Fjarðarpósturinn - 04.04.2007, Síða 6
6 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 4. apríl 2007
BYKO óskar eftir að taka á leigu
tvær 2-3 herb. íbúðir með
húsbúnaði frá 15. júlí til miðs
októbers 2007. Uppl. veitir Agnar í
s. 821 4005 eða agnar@byko.is
20 mánaða gamalt hjónarúm,
svæðisskiptar dýnur, mjög þægilegt
og gott rúm, vel með farið.
Blúndulak og hlífðarlak geta fylgt
með. Gæti verið gott í sumarbústað.
Verð samkomulag.
Uppl. í s. 555 2124.
Brjóstnæla tapaðist í eða fyrir utan
Players í lok janúar. Hömruð
silfurnæla með steini.
Uppl. í s. 866 1123.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
Húsnæði óskast
Til sölu
Þjónusta
Eldsneytisverð
3. apríl 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 115,2 114,9
Atlantsolía, Suðurhö. 115,2 114,9
Esso, Rvk.vegi. 116,8 116,7
Esso, Lækjargötu 112,8 112,7
Orkan, Óseyrarbraut 111,7 111,6
ÓB, Fjarðarkaup 111,8 111,7
ÓB, Melabraut 111,8 111,7
Skeljungur, Rvk.vegi 116,8 116,7
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Frábær árangur með Herbalife
Ráðgjöf og eftirfylgni.
Gerður Hannesdóttir dreifingaraðili.
865 4052 • 565 1045 ghmg@simnet.is
Plokkfiskur - ekkert vesen -
Heilsusafi frá Hawai
Noni-100% lífrænn ávaxtasafi
75 næringarefni - Verð aðeins kr. 2.100 kr.
www.puls.is
Nú að loknum kosningum um
stækkun álversins hafa vaknað upp
nokkrar spurningar m.a. um
réttmæti íbúakosninga um mál er
varðar framtíð stórfyrir -
tækis á borð við Alcan.
Eins hefur verið rætt um
ábyrgð þeirra aðila sem
kjörnir eru á lýð ræð -
islegan hátt til forystu
og ætla má að þurfi að
axla þá pólitísku ábyrgð
sem er að taka afstöðu
til þeirra málefna sem
upp koma hverju sinni.
Nú þegar eitt mikil -
vægasta mál sem komið hefur á
borð Hafn firð inga er til um fjöll -
unar ber svo við að fulltrúar meiri -
hlutans í bæjar stjórn Hafnarfjarðar
skorast undan þeirri ábyrgð sem á
þeim hvílir og kjósa að standa á
hliðarlínunni. Full trúar Samfylk -
ingarinnar í Hafn arfirði hafa skrif -
að mikið í blöð in nú fyrir kosn -
inguna um stækk un álversins, það
hefur ekki verið mikið um gagn -
legar upp lýsingar um málefnið
heldur hafa þeir borið lof á sig
sjálfa og reynt að gera lítið úr
bæjarfulltrúum Sjálf stæðisflokks -
ins í Hafnarfirði sem tóku afstöðu
eins og þeim vera ber sem pólitískt
kjörnum full trúum. Í Víkurfréttir
þann 29. mars sl. skrifar Gunnar
Svavarsson odd viti Samfylkingar -
innar í Suð vesturkjördæmi og
segist treysta Hafnfirðingum, nú er
það spurningin munu Hafnfirð -
ingar treysta Gunnari Svarssyni í
alþing is kosningunum í vor. Mun
Gunnar Svavarsson velja þá leið
að standa á hliðarlínunni, varpa
allri ábyrgð á hendur borgaranna
og neita að taka afstöðu þegar erfið
mál koma til afgreiðslu á alþingi
og skýla sér á bak við íbúalýðræði?
Í sömu grein gerir hann lítið úr
bæjar full trúum Sjálfstæðis flokks -
ins í bæjar stjórn Hafnarfjarðar fyrir
það eitt að virðast hafa dug í sér að
taka afstöðu til málefnisins. Eins
segir í sömu grein: „Í þeirra huga
snýst þetta mikilvæga mál fyrst og
fremst um stjórnlyndi og ráðsemi
en ekki lýðræði“.
