Fjarðarpósturinn - 04.04.2007, Page 1
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
14. tbl. 25. árg. 2007
Miðvikudagur 4. apríl
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
www.as.is
Sími 520 2600
Kostnaður
gefinn upp
Sól í Straumi mun gefa upp
kostnað við kosningabaráttu
samtakanna að sögn Péturs
Óskarsson en Alcan mun ekki
gefa upp sinn kostnað. Hins
vegar hefur Alcan gefið upp að
undirbúningur að stækkuninni
hafi kostað um 800-900
milljónir kr. á síðustu 7 árum.
Kostnaður Sólar í Straumi er
áætlaður um 3,5 millj. kr.
Gleðilega
páska
Fjarðarpósturinn óskar les -
end um sínum gleðilegrar
páska hátíðar.
Vegna páskahelgarinnar verð -
ur vinnslu tími næsta Fjarðar -
pósts mjög stuttur og er skila -
frestur á efni og aug lýsingum á
þriðju dag. Sjá nán ar um skil á
www.fjardarposturinn.is
Hafnfirðingar höfnuðu því að
auglýsa skipulagstillögu sem
gerði ráð fyrir stækkun álvers
Alcan í Straumsvík upp í 460
þúsund tonna framleiðslugetu.
Tillagan fer því ekki í lögbundna
kynningu og hefur bæjarstjóri
lýst því yfir að ekki verði breytt
tillaga lögð fram á þessu kjör -
tímabili.
Aðeins skildu 88 atkvæði
fylkingarnar að, 50,3% sögðu
nei en 49,3% sögðu já. Kjörsókn
var mjög góð, 76,6% sem var
meiri en í síðustu sveitar stjórnar -
kosn ingum. 12.747 kusu.
Viðbrögð manna við niður -
stöðunum eru blendin, and stæð -
ingar fagna en aðrir hafa áhyggj -
ur af þeim kostnaði sem Hafn -
arfjarðarbær verður að öllum
líkindum fyrir vegna þess að
ekki verður af stækkuninni. Það
virðist ljóst að Hafnarfjarðarbær
þarf að taka á sig kostnað við að
setja háspennulínur í jörð og
breyt ingu á tengivirki við
Hamra nes. Ljóst er að þynn -
ingarsvæðið verður óbreytt og
ekkert sem bendir til að lög um
svæði takmarkaðrar ábyrgðar
verði afnumin. Gunnar Svavars -
son, forseti bæjarstjórnar full -
yrðir í samtali við Fjarðar póstinn
að ríkið muni kosta færslu
Reykja nesbrautar í samræmi við
gildandi aðalskipulag en svo geti
farið að framkvæmdinni verði
slegið á frest.
Michel Jacques, forstjóri
Alcan Primary Metal Group
segir í tilkynningu að Alcan
muni nú vandlega skoða alla
mögulega kosti í stöðunni. Hann
segir stóran hluta íbúanna hafa
stutt stækkunarárformin og vildi
hann þakka þeim og öllum
starfsmönnum ÍSAl fyrir ómet -
an legt framlagt við kynn ingu á
verkefninu.
Verður samt stækkað?
Eins og áður hefur verið bent á
hefur Alcan nú þegar leyfi fyrir
framleiðslu á 460 þúsund
tonnum í ÍSAL verksmiðjunni
og því velta menn fyrir sér hvort
Alcan muni endurnýja elstu tvo
skálana í Straumsvík og byggja
tvo nýja skála í staðinn þar sem
hægt væri að framleiða allt að
280 þúsund tonn með nýjustu
tækni og því gæti framleiðslan
náð 350 þúsund tonnum.
Það er því enn allt óljóst um
framtíð álversins í Straumsvík.
Óvissa um framhaldið
Óbreytt þynningarsvæði og kostnaður við að setja háspennulínur í jörðu
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
nMunum að flagga
um páskana
Fjarðarpósturinn og skátarnir
... vonbrigði
... sigur
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n