn Fálkar
(drengir á aldrinum 11-14 ára):
Fimmtudaga kl. 19-20.
Dróttskátasveitin D.S. Trail
(drengir og stúlkur á aldrinum
15-18 ára): Öflugt og mikið starf
fer fram í Hafnarfirði fyrir þenn-
an aldursflokk, spennandi og
krefjandi starf.
Hvetur Guðrún Stefándsóttir,
deildarforingi foreldra og aðra
áhugasama til að vera með og
vonast til að sjá sem flesta.
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 22. september 2005
Fjölskylduganga
Munið eftir vasaljósunum!
Mæting við Kaldársel
kl. 13 á laugardaginn
Skemmtileg ganga fyrir alla fjölskylduna í
ævintýralegu umhverfi Kaldársels, þar sem
m.a. verða skoðaðir hellar og því rétt að
taka með vasaljós og hafa húfu á höfðinu.
Haustgöngur Alcan eru heilsu- og
útivistarverkefni í samvinnu við
ferðahópinn Ferli
Sjáumst á laugardag!
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n/
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
0
50
9
BYGGIR MEÐ ÞÉR
Mikil fjölbreytni ríkir í starfsemi BYKO
og erum við ávallt að leita að góðu
fólki. Það fólk sem við ráðum til starfa
þarf að búa yfir hæfileikum til að starfa
sjálfstætt, vera jákvætt og eiga mjög
gott með að vinna með öðrum.
BYKO ER LEIÐANDI
FYRIRTÆKI Á SÍNU SVIÐI
Umsóknum skal skilað inn fyrir miðvikudaginn 28. september nk. Vinsamlegast
sendið umsóknir til: BYKO, Skemmuvegi 2a, 200 Kópavogi, merktar „Starfsumsókn
214“. Einnig er hægt að sækja um störfin á vef fyrirtækisins www.byko.is eða
senda beint á atli@byko.is. Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum.
Við í BYKO Hafnarfirði erum að leita
að fólki sem vill vinna með okkur að
gera glæsilega verslun glæsilegri.
.
Í HAFNARFIRÐI
Afgreiðslumenn í timbursölu
Óskum eftir að ráða jákvæða og drífandi starfsmenn
í fullt starf. Áhersla er lögð á reglusemi, dugnað,
ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Kostur er ef viðkomandi hefur þekkingu eða reynslu
af byggingarvinnu, trésmíðastörfum, lagerstörfum,
vinnu á lyftara eða öðrum sambærilegum störfum.
Um er að ræða framtíðarstörf
LAUS STÖRF
Skátastarf í Vogunum
Hraunbúar í Hafnarfirði eru bakhjarl skátastarfs í Vogum
Guðrún Stefánsdóttir, lengst t.h. ásamt skátahópi á Úlfljótsvatni.
Það var sérkennilegt að
fylgjast með því þegar vatn fór
allt í einu að flæða upp á milli
borða á „bryggjunni“ á Læknum
við Hafnarborg. Vatn streymdi
þarna að og þegar nánar var að
gáð var stórstreymt og sjávar-
staðan með hæsta móti.
Ýmsir hafa kvartað yfir því að
Lækurinn fái ekki að renna frítt
til sjávar og telja að eðlilegt væri
að sett yrði brú á Fjarðargötuna
svo fólk sæi Lækinn fossa til
sjávar í stað þess sem hann
læðist þar út í röri.
Flæddi upp á bryggjur
Stóru bryggjurnar héldust þó þurrar
Að ofan: Vatnið brýst upp með
nokkrum krafti.
Til vinstri: Vatnið streymir yfir
bryggjuna.
Lengst til vinstri: Óvenju há
sjávarstaða við Óseyrarbryggju.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n