Fulltrúar Sjálf stæðis flokksins
hafa sýnt það að þeir eru fulltrúar
lýð ræðisins með því að taka af -
stöðu til þeirra málefna sem eru til
um fjöllunar hverju sinni. Á sá aðili
sem ekki sýnir stjórn semi og
ráðsemi eitthvað erindi til forystu í
pólitík? Guð mundur Rúnar
Árnason bæjar fulltrúi
Samfylkingarinnar í
Hafnar firði skrifar í
Fjarðarpóstinn þann 29.
mars sl. undir fyrir -
sögninni „Hafn firð ing -
ar sigra“. Í greininni
fjallar Guðmundur
Rún ar um fram -
kvæmd ir sem fyrir hug -
að ar voru m.a. á Norð -
ur bakkanum í tíð
meiri hluta Sjálfstæðis- og Fram -
sóknarflokks og að ekki hafi verið
hlustað á vilja íbúanna. Ekki var ég
spurður um núverandi fram -
kvæmdir á Norð urbakka. Það má
vel vera að Hafn firðingar hafi
sigrað eins og segir í fyrirsögninni,
en sigraði Guð mundur Rúnar? Það
er spurning sem hann einn veit.
Þeir Hafnfirðingar, þ.á.m. eflaust
fjöldi starfsmanna Alcan, sem
kusu hann í bæjarstjórn til að taka
afstöðu og axla þá ábyrg sem
honum var falið, fá ekki svar við
þeirri spurningu. Lúðvík Geirsson
bæjar stóri kaus að standa á hliðar -
línunni ásamt félögum sínum í
Samfylkingunni. Helstu rök Lúð -
víks eru að sem bæjarstjóri „allra
Hafnfirðinga“ geti hann ekki tekið
afstöðu. Ef pólitískt kjörinn aðili er
settur í stól bæjarstjóra, þá getur
það ekki þýtt að hann sé þar með
orðin opinber starfsmaður með
enga pólitíska ábyrgð. Þá er eins
gott að ráða utanaðkomandi aðila í
þetta starf, þannig getur oddviti
meirihlutans hverju sinni axlað þá
pólitísku ábyrgð sem hann var
kjörinn til.
Þeirri spurningu verður ekki
svarað hver úrslitin hefðu orðið ef
hinir pólitísku kjörnu fulltrúar
Samfylkingarinnar hefðu tekið
afstöðu með eða á móti. Eflaust
hefðu úrslitin orðið skýrari á annan
hvorn veginn ef þeir hefðu ekki
kosið að standa á hliðarlínunni
sem hlutlausir áhorfendur, heldur
axlað þá ábyrgð sem þeir voru
kjörnir til.
Höfundur situr í hafnarstjórn
Hafnarfjarðar.
Hjáseta meirihluta
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
Ingi
Tómasson
Það er 1. apríl og ég lít út um
gluggann. Álverið er á sínum stað
og það er glampandi sól yfir
Straumi. Ekkert hefur breyst og þó.
Ótrúlegt kvöld er að
baki, þar sem Davíð í
orðsins fyllstu merk -
ingu, sigraði Golíat.
Þver pólítískur hópur
fólks með sannfæringu
vann sigur í mikil væg -
ustu íbúa kosningum á
Íslandi til þessa. Sigur
gegn erlendu risafyrir -
tæki, sigur gegn öflug -
um samtökum fyrir -
tækja með landssamtök atvinnulífs
og iðnaðar að baki, sigur gegn
mætti stéttarfélaga, stjórnkerfis
bæjar ins og ráðaafla í bæjarstjórn
og ríkisstjórn, en síðast en ekki síst;
sigur gegn ótakmörkuðu fjármagni
og markvissum áróðri, þar sem
spil að var með atvinnuhagsmuni
fólks og seðlum veifað framan í
bæjar búa.
