Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Síða 9

Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Síða 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 22. september 2005 Rekstur á vegum sveitar- félagsins, s.s. rekstur vatns- veitna, hafna og fasteigna yrði samræmdur. Við það yrðu skipulag, eftirlit og við- hald þessara rekstrarþátta auðveldari og ná mætti fram aukinni hagkvæmni í rekstri miðað við það sem nú er. Framkvæmdir og við- hald yrði að miklu leiti í höndum verktaka, en hlut- verk starfsmanna sveitar- félagsins fælist að mestu í umsjón og eftirliti. Hið sama gildir um viðhald gatna- kerfis, opinna svæða o.þ.h. Aðild að byggðarsam- lögum yrði endurskoðuð í ljósi nýrra aðstæðna. Sveit- arfélagið yrði aðili að Slökkviliði Höfuðborgar- svæðisins bs. og Strætó bs. sem mundi hafa í för með sér aukna þjónustu á sviði brunavarna og almennings- samgangna við Vatnsleysu- strönd. Heilbrigðiseftirlit yrði líklega í höndum sam- eiginlegs heilbrigðiseftirlits hins sameinaða sveitar- félags, Kópavogs, Garða- bæjar og Álftaness (nú Heil- brigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðisins) og almannavarnir í höndum Al- mannavarna Höfuðborgar- svæðisins Hið nýja sveitarfélag yrði áfram aðili að Dvalarheim- ilum aldraðra á Suður- nesjum og Fjölbrautarskóla Suðurnesja enda munu íbú- ar áfram sækja í þá þjónustu sem þessar stofnanir veita. Ekki er unnt að segja til um áframhaldandi aðild að Sorpeyðingarstöð Suður- nesja eða Sorpu, enda ræðst hún af því hvort hag- kvæmara sé fyrir sveitar- félagið að beina allri með- ferð sorps til annars þessara félaga að teknu tilliti til fjar- lægða, umhverfissjónar- miða og viðtökugetu félag- anna. Líklegt er að hið sam- einaða sveitarfélag muni leita samstarfs við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum í meira mæli en Hafnar- fjörður gerir í dag. Skref í þá átt hafa þegar verið stigin í Hafnarfirði með sölu Raf- veitu Hafnarfjarðar til Hita- veitu Suðurnesja. Samanlagður eignarhlut- ur sveitarfélaga í öðrum fyrirtækjum yrði óbreyttur. Rekstur sameinaður Aðild að byggðarsamlögum endurskoðuð Fasteignaskattar og fast- eignagjöld myndu fyrst um sinn vera í sama hlutfalli og nú gerist í Hafnarfirði. Gera má ráð fyrir að lóðaverð verði áfram lægra í Vatnsleysustrandarhreppi en í Hafnarfirði, en að það fari hækkandi líkt og hingað til hefur verið sök- um aukinnar eftirspurnar. Ekki er ólíklegt að sam- eining við Hafnarfjörð verði til þess að eftirspurn eftir fasteignum og lóðum í Vatnsleysustrandarhreppi aukist og að hreyfingar í fasteignaverði fylgi þróun- inni á jaðarsvæðum höfuð- borgarsvæðisins fremur en þróun fasteignaverðs á Suðurnesjum. Svo sem fram hefur kom- ið er ekki gert ráð fyrir bein- um fjárhagslegum áhrifum sameiningar á sveitarsjóð. Áhrif sameiningar munu þó líklega koma fram í stærð- arhagkvæmni í rekstri ein- stakra eininga, t.d. yfir- stjórnar og félagsþjónustu. Þá má benda á að reynslan hefur sýnt að sparnaður, sem leitt hefur af sam- einingu sveitarfélaga hefur nýst til að efla þjónustu þeirra í öðrum málaflokk- um. Fjárhagsleg staða Sparnaður nýtist til eflingar þjónustu Þéttbýliskjarninn Vogar í Vatnsleysustrandar- hreppi er hafnarbær líkt og Hafnarfjörður þó stærðarmunurinn sé mikill. Vogavík var löggilt sem verslunarhöfn árið 1893, þótt hafnarskilyrði þættu þar löngum fremur erfið. Árið 1942 var byggt þar fyrsta frystihúsið og og voru gerðar miklar hafnarbætur upp úr því. Fyrsta haf- skipabryggjan í Hafnarfirði var vígð árið 1913 en þá var ekki komin hafskipabryggja í Reykjavík. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hafnarfjörður Vogar

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.