Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Page 16

Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Page 16
16 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. september 2005 Við kunnum að meta eignina þína! Áfram Haukar! Það kom eflaust ekki mörgum á óvart að Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins til 10 ára og fv. bæjarstjóri, til- kynnti að hann ætlaði ekki að halda áfram í pólitík eftir næstu kosningar. Hann hafði látið að því liggja í málgagni flokksins að það gætu orðið breytingar og hafði einu sinni frestað að til- kynna áform sín. Samtímis tilkynnti Valgerður Sigurðardóttir að hún gæfi kost á sér í fyrsta sæti í lokuðu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fer fram í nóvember en í maí sl. greindi Fjarðarpósturinn frá því að Haraldur Þór Ólason gæfi kost á sér í fyrsta sætið. Ljóst er að tilkynning Magn- úsar hefur sett af stað vangavelt- ur um framtíðarforystu í flokkn- um og hafa þar verið nefndir til ýmsir en óvíst hvað verður. Þó er ljóst að varamennirnir Leifur Garðarsson, Vilborg Gunnars- dóttir og Páll Pálsson muni ekki gefa kost á sér en ljóst að Helga S. Stefánsdóttir mun gefa kost á sér og ný komi í slaginn Guðrún Jónsdóttir en auk þess er talið að Bergur Ólafsson og María Krist- ín Gylfadóttir gefi kost á sér auk Almars Grímssonar. Steinunn Guðnadóttir mun hafa gefið sér umhugsunarfrest fram í miðjan næsta mánuð. Þá hefur nafn Valdimars Svavarssonar verið nefndur auk þess sem ýmsir eru að íhuga sína stöðu. Ákveðið hefur verið að prófkjörið verði aðeins fyrir flokksbundna Sjálfstæðismenn skv. tilmælum úr Valhöll en áður var nægilegt að menn skrifuðu sig í gestabók sem stuðnings- menn flokksins. Magnús Gunnarsson hættir Amk. Haraldur og Valgerður takast á um fyrsta sæti D-lista Magnús, Valgerður og Haraldur. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Þessir ungu drengir fylgdust spenntir með niðurrifi fyrsta tanksins og fannst mikið til koma. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n varahlutir.is S. 511 2222 varahlutir.is – Bæjarhrauni 6 Bretti - húdd - ljós - stuðarar ... Boddývarahlutir í bílinn þinn Starfsmaður hringrásar vinn- ur nú á kvöldin og um helgar við að rífa fyrstu tvo olíutank- ana á Hvaleyrarholti. Ágætlega gekk að rífa fyrsta tankinn eftir að gröfumaðurinn náði að teygja klippurnar í efstu brún og klippa gat á tankinn. Töluvert burðarvirki er innan í tanknum til að halda toppstykkinu uppi en þykkast er í tanknum neðst, 14 mm stál. Það átti vélin ekki í vandræðum með þó lúin væri og hefði getað klippt þykkara efni þegar hún var ný. Tankarnir virðast vera í þokkalegu ásigkomulagi en suður farnar að láta á sjá að sögn gröfumannsins. Áætlað er að tankarnir hverfi á næstu tveimur mánuðum. Örstutt var í næstu íbúðarhús. Olíutankarnir rifnir Bætt öryggi og umhverfisbót Lj ós m .: K ris tja na Þ ór dí s Á sg ei rs dó tti r

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.