Enginn einstaklingur er meiri
sigurvegari en Pétur Óskarsson,
leið togi Sólar í Straumi í kosn inga -
baráttunni. Með rósemi sinni og
hógværð tókst honum að gera lít -
inn læk að fljóti. Dæmi um sjálf -
stæðis mann með sjálfstæða hugs -
un, sem lét ekki stefnu flokks síns
í bæn um ráða ferðinni. Og það
mun aði um kraftinn í Valgerði
Hall dórsdóttur, Sam fylkingar -
konu, sem fylgdi sannfæringu
sinni, þvert gegn boðum og bönn -
um forystunnar í Hafnarfirði sem
virðist hafa haldið, að lýðræðið
fælist í því að taka ekki afstöðu.
Það munaði líka um Sigurð P. Sig -
mundsson, framsóknarmann sem
sýndi, að mesti álfokkur á Íslandi í
dag er ekki einsleitur. Vinstri
græn ir stóðu sína vakt eins og áður
og og nærvera Ómars Ragnars -
sonar og félaga var ómetanleg. En
fyrst og síðast var það
fólkið í grasrótinni sem
stóð ekki á sama um
bæinn sinn, sem vann
sigur - sig ur fyrir lýð -
ræðið. Svo má það ekki
gleym ast að sú ákvörð -
un Sam fylk ingarinnar í
Hafnarfirði, að setja
ákvörðun um stækk un
álvers Alcan í íbúa -
kosningu, er afar
merki legt skref í þróun íbúa lýð -
ræðis hér á landi.
Niðurstaða kosningana í Hafn -
arfirði mun fara á spjöld sögunnar,
sem einn mesti sigur umhverfis -
sinna til þessa. Þarna gafst tækifæri
til að skora á hólm hina óheftu
stóryðjustefnu, sem ráðið hefur hin
síðari ár. Sigur í þeim slag mun
hafa gríðarleg áhrif, ekki síst hjá
yngstu kynslóðum þjóðarinnar.
Mótmæli grunnskólanema í
Hafnarfirði höfðu táknrænt gildi.
Að sama skapi var dapurlegt að sjá
virðulega eldri borgara í bænum,
fylla heilsíðu auglýsingar og hvetja
til byggingar stærsta álvers í
Evrópu í bæjarbyggðinni.
Það verður áfram sól í Straumi.
Brátt munu Hafnfirðingar verða
álíka stoltir af niðurstöðu kosn -
ingana og Árnesingar af baráttu
Sigríðar í Brattholti fyrir Gullfossi
og Þingeyingar af baráttunni gegn
uppistöðulóni í Laxárdal. Það urðu
tíma mót í Hafnarfirði 31. mars
2007.
Höfundur er nágranni
álversins.
Sól í Straumi
Reynir
Ingibjartsson
Fatahreinsun
JAKKAFÖT .................................... 1.630,-
HEIMILISÞVOTTUR (30 stk, 15 lítil og 15 stór) ......3.980,-
SKYRTUR ........................................ 400,-
KÁPUR.......................................... 1.435,-
GARDÍNUR (pr. kg.) ................................ 815,-
ÞVOUM OG HREINSUM ALLAN FATNAÐ
GLUGGATJÖLD OG MARGT FLEIRA
ALLT Á HREINU SÍÐAN 1965
HRAUNBRÚN 40
SÍMI 555 1368
Humar er konfekt úr hafinu
Fiskur á grillið -nammi nam-
Atlantsskip hafa hafið losun
og lestun skipa sinna á nýju at -
hafna svæði félagsins við Hafn -
arfjarðarhöfn. Fyrsta losun í
Hafnarfirði fór fram á laugar -
dag inn en þá var skipað upp úr
Kársnesi.
Með þessari breytingu er lok -
ið fyrri áfanga af tveimur í
flutn ingum Atlantsskipa til
Hafn ar fjarðar. Annar áfangi
verð ur flutningur vöru húsa -
starfsemi skipafélagsins og
skrif stofu til bæjarins. Áætlað er
að honum verði lokið í árslok
2007. Þá verður öll starfsemi
fyrir tækisins kominn á einn stað
í Hafnarfirði.
Atlantsskip flyst til Hafnarfjarðar