Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Page 11

Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Page 11
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 22. september 2005 Á sunnudaginn kemur 25. sept- ember kl 20 hefjast að nýju æðru- leysismessur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Það er hópur áhuga- fólks um æðruleysismessur sem stendur á bak við þetta helgihald ásamt prestum Fríkirkjunnar. Þetta áhugafólk hefur kynnst reynslusporunum 12 sem liggja til grundvallar í öllu starfi AA samtakanna svo og samtaka að- stendenda alkóhólista í Al-Anon og öðrum samtökum sem vinna á sama grunni. Fyrsta æðruleysismessan hér í Hafnarfirði var haldin í Fríkirkj- unni fyrir réttu ári síðan og voru þær svo haldnar mánaðarlega. Viðtökur voru sérstaklega góðar og því var ákveðið að halda áfram að bjóða upp á slíkar mess- ur. Fólk á förnum vegi spyr gjarnan: Hvað er æðruleysis- messa? Hver eru þessi 12 reynsluspor? Út á hvað geng- ur þetta? Heitið á messunni er dregið af æðruleysisbæninni sem notuð hefur um langan aldur af félögum í AA samtökunum og Al-Anon. Reyndar á bænin upphaf sitt í kirkjulegu starfi en maður að nafni Reinhold Niebuhr er talinn höfundur bænarinnar. Talið er að hann hafi fengið innblástur annars staðar frá en sumir telja bænina miklu eldri án þess að færðar hafi verið sönnur á það. Sagt er að Niebuhr hafi farið með bænina fyrst við guðsþjónustu árið 1943 og einn viðstaddra sem var AA maður bað hann um afrit af bæninni. Niebuhr mun hafa afhent honum frumritið með þessum orðum. „Gjörðu svo vel. Bænin er þín. Hún hefur komið mér að fullum notum.“ Æðru- leysisbænin hljóðar svona: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt/ kjark til að breyta því sem ég get breytt/ og vit til að greina þar á milli. Þungamiðjan í bataleið AA fólks eru 12 reynsluspor. Þessi reynsluspor fela í sér persónulegt uppgjör sem fyrst og fremst byggir á viðurkenningu á sjúkdómi sínum og fúsleika til að gera þær breytingar í lífi sínu sem leiða til og viðhalda bata og jafnframt byggja upp vörn gegn þessum sjúkdómi sem aldrei læknast fullkomlega. Sporin 12 hafa einnig reynst ómetanleg hjálp í lífi aðstandenda alkóhól- ista og einnig hjá öðrum hópum fólks sem á við að glíma aðrar tegundir fíknar eða áráttuhegð- unar. Æðruleysismessur eru kjörið tækifæri fyrir alla þá sem kynnast vilja nánar þessum aðferðum til að bæta líf og líðan. Tónlistin verður af léttara taginu í stíl við þá gleði sem auðkennir góðan bata og annast „Fríkirkjubandið“ hana. Kaffi á eftir Að lokinni messu munu þau sem standa á bak við þetta framtak bjóða upp á kaffisopa í safnaðarheimili Fríkirkjunnar. september 2005 ÆðruleysismessaKyrrðar-dagar í Skálholti 30. sept.-2. okt. Eins og í fyrra á Fríkirkjusöfnuðurinn frátekna kyrrðardaga í Skálholti dagana 30. sept. - 2. október. Kyrrðardagar í Skálholti hafi notið mikilla vinsælda en Frí- kirkjusöfnuðurinn var fyrstur safnaða til þess að taka slíka daga frá fyrir sitt fólk. Dagskráin hefst síðdegis á föstudegi og stendur fram á sunnudag og nú þegar hafa margir skráð sig til þátttöku. Það er sr. Bernharður Guð- mundsson fyrrverandi frí- kirkjuprestur í Hafnarfirði og núverandi rektor í Skálholti sem skipuleggur dagskrána. Kostnaður fyrir gistingu og fullt fæði er 13.000 krónur. Skráning á skrifstofu Skál- holtsskóla Andlegt ferðalag Hefst í dag, 22. sept. kl. 20 í safnaðarheimilinu Undanfarin 4 ár hefur verið hópstarf í Fríkirkjunni sem kallast „Sporin 12 - andlegt ferðalag“. Þetta starf hefur vakið mikla athygli og þátttaka verið mun meiri en búist var við. Í því felst leiðsögn fyrir fólk sem mætt hefur misjöfnu á lífsleiðinni og vill bæta líðan sína eða sættast við fortíðina. Þótt þetta starf byggi á 12 reynslusporum AA sam- takanna er ekki verið að glíma hér við alkóhólisma eða með- virkni heldur hvers kyns ann- að mótlæti sem fólk kann að hafa orðið fyrir. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Helgihald Sunnudagur 25. september Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 Æðruleysismessa kl. 20 Sunnudagur 2. október Guðsþjónusta kl. 13 Sunnudagur 9. október Kvöldvaka kl. 20 Sunnudagur 16. október. Guðsþjónusta kl. 13 / Kirkjudagurinn Sunnudagur 23. október Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 Sunnudagur 30. október Guðsþjónusta kl. 13 / Poppmessa Þann 1. desember á síðasta ári voru 4.365 manns skráðir í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði og hafði þá fjölgað verulega á milli ára en til samanburðar má geta þess að árið 1996 voru innan við 3000 manns í söfnuðinum. Það sem af er þessu ári hafa um 90 manns skráð sig í söfn- uðinn þannig að fjölgunin heldur áfram. Þrátt fyrir þessa fjölgun blasir það við að til Fríkirkjunnar leita mun fleiri en þar eru skráðir sbr. fjölda skírnar- og ferming- arbarna og sálgæsluviðtala. Þar sem einu tekjur safnað- arins koma af sóknargjöldum sem er nefskattur greiddur til kirkna eftir fjölda safnaðarfólks er afar mikilvægt að þeir sem vilja þiggja þjónustu prestanna séu þar skráðir. Hægt er að sækja eyðublöð á www.hagstofa.is og einnig liggja eyðublöðin frammi á skrifstofu söfnuðarins að Linnetsstíg 6, og skal þeim skilað til Hagstof- unnar. Safnaðarheimili: Sími 565 3430, netfang: frikihafn@simnet.is. Safnaðar- fólki fjölgar Á fimmta þúsund í söfnuðinum Ung- liðar Glaðvær og góður hópur Undafarin ár hefur hópur ungs fólks átt gott samfélag í safnaðarheimilinu en þetta unga fólk er flest 18 ára og eldra og hefur tekið þátt í starfi kirkjunn- ar um árabil undir stjórn Sig- ríðar Valdimarsdóttur djákna. Þetta er glaðvær og góður hópur sem hittist á mánu- dagskvöldum kl. 20 og kirkjan er stolt af þessu góða fólki sem setur skemmtilegan svip á safnaðarstarfið. Fr ík irk ja n H af na rfi rð i – Ú tli t o g um br ot : H ön nu na rh ús ið , B æ ja rh ra un i 2 – L jó sm yn di r: G uð ni G ís la so n – Fr ét ta br éf ið e r f yl gi bl að m eð F ja rð ar pó st in um .

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.