Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Qupperneq 6

Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. september 2005 Anton Ívar Kristjánsson er níu ára gutti, hann veiktist af heila- vírus aðeins fjögurra ára og lá milli heims og helju í langan tíma. Síðan þá hefur hann glímt við mikil veikindi og þroskafrávik, þar á meðal mjög slæma floga- veiki og hafa köstin farið allt uppí 36 á sex klukkutímum sem er gríðarlega mikið álag á svo lítinn líkama. Læknar hafa gefið fjölskyldunni von um að aðgerð á heila geti haft jákvæð áhrif á flogaveikina og haustið 2003 fór Anton Ívar til Boston með foreldrum sínum þar sem reyna átti að framkvæma þessa að- gerð. Ekki var hægt asð gera aðgerðina í það skiptið, nú á að gera aðra tilraun til að gera þessa aðgerð í Boston 29. sept. n.k. Það geta allir sagt sér það að svona veikindi setja stórt skarð í fjárhag fólks, og ferðin tekur um 6-8 vikur og eru þau þá laun- alaus á meðan. Ef þú lesandi góður sérð þér fært að rétta fram hjálparhön þá munu þeir aurar koma að góðum notum. Verum minnug þess að margt smátt gerir eitt stórt. Söfnunarreikningurinn er 0545-14-602964 Kt.: 140753-3279 Hjálparbeiðni Haustið komið Fátt er fegurra en haustlitirnir í hrauninu sem boða kaldari tíma og vetur. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hafsteinn Ólafsson, vélstjóri og Þóra Bragadóttir hafa rekið fyrirtækið Beitir ehf. í Vogum í fjölmörg ár. Bæði eru þau úr Hafnarfirði en fluttust fyrir fjölmörgum árum í Voga þar sem Hafsteinn hefur þróað ýmis tæki fyrir fiskiðnaðinn, hrognaskilju, netaspil, línuspil, saltara og þvottakör svo eitthvað sé nefnt. Létu þau vel af sýningunni en þau voru einnig með á síðustu sýningu fyrir þremur árum. Frá Sjávarútvegssýningunni: Beitir H. Ólafsson Þóra og Ásthildur Flygenring í Rafeiningu í Hafnarfirði höfðu kaffiborð á milli básanna. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hún teygðist aðeins í annan endann gangan sem Alcan og útivistarfélagið Ferlir stóðu fyrir á laugardag. Gengið var áleiðis upp í Straumssel eftir Straums- götu og síðan um Straumsstíg til suðurs. Stígnum, sem er vel greinilegur, var fylgt upp hraunið vestan við hlaðinn túngarð Þorbjarnastaða. Göngufólk var á öllum aldri og hlýddi á góða leiðsögn Ómars Smára Ármannssonar um svæðið. Í 4,5 tíma í hrauninu Fjölmargir fylgdu Ferlisleiðsögn í Alcangöngu Gönguhópurinn við Straumshelli. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Mjög hröð uppbygging hefur verið á Vallasvæðinu á undan- förnum árum en hafist var handa við skipulag þar er vinnu við skipulag Áslandsins lauk. Í tíð fyrri vinstri meirihluta hafði verið gert deiliskipulag að þessu svæði sem byggja átti á undan Áslandinu. Nýr meirihluti lét hins vegar skipuleggja Áslandið og gamla skipulagið að Völlum var aldrei notað. Nú er verið að hefja byggingar á einbýlishúsum á Völlum 4 en fjölbýlishús á Völlum 3 eru nú flest á lokastigi. Í vinnslu eru nú svæðin Vellir 5 og 6 auk Áslands 3 en það er svæði ofan Kaldárselsvegar, ofan Mosahlíðar, sk. Öldur. Vellir 5 eru beint framhald af Völlum 4 sem sjást á myndinni til vinstri en Vellir 6 stefna í norður inn dalinn. Áætlað er að á þessum 3 svæðum verði um 800 íbúðir og reiknað er með að lóðum verði úthlutað á þessu og næsta ári en ekki er ólíklegt að Ásland 3 og Vellir 3 verði í boði á sama tíma. Hröð uppbygging á Völlum Ný hverfi stöðugt í skipulagsvinnslu Einbýlishúsahverfið Vellir 4, Fléttuvellir. Vellir 1-3. Örin bendir á byggingarsvæði Hrauvallaskóla. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Þessa dagana er verið að ljúka frágangi á nýju gervigrasi á knattspyrnuvöll Hauka á Ás- völlum. Kominn var tími til að skipta út því gamla grasið var talið hættulegt til íþróttaiðkunar vegna hættu á meiðslum leikmanna. Nýja grasið er af nýrri kynslóð gervigrass líkara rýjamottu á móti stigahúsateppi ef hægt er að nota þá samlíkingu. Búið er að setja sand og mikið magn af gúmmíkúlum sem fara niður í grasið og verður völlurinn mikið mýkri en sá gamli sem var orðinn 14 ára. Kostnaður við gervigrasið er einhvers staðar á milli 30 og 40 millj. króna en einnig verður sett upp lýsing á völlinn. Gert er ráð fyrir því að völlurirnn verði tekinn í notkun öðru hvoru meg- in við helgina. Nýtt og betra gervigras til Hauka Hættulegt gervigras víkur fyrir nýjustu gerð Gamla grasið til vinstri og nýja grasið án gúmmíkúlanna til hægri. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.